Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Blaðsíða 35
DV. FIMMTUDAGUR10. NOVEMBER1983.
i 35
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
„Nú, eruö þiö komnir,” sagöi Sigríð-
ur Stefánsdóttir, einkaritari Ragnars
Halldórssonar hjá ISAL, brosandi
þegar viö Bjarnleifur ljósmyndari birt-
umst.
Sigríður hefur veriö einkaritari í
tuttugu ár, þar af sextán ár hjá
íslenska álfélaginu í Straumsvík.
Fyrst hjá Philipp Miiller og síðan hjá
Ragnari Halldórssyni. Áður en hún fór
til Álfélagsins vann hún hjá Eimskip,
sem einkaritari Ottars Möller.
„Eg er nú ósköp róleg í tíðinni í
frístundum mínum, er aðallega heima
með fjölskyldunni. Og kannski er
starfið helsta áhugamálið,” svaraöi
Sigríður er viö spurðum um dægradvöl
hennar.
„Eg hef þó alla tíð gert mikið að því
að lesa og er reyndar nýbúin með ævi-
sögu Kristjáns Sveinssonar augnlækn-
is.”
„Mjög góð bók,” bætti hún við.
Sigríður sagöi að eitt af sínum helstu
áhugamálum á sumrin væru ferðalög
og þá væri nær eingöngu gist í tjaldi.
„Viö fórum í sumar út í Flatey á
Breiðafirði og höföum mjög gaman af.
Eins höfum við oft skroppið austur í
Skaftafell og á svæðið í kringum
Kirkjubæjarklaustur.”
— Eitthvað farið með Ferðafélag-
inu? „Já, við höfum gert talsvert aö
því. Hef meðal annars farið í nokkrar
fjallaferðir og gengiö á Langjökul,
Snæfellsjökul og Eyjafjallajökul.”
— Ertu í einhverjum klúbbum?
„Nei, ekki er það. Og þó, ég er í einka-
ritaraklúbbnum en hann er tveggja
ára. Við erum eitthvað um 38 til 40 í
honum.”
Sigríður er fædd í Hafnarfirði. Er
sannur Gaflari eins og stundum er
sagt. Hún er með verslunarskólapróf
og starfaði um tíma í London.
— Og hvemig er að vera einkarit-
ari? „Það er ágætt. Eg hef verið mjög
heppin með yfirmenn og þetta er f jöl-
breyttstarf.” -JGH
Ingibjörg Helgadóttir hefur verið
einkaritari Harðar Sigurgestssonar i
tvö ár. I\lú er hún i öldungadeildinni
i Hamrahlið á kvöldin. „Mér finnst
mjög gaman en stefni þó ekkert
frekar á stúdentspróf."
D V-myndir Bjarnleifur
Ingibjörg Helgadóttir fæddist á Rauf-
arhöfn. Þriggja ára aö aldri flutti hún
til Húsavíkur og nú, tuttugu og þremur
árum síðar, býr hún í Reykjavík og er
einkaritari hjá forstjóra Eimskips,
Herði Sigurgestssyni.
„ Jú, ég hef nóg að gera í frístundun-
um, en þær fara flestar í skólapuð því
ég byrjaöi í öldungadeildinni í Hamra-
hlíö í fyrra,” sagði Ingibjörg er við
heilsuðum upp á hana hjá Eimskip og
impruöumá áhugamálunum.
Ingibjörg sagðist eingöngu hafa
farið í öldungadeildina vegna þess að
sig hefði langað til að prófa hana.
Stefni ekkert frekar
á stúdentspróf
„Mér finnst mjög gaman, en stefni
Félagsfræði og tölvunarfræði
eru uppáhalds „öldungadeildarfögin” hennar Ingibjargar Helgadóttur,
einkaritara Harðar Sigurgestssonar hjá Eimskip
þó ekkert frekar á stúdentspróf. Er
eingöngu að gera þetta fyrir sjálfa mig
og held örugglega áfram hér sem
einkaritari.”
Hún hefur verslunarpróf frá
Verslunarskóla Islands og hóf störf hjá
Eimskip um áramótin ’79/’80. Einka-
ritari Harðar hefur hún verið í tvö ár.
En áfram um öldungadeildina. —
Uppáhaldsfögin? „Eg hef haft einna
mestan áhuga á félagsfræðinni og
tölvunarfræðinni á þessari önn.” Það
má kannski búast viö að það verði fé-
lagsfræðingur sem starfar hér sem
einkaritari í framtíðinni, skjótum við
inní.
„Nei, ekki held ég þaö.”
