Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Síða 18
18
DV. FIMMTUDAGUR10. NOVEMBER1983.
Tilkynning
til launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi
launaskatts fyrir mánuðina ágúst, september og október er 15.
nóvember nk.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtu-
manns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið
launaskattsskýrslu í þríriti.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ.
HITAVEITA SUÐURNES JA
vill ráða til starfa vélvirkja
Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmanna-
félags Suðurnesjabyggða. Umsóknir er greini
aldur, menntun og fyrri störf sendist til Hitaveitu
Suðurnesja, Brekkustíg 36 Njarðvík, eigi síðar en
21. nóv. nk.
Styrkir
til háskólanáms og vísindalegs
sérnáms í Svíþjóð.
Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Islendingi til há-
skólanáms í Svíþjóð námsárið 1984—85. Styrkfjárhæð er
3.020,00 s.kr. á mánuði í 8 mánuði. — Jafnframt bjóða sænsk
stjórnvöld fram fjóra styrki handa Íslendingum til vísindalegs
sérnáms í Svíþjóð á háskólaárinu 1984-85. Styrkimir eru til 8
mánaðar dvalar, en skipting í styrki til skemmri tíma kemur
einnig til greina. Styrkfjárhæð er 3.020,- s.kr. á mánuði. —
Ennfremur gefst íslenskum námsmönnum kostur á að sækja
um styrki þá, er sænsk stjórnvöld bjóða fram í löndum þeim,
sem aðild eiga að Evrópuráðinu, en þeir styrkir eru eingöngu
ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík,,
fyrir 1. janúar nk., og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt
meðmælum. — Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
7. nóvember 1983.
og myndarlega ,
JÓLAGJAFAHAMDBÓK
- jkemur út
um mánaðamót
nóv/des.
Þeir auglýsendur sem
áhuga hafa á að auglýsa í
JÓLAGJAFAHAMD
BÓKINNI
SIMIIMIM
ER
vinsamlegast hafi samband
við auglýsingadeild
Síðumúla 33, Reykjavík,
82260
eða í síma 82260 milli kl.
9 og 17.30
HAFIÐ SAMBAND
STRAX
SEM ALLRA FYRST.
Húsavík:
Mynd hf. hefur fengið
jákvæðar undirtektir
Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur,
fréttaritara DV á Húsavik:
Fyrirtækið Mynd hf., sem stofnað
var hér á Húsavík í sumar, hefur
fengiö mjög jákvæðar undirtektir
meöal bæjarbúa. Um almennings-
hlutaféiag er að ræða og eru hluthafar
38talsins.
Mynd hf. annast framköllun allra
venjulegra litmynda, eftirtöku mynda
og stækkanir. Eftir áramót verður boð-
ið upp á enn meiri stækkanir. Auk
þessa geta viöskiptavinirnir fengið
myndir sínar brenndar á diska og aðra
skrautmuni.
Þá er einnig hægt að fá jólakort og
önnur tækifæriskort með eigin mynd-
um.
Roy Phillips filmtæknifræðingur
veitir fyrirtækinu forstöðu, en hann
hefur um árabil unnið við sitt fag í
Reykjavík og erlendis.
Hann sagöi að Mynd hf., væri búin
fullkomnustu tækjum sem völ væri á í
dag. „Ein filma er framkölluð í einu og
fylgist starfsmaður með hverri mynd.
Þetta tryggir betri myndgæði, enda
ganga svona fyrirtæki vel í stórborg-
umerlendis.”
Afkastageta fyrirtækisins eru rúm-
lega hundrað filmur á 8 klukkustund-
um. En þess má geta að Húsvíkingar
hafa að meðaltali sent um 18 filmur í
framköllun á dag tii Reykjavíkur og
beðið eftir þeim í allt aö viku til tíu
daga.
Roy er eini starfsmaður fyrirtækis-
ins nú, en ef björtustu vonir rætast
skapar það fleirum atvinnutækif æri.
Móttaka á filmum á Húsavík er hjá
Hljóð og sport, Kaupfélagi Þingeyinga,
Skóbúð Húsavíkur og Bókaverslun
Ingvars Þórarinssonar. Fyrirtækið
býður einnig fram þjónustu sína sem
víðast um landið í gegnum umboðs-
menn sína. Sama verð er greitt fyrir
framköllun um allt land.
Formaður stjórnar Myndar hf. er
Ámi Haraldsson.
-JGH
Eini starfsmaöur fyrirtœkisins, Roy Phiiiips filmtæknifræöingur. Hann
hefur um árabil unniö sitt fag i Reykjavík og erlendis. Myndhf. er tH húsa /
húsnæði Sjálfsbjargarfélagsins og mun vera fyrsta fyrirtæki sinnar tegund-
ar utan Reykjavíkursvæðisins. D V-mynd: Ingibjörg Magnúsdóttír.
Hvolsvöllur:
Timburhúsin ekki lengur í ónáðinni
Frá Halldóri Kristjánssyni, fréttarit-
ara DV á Hvolsvelli:
Flest íbúðarhús á Hvolsvelli eru
steinhús á einni hæð. Og lengi vel þótti
annað ekki fært en að húsin væru
byggö með þeim hætti.
Þess vegna finnst mönnum sem
brotið hafi verið blað í skipulags- og
byggingarmálum áHvolsvelli, erþetta
tvflyfta timburhús var reist hér á
staðnum. ,
Sem dæmi um hve menn hafa verið
fráhverfir timburhúsum sem þessum,
er að á árunum frá 1970 til 1973, þegar
veruleg hreyfing komst á byggingar-
framkvæmdir hér, leituðu tveir fyrir
sér með að byggja tvílyft timburhús.
Þá var hugmyndinni algerlega hafnað
sem fráleitri.
-JGH.
Tvilyft tímburhús 6 Hvolsvelli. Slík hús þykja ekki lengur fráleit þar um
slóðir. DV-mynd: Halldór Kristjánsson.
gólfteppi á ótrúlega hagstæðu
verði. Vegna sérstaklega hagstæðra
magninnkaupa bjóðum við BERBER
gólfteppi á aðeins kr. 390,- m2.
Dæmi:
Þú kaupir 40 m2, heiidarverð ca kr.
15.600,-, þú greiðir aðeins kr. 3.000,-
í útborgun og eftirstöðvar færðu
lánaðar í 6 mánuði.
Opið:
Mánud.—fimmtud. 9—18
Föstudaga kl. 9—19
Laugardaga kl. 9—12
BYGGINGAVORUR
HRINGBRAUT 120:
Byggingavörur
Gólf teppadeild
Simar: Timburdeild..................28-604
.28-600 Málningarvörur og verkfæri 28-605
28-603 Flisar og hreinlætistæki......28-430
HRINGBRAUT 120 (Aðkeyrsla frá Sólvallagötu)
NÝJUSTU TEPPAFRÉTTIR
BERBER