Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Side 1
INDÓNESÍA BANNAR
ÆTTLEIÐINGU BARNA
íslendingar hafa ættleitt 60 böm þaðan á síðustu áram
„Máliö er þaö, að lög sem sett voru
í Indónesíu frá og með 12. október
sl. útiloka ættleiöingu þarlendra
bama til útlendinga,” sagöi
Guöbjörg Alfreðsdóttir, formaður fé-
lagsins Islensk ættleiðing, er DV
ræddiviðhana.
Islensk ættleiðing er áhugamanna-
félag sem hefur haft hönd í bagga
með ættleiðingu bama frá útlöndum.
A síöustu tveim og hálfu ári hafa 60
böm komið hingað til lands frá Indó-
nesíu og hafa þau veriö ættleidd hér.
Nú hafa þarlend yfirvöld tekið fyrir
slíkt.
Guðbjörg kvaðst ekki vita ná-
kvæmlega hvers vegna þessi nýju
lög hefðu verið sett í Indónesíu.
Hefðu aðeins borist lausafregnir
hingað til lands þar aö lútandi en
einnig hefði nokkuð veriö skrifað um
þau í erlendum blöðum. Mætti gera
ráð fyrir að lagasetningin væri til
orðin af trúarlegiun ástæðum. Nær
90 prósent landsmanna i Indónesíu
væru múhameðstrúar ogmættiætla
að þar væri orsakar lagasetningar-
innar einkum að leita.
Sagði Guðbjörg að í þessum nýju
lögum væri m.a. kveðið á um að út-
lendingur sem hygöist ættleiða bam
frá Indónesíu yrði að hafa verið bú-
settur þar í landi í þrjú ár áður en af
ættleiöingunni gæti orðið.
„Það er auðvitað útilokað fyrir
fólk að uppfylia skilyrði sem þetta,”
sagði Guðbjörg. ,,En svo er líka
spurning hvað lög sem þessi halda
lengi. Það ríkir gífurleg fátækt þama
niður frá og f jöldinn allur af börnum
er foreldralaus. Því má búast við að
þetta breytist aftur þegar frá líður.”
-JSS
DAGBLAÐIЗVÍSIR
258. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983.
Ákvörðun
stjómamefndar um
pvottaþjónustu
ríkisspitalanna:
Öllum tilboð-
umhafnað
„Stjómamefnd hefur tekið
ákvörðun um að hafna öllum
tilboöum sem bárust í rekstur
þvottaþjónustu fyrir ríkisspitalana,”
sagði Davíð Á. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri ríkisspítalanna, í
viðtali við DV.
Aðspurður um þá staðhæfingu
Guðmundar Arasonar, forstjóra
Fannar, um að hans tilboð hefði
verið lægra en rekstrarkostnaður
Þvottahúss ríkisspítalanna, sagði
Davíð að óskað hefði verið umsagnar
ríkisendurskoðunar í því málL
, Jlekstrarkostnaðurinn hjá okkur er
lægri en tilboð Fannar samkvæmt
okkar útreikningum,” sagöi hann.
„Stærsti liðurinn sem deilt er um í
því sambandi eru afskriftir á tækjum
en þann hlut má deila endalaust um.
Okkar aðferð var sú að við látum
meta öll tækin á raunverulegu verði
og miðuðum afskriftimar viö 20 ára
endingu. Þau eru nú flest 10—11 ára
gömul. Guðmundur miöaði hins
vegar við 8 ára afskrif tir.
Þvottahús ríkisspítalanna á nú allt
lín sem notað er á spítölunum. Við
hefðum að sjálfsögðu selt þær birgðir
ef samningar hefðu tekist. En það
var sumsé gert ráð fyrir að línið yrði
í eigu viökomandi þjónustuaðila
þegar útboö var gert en ekki gert ráö
fyrir neinum breytingum í þeim
efnum.” -JSS
Síldarsöltun
rétt að Ijúka
Á hverri stundu er nú búist við aö
Síldarúivegsnefnd tilkynni að síldar-
söltun verði lokið innan eins til
tveggja sólarhringa.
Mjög góð síldveiði er nú, þannig
að svo kann að fára að bátar komi að
landi með góðan afla eftir að söltun
er lokið, eins og átti sér stað í fyrra.
En þá tekur frystingin við ef síldin
er ekki mjög smá og þær góðu fréttir
berast af aðalveiðisvæðinu að
síðustu sóiarhringa hafi síidin farið
sístækkandi. Það mætti því kalla
þetta kjörástand. -gs.
■HBBDHHl
22 Nóbels-
verðlaunahafar
mótmæla
vígbúnaðar-
kapphlaupinu
] Sjá erlendarfréttir
ábls.Sogð
Hlustað eftir
neyðarsendi
Menn eru vonlitlir um að nokkur úr
áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-
RÁN hafi komist lifs af þegar hún fórst
í Jökulfjörðum í fyrrakvöld. Talið er
að þyrlan hafi farið í sjóinn út af
Kvíarfjalli, milli Veiðileysufjaröar og
Lónafjarðar.
Brak úr þyrlunni hefur fundist á því
svæði. Á sömu slóðum hafa dýparmæl-
ar leitarbáta sýnt þúst á sjötíu metra
dýpi. Enginn staðfesting hefur fengist
á því að þar sé um flak þyrlunnar að
ræða.
Starfsmenn Flugmálastjórnar og
Vamarliðsmenn komu í Jökulfirði síð-
degis í gær með tækjabúnað til að
greina hugsanlegar sendingar neyðar-
sendis þyrlunnar. Neyðarsendingar
eiga að geta heyrst í vatni.
Umfangsmikil leit stóö fram yfir
miðnætti í nótt. Leit hófst aftur í birt-
ingu í morgun. I dag verður leitað úr
lofti með þyrlu og’af sjó auk þess sem
kafarar eru til taks.
— sjá nánar blaðsiöu 2 og 3.
-KMU.
íslenskir
fjallgöngumenn
ráöastáhæsta
fjall Vesturálfu
-sjábls.3
Bygging
stálversins
tefst
— sjá bls.4
Áhugamál
einkaritara
— sjá Dægradvöl
bls. 34-35
39.000 EINTÖK PRENTUÐ í DAG.
RITSTJÓRN SÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022