Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Qupperneq 32
32
DV,..FIMMTUDAGUR 10. NOVEMBER1983.
í gærkvöldi____________í gærkvöldi
Uppspretta andans er fundin
Hyldýpi andleysunnar í Dallas í
gærkvöldi varö mér loks ofviða. Eg
fór aö velta fyrir mér hvað langt
væri síöan ég heföi séö góöa hug-
mynd í sjónvarpinu. Lengi vel leitaði
ég árangurslaust uns brot héöan og
brot þaöan úr dagskrá þessa sama
kvölds fóru aö taka á sig mynd, Ný
örlagadagskrá í óteljandi þáttum
hófst. Efniviöur: auglýsingarnar,
aöalpersóna: Laddi.
Laddi er hundleiður og úttaugaöur
tölvuoperator í stóru fyrirtæki
(Digital). Aö loknum vinnudegi á
föstudegi snarar hann sér út í Möst-
una (Bílaborg) og ekur eins og vit-
laus maður heim því frændfólk kon-
unnar er væntanlegt í mat. Þegar
hann kemur heim er allt í drasli og
undirbúningur í ólestri. Ekkert getur
þessi kona gert eins og manneskja og
Laddi kippir eldhúsinu í lag á svip-
stundu (Ajax). Þaö veröur aö redda
snarlinu í hvelli og allir geta boröaö
franskar (Fransmann). Nú og ef ein-
hver er óánægöur, má redda skapinu
meö írsku kaffi ef konan fengist nú
bara til aö mala þaö (Santos). Pakk-
iö vill fara á óperuna og Laddi neyð-
ist til aö fara meö (Dilettó kaffi).
Hann læðist út í hléi og leitar í hóp
félaganna á körfuboltaæfingu (Sam-
bandiö). En jafnvel þar gleymir
hann ekki nöldrinu í konunni: „Það
þarf nýjar flísar í eldhúsiö (JL
húsiö) viö veröum aö fá smartara
klósett (J. Þorláksson og Norömann)
og hvaö meö blöndunartækin viö bað-
iö(Grohe). . . og jeggedí jagg.”
Laddi gefur skít í allt og fer á
diskótek (Steinar). Þegar hann
kemur heim vilja hvorki krakkarnir
né konan yröa á hann og bursta bara
tennurnar (Colgate). Mæhrinn er
fullur. Laddi skilur, fær sér leigt her-
bergi og kaupir gamlan Volkswagen
en einmitt þegar hann er aö skipta
um dekk á druslunni hitttir hann dís
sinna drauma (Almennar trygging-
ar) Þau ákveöa aö kynnast nánar og
fara saman í sólarferð (Útsýn). En
þriggja vikna drykkjuskapur gengur
fram af Ladda og hann kemur
áfengissjúkur og kærustulaus heim.
Hann leggst svo lágt aö reyna að
stela pizzu af gamalli konu sér til
matar (Pizzuhúsiö) og úr þvi blasir
aðeins meöferöin við (SÁÁ). Þaöan
snýr hann blásnauöur út í lífið en
man þá eftir aö hafa endumýjað í
happdrættinu einhvem tímann í
ölvímunni (Happdrætti Ht). Hann
fær stóra vinninginn. Nú skal lifa
heilbrigðu lífi meö útivem og fjalla-
feröum svo fjórhjóladrifinn Subam
(Ingvar Helgason) verður fyrir val-
inu. Laddi þeysir á nýja bílnum út í
óbyggöir, óvissu og nýr maður á vit
nýrra örlaga,— Endir á þessari
sápuóperu, sem hér meö er laumað
inn í dagskrána.
Gissur Sigurðsson.
Kjartan Erlendsson vélstjóri lést 28.
október sl. Hann fæddist í Reykjavík 7.
mars 1948, sonur þeirra Ástu Þor-
grímsdóttur og Erlends Jóhannssonar.
