Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Blaðsíða 3
DV. FIMMTUDÁGUR10. NOVÉMBÉR1983. 3 Flugvél Landhelgisgæslunnar komin til ísafjarðar. Liðið um borð var flutt með lögreglubílum að hof ninni þar sem Lóðsinnbeið. _ DV-mynd: V.J. DV-mynd: V.J. Vamarliðsmenn með farangur sinn. íslenskir f jallgöngumenn: Ætla að klífa hæsta fjall Vesturálfu Fjórir Islendingar hyggjast í janúar næstkomandi klífa hæsta f jall Vesturálfu, fjalliö Aconcagua í Argentínu en þaö er 6950 metra hátt. Er þetta hæsta fjall sem Islendingar hafa reynt aö klífa hingaö til. Fjórmenningarnir eru þeir Hermann Valsson, Pétur Ásbjörnsson, William Gregory og Þorsteinn Guðjónsson. Allir eru þeir félagar í Islenska Alpaklúbbnum og hafa fengist viö fjallaklifur um ára- bil. Meöal annars hafa þeir allir klif- ið hæsta fjall Evrópu, Mont Blanc, sem er 4807 metra hátt. Alls er áætlað að ferðin á Áconcagua taki um mánaöartíma með flugferðum fram og til baka frá Islandi. Þar af fara um þrjár vikur í f jailgönguna sjálfa. Stefnt er að því að leggja af stað héðan 9. janúar og koma aftur þann 5. febrúar. Samkvæmt tímaáætlun sem þeir fjórmenningar hafa gert munu þeir standa á tindi Aconcagua 26. janúar ef allt gengur snurðulaust fyrir sig. Heildarkostnaöur viö þessa ferö er áætlaður tæp hálf milljón króna og munu fjórmenningarnirgreiöa hann aö mestu úr eigin vasa. Þeir hafa t leitaö eftir styrkjum frá fyrirtækj- un og stofnunum en ekKi fengiö þær undirtektir sem þeir vonuöust eftir. Að undanförnu hafa þeir æft mjög stíft fyrir ferðina og hugsanlegt er að tveir þeirra fari til enn frekari æfinga í Ölpunum í desember. SþS Fjallgongugarparnir f jórir sem stla að komast gangandi hærra upp í loftið en nokkrum tslendingi hefur áður tekist. Frá vinstri: Þorsteinn Guðjónsson 22 ára, Pétur Ásbjörnsson 26 ára, William Gregory 28 ára og Hermann Valsson 27 ára. DV-mynd Bj.Bj. hann upp í I AGLI FIATHÚSINU mm Þú kemurogsemur í FIAT-salnum er miðstöð bflaviðskiptanna FIAT-salurinn, FIAT-húsinu [JORINi Sífelld bílasala Sími 77200 Sífelld þjónusta Sfmi 77202 Opið frá kl. 9—18 Laugardaga frá kl. 10—17 EGILL VILHJÁLMSSON SMIÐJUVEGI4C - KÓPAVOGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.