Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Blaðsíða 36
36 DV. FIMMTUDAGUR10. NOVEMBER1983.
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
Heimsins stærsta
brúðkaupsterta
— kom nafni Simon Spies f Guinness-bókina
Danski ferðaskrifstofukóngurinn sentímetra há og vó fjögur og hálft
Simon Spies er kominn í heimsmeta- tonn.
bók Guinness. Brúðkaupstertan sem Hafi einhver áhuga á að baka aðra
bökuð var þegar Simon gekk í það eins tertu fylgja hér með helstu
heilaga með vinkonu sinni, Jannie, magntölur:
11. maíívor, kom nafni hans í bókina Tíu þúsund egg, hálft tonn af
frægu. hveiti, hálft tonn af sykri, hálft tonn
Brúðkaupstertan var heldur engin flórsykur. Auk þess óhemju magn af
smásmíði. Hún var tíu metra og 69 marsípani og súkkulaði.
Brúðkaupstertan stóra. Efst á myndinni má greino bakara vera aö
leggja síðustu hönd á verkið. Sérstakan körfubíl þurfti til að lyfta
honum alla ieið upp.
Forseti ísiands og borgarstjórinn i Reykjavík sátu á milli forsetahjónanna frá Grmnhöfðaeyjum, Maria
Pereira og Carlina Pereira.
AFRÍKUFORSETI í VEISLU
HJÁ BORGARSTJÓRA
Forseti Grænhöfðaeyja sótti
Islendinga beim í síðustu viku, sem
kunnugt er. Opinberri heimsókn hans
lauk fyrra miðvikudag og hélt hann þá
heimleiðis um Ijxidon.
Grænhöfðaeyjar eru í Atlantshafi úti
fyrir Afríku, fyrir sunnan Kanaríeyjar,
sem margir Islendingar þekkja af
eigin raun.
Grænhöfðinginn, eins og margir
vildu kalla forsetann, þá meöal annars
kvöldverð á Kjarvalsstöðum í boði
borgarstjórans í Reykjavík, Davíðs
Oddssonar. Þar var samankomiö
margt fyrirmenna, þar á meöal forseti
Islands, Vigdís Finnbogadóttir, ráð-
herrar úr íslensku ríkisstjórninni og úr
ríkisstjórn Grænhöföaeyja.
Hin opinbera heimsókn þótti takast
vel. Veðrið setti að vísu sitt strik í
reikninginn en það breytti ekki miklu.
!
DV-myndir:
BRENNHEITUR TENNISÁHUGI
Hver hefur ekki heyrt brandarann
um golfleikarann sem gerði smáhlé á
leiknum og tók ofan meðan líkfylgdin
fór framhjá golfvellinum? Félagi hans
hafði orð á því hvað þetta væri nú
hugulsamt af honum að votta hinum
látna þannig virðingu sína. „Við
vorrnn nú búin að búa saman í þrjátiu
ár,” svaraði þá hinn, því það var ein-
mitt verið að fylgja eiginkonu hans til
grafar.
Tennis virðist vera mönnunum á
myndinni álíka mikið áhugamál og
golfið eiginmanninum í skrýtlunni.
Þeir láta ekki húsbruna taka frá sér
ánægjuna, jafnvel þótt eldurinn sé í
félagsheimili tennisklúbbsins. Myndin
var tekin í Kaupmannahöfn.