Kjartan lærði vélvirkjun hjá Héöni hf.
og lauk síöan námi frá Vélskóla
Islands 1974. Aö því búnu hóf hann
störf á sjónum sem vélstjóri og var
lengst af á skipum Eimskipafélags
Islands en tvö síðustu árin var hann á
Sandeynni. UtförKjartans verðurgerö
frá Fossvogskapellu í dag kl. 13.30.
Jóhann S. Hannesson fyrrverandi
skólameistari og skáld er látinn. Hann
fæddist á Siglufiröi 10. apríl 1919, sonur
hjónanna Hannesar Jónssonar og
Kristínar Bjargar Þorsteinsdóttur.
Jóhann varö stúdent frá MA og lauk
MA prófi í ensku og málvísindum viö
University of California í Berkeley
áriö 1945.- Jóhann var lektor í ensku viö
Háskóla Islands 1948—50. Kennari í
ensku og bókmenntum og jafnframt
bókavöröur viö The Fiske Icelandic
Collection viö Corneli-háskóla í New
York. Þá sneri hann heim og varö
skólameistari á Laugarvatni um 10 ára
skeið, frá 1960—70. Hann var starfs-
maöur fræösluskrifstofunnar í
Reykjavík 1970—72 og kenndi viö
Menntaskólann í Hamrahlið. Hann var
kvæntur Lucy Winston og eignuöust
þautvöbörn.
Pétur W. Mack lést 31. október sl.
Hann fæddist á Siglufiröi 21. desember
1950, sonur séra Róberts Jack og fyrri
konu hans Sigurlínu Guðjónsdóttur, en
hún lést þegar Pétur var tveggja ára.
Skömmu seinna gekk honum í móður
staö Guömunda Vigdís Siguröardóttú-,
seinni kona Róberts. Pétur vann lengst
af viö þaö starf er hann menntaöi sig
til, bifvélavirkjun. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Elín Guömundsdóttir,
eignuðust þau þrjár dætur. Fyrir rúm-
um fjórum árum fluttust þau til
Stykkishólms, þar sem Pétur vann
lengst af sem verkstjóri hjá Nýja-
bílveri hf. Fyrir tveim mánuöum réð
Pétur sig á Haföminn SH 122. Utför
Péturs var gerö frá Bústaðakirkju í
morgun kl. 10.30.
Elísabet Brynjúlfsdóttir, Ægissíöu 119
Reykjavík, andaðist 6. nóvember í
Landspítalanum.
Jónas Haukur Einarsson, blikksmíöa-
meistari, Sunnubraut 20 Kópavogi,
veröur jarösunginn frá Fossvogskap-
ellu föstudaginn 11. nóvember kl. 15.
Jakob Sveinsson, Egilsgötu 32, sem
andaöist þann 4. nóvember síöastliö-
inn, veröur jarðsunginn föstudaginn
11. nóvember kl. 16 frá Fossvogs-
kirkju.
Aðalfundir
Sundfélagið Ægir.
Aöalfundur félagsins 1983 verður haldinn
sunnudaginn 13. nóvember kl. 16 að Fríkirkju-
vegi 11. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin.
T
Knattspyrna
Uppskeruhátíð
hjá Víkingum
Uppskeruhátíð knattspymudeildar Víkings
verður í kvöld, fimmtudaginn 10. nóv. kl. 19.30
í félagsheimili Víkings við Hæðargarð.
íþróttir
Firmakeppni KKÍ
Þátttökutilkynningar í firmakeppni KKI,
þurfa að hafa borist skrifstofu KKI eigi
síðar en 1. desember nk. Þátttökutilkynning
er ekki tekin til greina nema henni fylgi
þátttökugjald kr. 1300,-.
Tapað -fundið
Tapað — Fundið
Fyrir nokkram dögum fannst, í kvikmynda-
húsinu Regnboganum, svart seðlaveski með
miklu af peningum í. I veskinu voru engin
skilríki né annað sem bent gæti á eigandann
og enginn hefur spurst fyrir um veskið þar. Ef
einhver hefur tapað veski með mikilli upphæð
í er viðkomandi beðinn um að hafa samband
við starfsfólk Regnbogans sem allra fyrst.
