Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Qupperneq 16
16 DV. FIMMTUDAGUR10. NOVEMBER1983. Spurningin Finnst þór að eigi að friða Fjalaköttinn? Haraldur Sveinbjömsson verkamaö- ur: Nei. Þaö á umfram allt að rífa hann. Ég tel hann ekki athyglisverð- an. Anna Snorradóttir húsfreyja: Já, tvímælalaust. Þetta er sögulegt og fallegt hús og ég er hlynnt því að varð- veita gömul verðmæti. Við eigum svo lítiðaf þeim. Agúst Steindórsson, vinnur i Straums- vik: Ég er lítið inni i þvi máli og hef enga skoðun á því. Hrafn Þórhallsson véistjóri: Mér er alveg sama um þessa gömlu hjalla. Klara Sigurðardóttir húsmóðir: Ég veit það ekki. En það verður að minnsta kosti að gera við það. Þaö er svo ljótt eins og það er nú. Sigurbjörg Armannsdóttir húsmóðir: Ég er almennt hlynnt friöun gamalla húsa en þetta eru mál sem þarf að vega og meta hverju sinni. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Varphænur íbúrum sinum. HÆNSNI, KAUPM OG BLAÐAMENN Agnar Guðnason, blaðafulltrúi bænda- samtakanna, skrlfar: I þeim umræðum sem farið hafa fram undanfamar vikur um stofnun eggjadreifingarstöðvar hefur gagn- rýnin fyrst og fremst beinst aö því að um einokun yrði að ræða og verðið sett jfast. Þar væri engu hægt að þoka. A neytendasíðu DV þann 3. nóvember sl. kom fram að allir verslunarstjórar, sem blaðamaður hafði samband viö, voru andvígir stofnun dreifingarstöðv- ar á eggjum. Þeir nefndu máli sínu til stuðnings verðið á kindakjöti og verð- lagningu þess, það væri fastskorðað og engu hægt að hnika til. Þetta segja þeir gegn betri vitund eftir stærstu kjötút- sölu sem haldin hefur verið hér á landi. A þessari sömu síðu í DV var birt verð á 13 mismunandi tegundum neysluvara í 5 verslunum. Þar kemur fram aö munurinn á hæsta og lægsta verði á eggjum er aðeins 12%. Það þykir ekki mikið þar sem óheft og frjáls samkeppni ræður. Maöur hefði nú haldið að á einokunarvörunni kinda- kjöti væri enginn verðmunur. Það er nú öðru nær. Á lambalundum var munurinn á hæsta og lægsta verði 24%, á kindahakki 27%, á kindakæfu 34% og á nautalundum tæp 17%. Varla eru þessar tölur til aö sanna ágæti frjálsr- ar samkeppni. Hvernig væri nú ef DV setti einhvem af sínum ágætu blaöamönnum til aö kanna þetta eggjamál ítarlega. Kom- ast að því hvemig verslun með egg er háttað í öðrum löndum. Hver er fram- leiðslukostnaður, hvemig er heilbrigð- iseftirlit, hvemig er flokkun á eggjum og ótal margt annað mætti skoða. Þaö væri mikill fróöleikur að fá samanburð á verðlagningu eggja og t.d. mjólkur hér og i nágrannalöndum okkar. Fimmtugum ekkert fært? „Fimmtugt gamalmenni” skrifar: Elín Pálmadóttir skrifaði athyglis- verðar „Gárur” sl. sunnudag i Morgunblaðið. Elín fjallar í grein sinni um það misrétti (ekki milli kynja) að algengt virðist orðið að fólki um fimmtugt sé neitað um vinnu vegna aldurs. Reyndar verða karlar fyrir sliku engu síður en konur. I sama Morgunblaði er auglýsing frá fyrirtæki sem virðist vera borgarstofnun en þaö auglýsir eftir starfsmanni sem þarf að vera vanur vélum og sagt er „æskilegur aldur 18 til 45 ára. Laun samkv. BSRB 10. lfl.” Elín nefndi í sinni ágætu grein dæmi um konu sem var neitað um símavörslu vegna aldurs en hún mun hafa rétt losaö 50 ára aldur. Þama var um að ræöa stööu hjá heilsugæslustöð í Reykjavík. Þetta er mjög alvarlegt mál, reynd- ar reginhneyksli. Þaö skal tekið undir spumingu Elinar.