Fer í sund fyrir vinnu
Þrátt fýrir skólapuðið í frí-
stundunum gefur Ingibjörg sér tíma til
að trimma örlítið. Fer til dæmis í sund
á hverjum morgni og syndir þetta frá
200 til 400 metra.
„Byrja alltaf á því að fara í sund
fyrir vinnu, nema þegar ég sef yfir
mig.” — Kemur það oft fyrir? „Nei,
sem betur fer ekki, en þó svona
stundum eins og gengur.”
Létt var yfir samtalinu og við leiðum
talið að gömlu góðu skíðaíþróttinni
sem Norðlendingar hafa löngum
stundaðaf kappi.
„Jú, ég fer á skíði eins og sönnum
Norðlendingi sæmir, get ekki verið
þekkt fyrir annað,” svarar hún hlæj-
andi.
Er Völsungur
,,Annars fór ég mjög sjaldan á skíði
sem unglingur heima á Húsavík en tók
skíðadelluna í fyrravetur. Keypti mér
þá skíði og fór um hverja helgi.”
— Og þú ert Völsungur eins og hinir
Húsvíkingarnir, er það ekki? „Jú, jú.
Að sjálfsögðu held ég með besta fé-
laginusemeríbestabænum.” -JGH.
„Ágætt að lesa
skriftina hans”
— segir Guöríöur Steinsdóttir, einkaritari hjá
Davfð Scheving Thorsteinssyni í tuttugu ár
„Jú, jú, ég er orðin vön skriftinni
hans Davíðs, það er ágætt að lesa
hana,” svaraði Guðríður Steinsdótt-
ir, einkaritari Davíðs Scheving Thor-
steinssonar, skriftarspurningu okk-
ar, en hún var einmitt að vélrita
ræðu fyrir Davíð er okkur bar að.
Guðríður hefur starfað sem einka-
ritari Davíðs í tuttugu ár eða frá því
að hún hóf störf hjá fyrirtækinu
Smjörlíki hf.
,,Eg verð nú að teljast frekar
:heimakær manneskja og eyði því
flestum frístundum heima við,”
sagði Guðríður, um leið og við
tylltum okkur í fundarherbergi
fyrirtækisins.
Ágœtt aö slappa
afheima
, „Helgarnar notum við, sambýlis-
maður minn og ég, oft til heimsókna
til vina og ættingja eöa þá aö við
fáum heimsóknir. Okkur finnst líka
.bara ágætt aö slappa af heima í
rólegheitunum, ég tala nú ekki um ef
eitthvað skemmtilegt er í sjónvarp-
;inu.”
Guöriður sagöist hafa ferðast
mikið áöur fyrr, bæði innanlands og
erlendis. Og innanlands hefði hún
oftast farið með Ferðaf éiaginu.
„Maður fór út um allt á sumrin,
nánast um hverja helgi. ”
— Einhver skemmtileg ferð sem
•þú manst sérstaklega eftir?
•<-------------------------------
Skemmtileg
hálendisferð
„Þær eru nú margar eftirminnileg-
ar. En ég man þó sérstaklega eftir
þrettán daga hálendisferð, sem ég
fór fjrir um tíu árum. Mjög
skemmtileg ferð.
Við ókum norður Sprengisandinn.
Leiðin lá síðan meöal annars að
Eldgjánni, Herðubreiöarlindum og
Öskjuvatni. Við fórum svo Kjöl til
baka.”
„En ég hef nú ferðast minna síð-
ustu árin,” bætti hún við.
Viö spyrjum hvort hún sé eitthvaðí
sportinu svokallaða?
„Það er nú ekki mikið og ég get
tæplegast talist mikil sportmann-
eskja. En er þó í leikfimi hjá Báru
tvisvar i viku, hef verið þar ööru
hver ju í nokkur ár.”
Kaidur og
svalandi svalinn
En svona að lokum, þú notar
auðvitað ekkert nema sólblóma ofan
á brauðið?
„Nei, nei, þaö er aö sjálfsögðu ekk-
ert nema sólblóma ofan á brauðið.
Og fyrst við vorum að ræða um'
ferðalög áðan er þá ekki rétt að nota
tækifærið og minna á kaldan og sval-
andi svalann í ferðalögin.”
-JGH
Guðríður Steinsdóttir er hér að líta á nótur ásamt Davíð Scheving
Thorsteinssyni. Hún hefur verið einkaritari hans i tuttugu ár.
Og hér sýnir hún okkur skriftina
sem Davíð finnst nú reyndar
skrítið að Guðríður skuli nokkurn
timann hafa skilið.
D V-mynd Bjarnleifur.