Tapað — fundið
Síðastliðið fóstudagskvöld voru nokkrir út-
lendingar staddir í veitingastaðnum Broad-
way að skemmta sér. Einn þeirra lagði frá
sér jakkann með veski í, en einhver gestanna
var svo hirðusamur að hirða veskið. Nú er
það ósk útlendingsins aö hann fái skilríkin til
baka því annars mun hann eiga í erfiðleikum
með sín ferðalög. Sá sem veit um skilríkin er
því beðinn um að segja til hvar veskið með
skilríkjunum er í síma 33212.
Hvar er Depill
Svartur og hvítur köttur sem heitir Depill
tapaöist frá Kambsvegi 16. Þeir sem vita
hvar hann heldur sig vinsamlegast hringi i
síma 35508 eða 76340.
Fundir
Kvenréttindafélag Islands
heldur hádegisfund á Lækjarbrekku fimmtu-
daginn 10. nóvember. Jóhanna Sigurðardóttir
alþingismaður kemur á fundinn og ræðir um
launamál kvenna.
Lútersvaka á vegum kirkju-
félags Digranesprestakalls
Á kirkjufélagsfundi sem haldinn verður í
safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg
fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20.30 veröur
dagskráin helguð Lúter. Ingimar Erlendur
Sigurðsson les úr nýjum ljóðum sínum um
Martein Lúter. Elín Þorgilsdóttir les kafla úr
ævisögu Lúters eftir Roland H. Bainton sem
út kemur innan skamms. Sýndar verða mynd-
ir úr sögu siðbótarinnar. Nýir félagar og
gestirvelkomnir.
Frá Migrensamtökunum
Mánudaginn 14. nóvember verður annar
fræðslufundur vetrarins að hótel Esju kl.
20.30. Gestur fundarins verður Einar M.
Valdimarsson, heila- og taugasjúkdóma-
læknir.
Haustfundur Snarfara
verður haldinn fimmtudaginn 17. nóvember
1983 í húsi Slysavamafélags Islands og hefst
kl. 20. Fundarefni: 1. félagsstarfið, 2.
Uppbygging hinnar nýju smábátahafnar
Snarfara, 3. Önnur mál.
Stjórnin.
Kvenréttindafélag íslands —
Hádegisverðarfundur
Kvenréttindafélag lslands heldur hádegis-
veröarfund í Lækjarbrekku fimmtudaginn 10.
nóvember nk. Jóhanna Sigurðardóttir
alþingismaður kemur á fundinn og segir frá
störfum framkvæmdanefndar um launamál
kvenna. Á ráðstefnu Alþýðuflokkskvenna sem
haldin var 24. sept. sl. var samþykkt að efna
til þverpólitisks samstarfs um launamál
kvenna og að konur reyndu þannig með sam-
stöðu sinni að hafa áhrif á að uppræta þann
launamun sem er á milli kvenna og karla í
þjóðfélaginu.
Félagsmenn KRFI og aðrir er hafa áhuga á
málinu eru hvattir til aö mæta á fundinn.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í
Reykjavík
heldur basar á Hallveigarstöðum laugar-
daginn 12. þ.m. kl. 14.00. Þeir sem vilja gefa
þangað kökur eða muni eru beðnir að koma
með það að Hallveigarstöðum eftir ki. 18 á
föstudag.
Verkakvennafélagið
Framsókn
heldur sinn árlega basar laugardaginn 19.
nóvember kl. 14 aö Hallveigarstööum. Tekiö á
móti munum á skrifstofu félagsins aö Hverfis-
götu8—10.
Basamefndin.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
heldur basar og flóamarkað að Haliveigar-
stöðum sunnudaginn 13. nóvember kl. 14.