Ætlar sá aðili aö hætta störfum hjá heilsugæslunni í Reykjavík um fimmtugt sem neit- aði fimmtugu konunni um vinnu við símagæslu vegna aldurs? Þessi mál og önnur lík eða eins eru fjölmörg og vissulega væri Jafnrétt- isráði sómi að því að kynna sér þau. Jafnréttisráð á væntanlega aö vinna að jafnrétti kynjanna og einnig aö jafnrétti fólks af sama kyni. Það er ekki jafnrétti aö stelpugopi sé tekinn fram yfir fullorðna og trausta konu einungis vegna aidurs eða útiits. Sér- staklega er til skammar aö slíkt skuli gerast hjá stofnun sem er rekin af riki og borg sameiginlega. Svona erum við: Takk fyrir Unnur hringdi: Hún vildi koma þakklæti sínu á framfæri við sjónvarpið vegna þáttarins Svona erum við. Þessi þáttur f jallaöi um þroskaheft böm. Sérstakar þakkir vildi hún færa Emu Indriðadóttur og forráða- mönnum sjónvarpsins fyrir þennan þátt. Svar óskast Jósep Guöbjartsson á Akureyri hringdi: Hann vildi koma á framfæri áskorun til Guðmundar J. eða As- mundar Stefánssonar um aö svara grein sinni sem hann skrifaði í Dag á Akureyri 31. október. Þar voru ýmsar spumingar sem hann vildi fá svar við, þar á meðal um launa- mál. Léttlögí útvarpið Jónahringdi: Ég vil endilega koma þakklæti mínu til forráðamanna útvarpsins á Akur- eyri fyrir létta og . skemmtilega dag- skrá. Þaö veitir víst ekki af að létta svolítið lund í skammdeginu. Þeir eiga hrós skilið. Gjaman mætti Otvarp Reykjavíkur létta ögn dagskrá sína með léttri dagskrá, meira af tónlist og léttara efni fyrir börn. Gjaman mættu vera fræðsluþættir fyrir börn og ungl- inga. Ökumenn, sýnið tillitssemi Annahrlngdi: Nú þegar skammdegið fer í hönd og blessuð bömin fara stormandi út í kuldann þá vil ég gjaman biðja alla ökumenn um að taka tiliit til þessara barna því þau eiga að erfa landið. Aldrei er nógu mikið talað um þessa hluti. ökumenn, sýnið bömunum okkar tillitssemi. Endursýnið mynd- inaum DarioFo Jarþrúður Pétursdóttir hringdi: Jarþrúður sagðist hringja fyrir hönd fjölda manna til aö hvetja sjónvarpið til að endursýna myndina um Dario Fo sem var sýnd 30. okt. Forsætisráðherra: „Hefði betur orðið kúasmali” Jóhann Þórólfsson skrifar: Steingrímur Hermannsson, þessi góði ráðherra, hefur ferðast um landiö til að biðja fólk aö spara og herða sultarólina, eins og hann kallar þaö. A sama tíma kaupir hann handa sjálfum sér dýran bíl meö alls kon- ar fríðindum. Ekki nóg með það, heldur lætur hann setja í síma, sem sagt er að kosti á annað hundraö þúsund krónur. Auðvitað verða skattborgarar að greiða fyrir. Þetta kallar maöur aö skara eld að sinni köku. Nei, hann Steingrímur hefði betur oröið kúasmali, þá heföi hann ráðið við verkefnið. Framsóknar- menn ættu að taka Halldór As- grímsson til fyrirmyndar og for- manns. Þar er ungur ráðherra á ferðinni, sem er í miklu áliti og þjóðhollur fulltrúi, en ekki eigin- hagsmunaseggur, eins og margir þingmenn eru, þó að þar séu und- antekningar á. En þeir eru bara of fáir. Halldór vill þjóð sinni vel. Ekki vantar að forsætisráðherr- ann sé með spamaðarhjal — eng- inn peningur til og allir sjóðir tóm- ir. Samt er hægt að hækka kaup þingmanna um 50% og höfðu þeir þó gott kaup fyrir og ýmis hlunnindi. Þar að auki er hægt að byggja risaflugstöð í Keflavík. Þá eru nógir peningar til. Hver skilur nú málflutninginn? Sagt er að um 60% þjóðar- tekna séu í erlendum skuldum. Ég fæ ekki betur séð en þær aukist áfram og eftir nokkur ár verður Is- land þá nýlenda Ameríku. Vonandi verður það þó aldrei, en þá þarf að snúa af þessari braut. Það kæmi mér ekki á óvart þó að Framsóknarflokkurinn yrði minnstur flokka eftir næstu kosningar. Ætli viO fáum fíjótíega aO sjá David Bowie i sjónvarpinu syngja lagió China giri? David Bowie og China Girl R.K. Akureyri skrifar: Mig langar aö koma með eina spum- ingu til forráöamanna sjónvarpsins og hún er svona: Er það satt að video- filman með laginu China girl með David Bowie hafi komið hingað til landsins og sjónvarpið endursent hana?Hversvegna? Er það út af því að þau sjást nakin? Mitt álit er það að mér finnst miklu eðlilegra að sjá fólk nakiö heldur en jmanndráp og annaö. Em þau ekki íeins og aðrir? Svar: Að sögn Hinriks Bjarnasonar er honum ekki kunnugt um þessa video- filmu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.