Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1983, Blaðsíða 40
27022
ÁUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI11
86611
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
Dregur að landsfundi Alþýðubandalagsins:
Sterkar líkur benda til þess,
samkvæmt heimildum DV í Alþýöu-
bandalaginu, að Steingrímur Sigfús-
son alþingismaöur veröi næsti vara-
formaöur þess. Þá sem strjálbýlis-
fulltrúi, þar sem formaöurinn,
Svavar Gestsson, er höfuöborgarbúi.
Þetta er óbreytt staöa frá því aö
DV skýrði frá hræringum út af þessu
embætti í haust. Kjartan Olafsson
ritstjóri hefur veriö varaformaður
tvö síðustu tímabil, sem þingmaöur
og síðar frambjóðandi fyrir vestan,
þótt hann búi í borginni.
Aöalreglan er sú að menn haldi
ekki embættum i Alþýöubandaiaginu
nema tvö þriggja ára tímabil í senn,
þótt þaö þriöja komi til greina í und-
antekningum. Nú sem sagt hættir
Kjartan. Einnig hættir Guörún
Helgadóttir sem ritari og loks hættir
Tryggvi Aðalsteinsson sem gjald-
keri, bæöi eftir tveggja tímabila
setu.
Ljóst er af heimildum DV aö
kosning varaformanns veröur ekki'
átakalaus. Annar strjálbýlisfulltrúi
er talinn renna hýru auga til
stöðunnar, Hjörleifur Guttormsson.
Hann er þó ekki talinn leggja í kosn-
ingu á landsfundinum nema vera
öruggurumsigur.
ÞaÖ eru hins vegar konur í banda-
laginu úr Reykjavík, sem hafa
mikinn viöbúnaö og ætla að bjóöa
fram konu í varaformannsstööuna.
Álfheiður Ingadóttir blaðamaður er
einna heist til nefnd en ýmsar fleiri
munu enn koma til greina.
-HERB.
Nauðlending
á þjóðvegi
Böm fyrirá veginum
Frá Þórunni Reykdal frcttaritara DV í
Borgarfirði:
Einshreyfils flugvél TF-RPM nauö-
lenti á þjóðveginum við Hellubæ í
Hálsasveit á 4. tímanum á þriðjudag.
Vegna vélarbilunar hugðist flug-
maðurinn nauðlenda á veginum en 3
litlar skólastelpur voru þá á veginum.
Haföi þeim dottiö í hug aö ganga heim
hluta af leið sinni úr skóla án vitundar
foreldra sinna. Reyndi flugmaðurinn
þá aö fleyta vélinni lengra yfir vegin-
um með þeim afleiðingum aö hún lenti
á rafmagnslínu sem lá yfir veginn við
Hellubæ. Lendingin tókst vel, flugmað-
urinn og börnin sluppu ómeidd og vélin
skemmdist ótrúlega lítiö, dældaðist á
nefinu fyrir neöan skrúfuna. Hins veg-
ar slitnaði línan og rafmagnsstaui ar
brotnuðu. Rafmagnslaust var í Hvítár-
síöu og Hálsasveit í nokkra tíma á
þriðjudag og aftur á miövikudag vegna
viðgeröa. ÞÞR
Kosningar í
Mýrdalshreppi
Kosning til hreppsnefndar Mýrdals-
hrepps fer fram næstkomandi laugar-
dag, 12. nóvember. Mýrdalshreppur
veröur reyndar ekki til fyrr en um
áramót er formleg sameining
Hvammshrepps (Víkur í Mýrdal) og
Dyrhólahrepps tekur giidi. Samþykkt
var við almenna atkvæöagreiöslu í
hreppunum 14. nóvember 1982 aö sam-
eina hreppana frá og meö 1. janúar
1984.
Þrír listar eru í kjöri viö hrepps-
nefndarkosninguna, B-lista Framsókn-
arflokksins, D-listi Sjálfstæöismanna
og Z-listi Umbótasinna. Kosin veröur 7
manna hreppsnefnd og einnig fulltrúi
hreppsins í sýslunefnd Vestur-Skafta-.
fellssýslu.
Kosið veröur á tveimur stööum, i
Ketilstaðaskóla og Víkurskóia. ÖEF
LOKI
Úff, annar Steingrímur!
Teknirfyrir
að „smygla”
þorski!
Vélbáturinn Reykjaborg RE 25 hefur
veriö sviptur leyfi til dragnótaveiöa á
Faxaflóa. Veiöieftirlitsmenn kæröu
bátinn í lok síöustu viku vegna of
mikils þorskafla um borö en sam-
kvæmt reglugerð má þorskur ekki fara
yfir 15% af afla dagnótabáta.
Skipverjar höfðu blandað þorskinum
við kolann og síðan breytt yfir þannig
að þorskurinn sæist ekki. En
veiðieftirlitsmennimir fundu þennan
„smyglvarning” um borð og kæröu
bátinn.
Þetta er í annað skiptið sem
Reykjaborgin er kærð fyrir brot á
dragnótaveiðunum á Faxaflóa, og var
hún því svipt leyfi. Dragnótaveiöamar
þar eru mjög umdeildar og langt því
frá að menn séu á einu máli um ágæti
og nauðsyn þeirra. Því er haft mjög
strangt eftirlit meö því aö öllum
settum reglum sé fylgt og bátar óspart
sviptir leyfum og sektaöir ef þeir fara
ekki eftir þeim.
-klp-
Afli Húsavíkurbáta hefur
verið mjög lélegur að
undanförnu og á myndinni
sést afrakstur dagsróðurs
hjá einum þeirra. Gœftir
hafa verið lélegar og
bátárnir vart komist á sjó.
í október bárust um 300
tonn á land og það sem af
er nóvember er aflinn
orðinn rúmlega 80 tonn,
aðallega þorskur. Fyrsta
síld haustsins er vœntanleg
til Húsavíkur í kvöld og
verður hún unnin á
morgun.
DV-mynd E.Ó.
Verður Framsókn á móti
útvarpslagafrumvarpinu?
„Eg er mjög vantrúaður á þetta
frumvarp,” segir Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráöherra, og á þá
við útvarpslagafrumvarpiö sem
Ragnhiidur Helgadóttir hefur lýst
yfir að hún hyggist leggja fram eins
og það kom frá útvarpslaganefnd.
„Eg er ekki þeirrar skoðunar aö
þaö sé mögulegt aö reka hér margar
útvarpsstöövar í landinu, ég vil reka
hér myndarlegt ríkisútvarp, en ef á
að fara aö heimila mjög mörgum
aðilum að reka útvarp hérna hlýtur
samkeppnin þeirra á milii að bitna
mest á þeim sjálfum og draga þá
niður,” segir Halldór.
Honum finnst aö menn á
Reykjavíkursvæðinu gieymi því að
við búum fá í stóru landi. Stundum sé
eins og mönnum finnist að hér geti
hlutirnir verið eins og í Bandaríkjun-
um og meðai annarra stórþjóða.
Halldór viidi ekkert um þaö segja
hvort þessi afstaöa hans þýddi þaö
að framsóknarmenn myndu ekki ljá
máls á því aö frumvarpiö veröi lagt
fram í nafni ríkisstjórnarinnar,
málið yrði til umræöu í þingflokki
framsóknarmanna næstkomandi
mánudag og þar yrði afstaða tekin tU
málsins.
SþS