Félagskonur og aðrir vinir sem ætla að gefa
muni á basarinn era beðnir að hafa samband
við Rögnu í síma 81759, Steiinunni, síma 84280
og Sigríði ,síma 23630.
Kvenfélag
Grensássóknar
heldur basar í safnaðarheimilinu við
Háaleitisbraut laugardaginn 12. nóvember kl.
15.00. Tekið verður á móti kökum og munum
föstudaginn 11. nóvember milli kl. 18 og 22.
Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 14. •
nóvember ki. 20.30. Meöal annars verður
tískusýning frá Verðlistanum. Allar konur
velkomnar.
Stjómin.
Ársháfíðir
Jöklarannsóknafélag íslands
Árshátíð félagsins verður í Snorrabæ við
Snorrabraut laugardaginn 12. nóv. 1983. Húsið
opnað kl. 19.00. Veislustjóri: Sveinbjörn
Björnsson. Borðræða:Ari TraustiGuðmunds-
son. Miðar fást í versluninni Vogaveri,
Goöarvogi 46, sími 81490 og óskast sóttir fyrir
fimmtudagskvöld 10. nóv. Skemmtinefnd.
Tilkynningar
Keflavíkurkirkja
Lútersvaka á fimmtudagskvöld kl. 20.30,
fermingarböm kynna Lúter. Myndasýning og
samtalsþáttur, kór Keflavíkurkirkju syngur
sálma eftir Lúter. Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
Músíktilraunir '83
Lifandi tónlistarkvöld í Tónabæ á
vegum SATT og Tónabæjar
Músíktilraunir ’83 era hugsaðar sem tækifæri
fyrir tónlistarmenn til að koma á framfæri
frumsömdu efni, óháðu ríkjandi sölulög-
málum hljómplötumarkaðarins, að gefa
tónUstarmönnum tækifæri til að gera
tUraunir í hljóðverum fyrst og fremst með
tónUstarlega þróun í huga.
Sex tUraunahljómsveitir spUa hvert kvöld
og komast tvær áfram til úrslita á lokakvöld.
Aheyrendur gefa hverju verki sem hljóm-
sveitirnar flytja stig. Þrjár stigahæstu hljóm-
sveitirnar á lokakvöldinu hljóta tuttugu tíma í
hljóðveri í verðlaun. Hver hljómsveit má
fiytja 4 frumsamin lög.
Ahersla er lögð á að hljómsveitum úti á
landsbyggðinni sé boðm þátttaka og á ein-
hvern hátt munu aðstandendur Músíktilrauna
’83 reyna að beita scr fyrir lækkun ferða-
kostnaðar vegna þátttöku, t.d. með útvegun
hljóðfæra o.s.frv. Verði meira framboð af
hljómsveitum en mögulegt verður að koma
fyrir á þessum kvöldum skal nefnd á vegum
SATT og Tónabæjar sjá um forval. Sama
nefnd sér um niðurröðun hljómsveita fyrir
hvert kvöld.
Nokkur hljóðver hafa gefið SATT og
Tónabæ 20 tíma til Músiktilrauna ’83. Eina
skilyrðið af þeirra hálfu er að vinningshljóm-
sveitirnar velji í samráði við viðkomandi
hljóðver hljóðstjóra sem svo hafi yfirumsjón
með upptökunni. Vinningshljómsveitimar
draga um hvaða hljóðver verður fyrir valinu.
Þátttaka: Hljómsveitir geta tilkynnt
þátttöku sína í Músktilraunir ’83 bréflega eða
símleiðis í Tónabæ, Skaftahlíð 24, sími 35935.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast fyrir
12. nóv. fyrir fyrsta M. T. kvöidið, annars 5
dögum fyrir hvert kvöld.
Músíktilraunir ’83 verða haldnar í Tónabæ á
hverjum fimmtudegi og er fyrsta kvöldið 17.
nóvember, síðan 24. nóv. 1. des. 8. des og 9.
des. úrslitakvöld.
Þekktar hljómsveitir í íslensku tónlistarlífi
verða fengnar til að spila sem gestir á hverju
kvöldi. Allir sem áhuga hafa á lifandi tónlist
eru velkomnir á þessa tónleika og er það von
aðstandenda Músíktilrauna ’83 að þetta
framlak leiði til aukinnar þróunar íslenskrar
dægurtónlistar og meiri breiddar í útgáfu.
SATT og TÓNABÆR.
Aukasýning á Guðrúnu
Vegna þess hve margir þurftu frá að hverfa á
síðustu sýningu Leikfélags Reykjavíkur á
leikritinu Guðrún verður aukasýning nú á
fimmtudagskvöldið og verður það allra
síðasta sýning verksins.
Sem kunnugt er byggir höfundurinn, Þór-
unn Sigurðardóttir, leikritið á Laxdælasögu,
ástum Guðrúnar Osvífursdóttur og sambandi
hennar við þá fóstbræður Kjartan Olafsson og
Bolla Þorleiksson. Leikendur í þessum hlut-
verkum hafa hlotið mikið lof fyrir leik sinn en
þeir era: Ragnheiður Elfa Arnardóttir,
Jóhann Sigurðarson og Harald G. Haralds-
son.
Alls koma 9 leikarar fram í sýningunni. Jón
Asgeirsson samdi tónlistina en höfundur er
jafnframt leikstjóri.
Sænska kvikmyndin
„Hástökkvarinn"
endursýnd í Norræna húsinu
Vegna góðrar aðsóknar að sænsku kvikmynd-
inni Hástökkvarinn, sem sýnd var í Norræna
húsinu á vegum kvikmyndaklúbbsins Norður-
Ijóss, verður önnur sýning í Norræna húsinu í
kvöld, fimmtudaginn 10. nóv., kl. 17.15.
Myndin fjallar um þorpsfiflið sem verður
að þorpshetju þegar hann vinnur hvem
sigurinn af öðrum í hástökki og nálgast óðum
heimsmetið.
Asko Sarkola leikur aðalhlutverkið og sýnir
óviöjafnanlegan leik, en hann mælir ekki orð
af vörum alla myndina.
Aðgöngumiðar eru seldir í bókasafni og við
innganginn og kosta 20 kr.
Hátíðarsamkoma
á fæðingardegi
Marteins Lúters
1 tilefni af þvi að 500 ár era liðin frá fæðingu
Marteins Lúters þ. 10. nóv. nk. gengst
Háskóli Islands fyrir hátíðarsamkomu í
hátíðasal háskólans.
Dr. Sigurbjörn Einarsson, fyrrv. biskup
Islands, flytur hátíðarræðuna. Jón Stefánsson
söngstjóri stjórnar söng.
Samkoman hefst kl. 17.15 í kvöld, 10. nóv.,
og eru allir velkomnir.
Til fyrrverandi nemenda
Tækniskóla íslands, vinnu-
veitenda þeirra og annarra
sem áhuga hafa á málefninu
Nefnd sem menntamálaráðherra skipaði
vinnur nú að athugun á stöðu Tækniskóla Is-
lands í menntakerfinu og áætlun um
framtíðarþörf fyrir margs konar tækni-
menntun og hvernig henni verði best fyrir
komið.
Meðal þess sem nefndin f jallar um er:
— Tengsl skólans við aðrar menntastofnanir.
— Nýjar námsbrautir í skólanum og fjöl-
breyttara fullnaðamám.
— Verkefniskólansásviðiendurmenntunar.
Nef ndin væri þakklát fyrir athugasemdir og
tillögur varðandi verkefni sitt þ.á m. varð-
andi alla menntun sem nú er veitt í skólanum.
Tillögumar má senda rektor og ræða þær
við hann eða skólanefndarmenn Tækniskóla
Islands.
Rektor.
Fréttatilkynning frá póst-
og símamálastofnuninni
(lollenska póst- og símamálastofnunin hefur
tilkynnt, að vegna verkfalis megi búast við
töfum á póstf lutningi til og frá Hollandi.
Sýning Guðbergs
heldur áfram
Sýning Guðbergs Auðunssonar, í sýningar-
salnum að Þingholtsstræti 23, hefur verið
framlengd tU 15. nóvember. A fjórða hundrað
manns hafa séð sýninguna í hinum nýja
sýningarsal sem einnig er vinnustofa Guð-
bergs. Sýningin er opin daglega frá kl. 3—6.
laugardaga og sunnudaga frá kl. 2—6.
Skipadeild Sambandsins
HULL/GOOLE: GAUTABORG:
Jan ,14/11 HvassafeU . 10/11
Jan 28/11 Hvassafell.... .22/11
Jan 12/12 HvassafeU . 6/12
Jan 27/12 Hvassafell.... .20/12
ROTTERDAM: KAUPMANN AHÖFN:
Jan 15/11 Hvassafell .11/11
Jan 29/11 HvassafeU . 23/11
Jan 13/12 Hvassafell . 7/12
Jan 28/12 HvassafeU , 21/12
ANTWERPEN: SVENDBORG:
Jan 16/11 DísarfeU . 9/11
Jan 30/11 Helgafell ,17/11
Jan 14/12 Hvassafell .24/11
Jan 29/12 HvassafeU , 8/12
HelgafeU ,13/12
HAMBORG:
Jan 18/11 AARHUS:
Jan 2/12 DisarfeU ,10/11
Jan 16/12 Helgafell 17/11
Jan 30/12 Hvassafell ,24/11
HvassafeU 8/12
HelgafeU 13/12
HELSINKI:
Helgafell 14/11
Helgafell 9/12 GLOUCESTER,
MASS.:
Skaftafell 29/11
LARVIK: Skaftafell . 29/12
Hvassafell 9/11
Hvassafell 21/11 HALIFAX,
CANADA:
Hvassafell 5/12 Skaftafell 30/11
HvassafeU 19/12 /SkaftafeU 30/12
Happdrætti Félags
einstæðra foreldra
Dregið hefur verið í happdrætti Félags
einstæðra foreldra, og hlutu eftirtalin númer
vinning:
2829, 4248, 2622, 60, 3842, 3112, 4287, 4398,
4078, 3598, 924, 4190,1245, 2802, 929,1940,1872,
3538,1567,1204.
Miðstjórn
Bandalags íslenskra
sérskólanema
samþykkti
á fundi sínum 25. október 1983 eftirfarandi
ályktun:
Eins og fram hefur komið að undanförnu er
það æUun stjórnvalda um þessar mundir að
skerða stórlega það fé sem Lánasjóður
íslenskra námsmanna telur sig þurfa á næsta
ári. Það er ljóst að þær upphæöir sem nefndar
eru í fjárlagafrumvarpinu fýrir árið 1984
duga hvergi nærri til þess að Lánasjóðurinn
geU sinnt lagalegri skyldu sinni.
Það á að heita svo að á Islandi ríki jafnrétti
til náms. Þaö er að allir hafi sama rétt til þess
að læra án tillits til stéttar eða stöðu.
Ef þessi stórfelldi niðurskurður á eftir að
eiga sér stað mun það beinlínis þýða að fjöldi
fólks verður að hætta námi, þar eð augljóst er
að fólk sem ekki hefur neinn fjárhagslegan
bakhjarl að styöjast viö verður aö treysta á
lán frá Lánasjóðnum.
Það skal enn einu sinni áréttað að náms-
lánin eru alls ekki gjafir heldur koma náms-
menn til meö að greiða þau að fullu til baka
með verðbótum.
Miðstjórn Bandalags íslenskra námsmanna
skorar á Alþingi og ríkisstjórn að standa við
gefin loforð og Iög um Lánasjóö íslenskra
námsmanna þannig að ekki þurfi að koma til
stórfelldrar fækkunar í skólum landsins.