Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 14
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 49., 52. og 59. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Lækjargötu 18, neðri hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Rósinkars Ólafssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Jóhanns Þórðarsonar hdl., Veð- deildar Landsbanka íslands og Búnaðarbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 18. nóvember 1983 kl. 13.45. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 49., 53. og 56. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Kelduhvammi 4, jarðhæð, Hafnarfirði, þingl; eign Bessa H. Þorsteinssonar, fer fram eftir kröfu Lifeyrissjóðs verzlunarmanna á eigninni sjálfri föstudaginn 18. nóvember 1983 kl. 14. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 1., 7. og 10. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Ásbúð 102 Garðakaupstað, þingl. eign Bjarnars Kristjánsson- ar, fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands, Baldurs Guðlaugssonar hrl. og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 18. nóvember 1983 kl. 16.15. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 49., 53. og 56. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Arnarhrauni 4—6, 2. h.t.h., Hafnarfirði, þingl. eign Rafns Sverrissonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri f östudaginn 18. nóvember 1983 kl. 15.45. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Flókagötu 7, neðri hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Birgis Gestssonar og Hellen Lindu Georgsdóttur, fer fram á eign- inni sjálfri föstudaginn 17. nóvember 1983 kl. 14.15. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Álfaskeið 82, 2. h.t.h., Hafnarfirði, þingl. eign Erlends Ingvaldssonar og Fjólu V. Reynisdóttur, fer fram á eign- inni sjálfri föstudaginn 18. nóvember 1983 kl. 15.15. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Hlíðarbyggð 19 Garðakaupstað, þingl. eign Einars Krlstbjörnssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 18. uóvember 1983 kl. 16.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Dv! 1lRfÖjflM(í'tjfc 15! itóýfetóBÉÍ'ít’í983. Hálendisferðir III: BREYTINGAR Á SPRENGISANDSVEGI I síðustu grein enduðum við á læstum virkjunarvegum. Vonandi er hér um einhvem misskilning að ræða, sem verður færöur til betri vegar þegjandi og hljóöalaust, og ekki meira um það að sinni. Sprengisandur Næsti aöalfjallvegur landsins á leið okkar um hálendið er Sprengisands- leið. Á þessari leið hafa oröið örar breytingar nú á síðustu tímum, aðal- lega vegna virkjunarframkvæmda. Verið er að safna saman öllum spræn- um, stórum og smáum, á stóru svæði og mynda miðlunarlón og heyrist nýtt nafn, Kvíslaveitur, í því sambandi. Þetta þýöir að víða verður að færa akveginn til og hefur þegar verið gert aö einhverju leyti. Því miður hef ég ekki litið þessar framkvæmdir eigin augum ennþá en hef samt hugmynd um hvaö verið er aö gera. Þessar framkvæmdir þýöa, aö vegurinn inn undir Tungnafellsjökul snarbatnar og nálgast það að verða fær öllum bílum, og ennfremur hefur vegurinn verið færður nær Þjórsá og hinum gróður- sælu og fögru Þjórsárverum, sem auð- vitað eru ekki aðeins vestan Þjórsár. Þama er víða stórkostlega fagurt og andstæður náttúrunnar mjög svo áber- andi. Auðnir, sandar og melar skiptast á viö gróðursæl og blómum skrýdd vot- lendissvæði meðfram Þjórsá. Þessi svæöi heilla óhjákvæmilega alla ferða- menn, innlenda sem erlenda, og flokk- ast meö perlum öræfanna. Þau má meö engu móti skemma, þó aö nokkrar breytingar og lagfæringar geti verið réttlætanlegar og nauðsynlegar. Bílaumferö truflar ekki fuglalíf að Kjallarinrt EinarÞ. Guðjohnsen verður bezt gerð út um bílgluggann. Ef menn eru í vafa um þessa staðreynd ættu þeir að reyna sjálfir að huga að fuglalífi út um bílgluggann og að stíga, út úr bílnum og sjá muninn, og þessar tilraunir má gera hvar sem er, innan borgarmarkanna ef svo vill verkast. Farartálmar Við Jökuldal í Tungnafellsjökli, Nýja Jökuldal eða Nýjadal, hvert nafnið sem menn annars vilja nota, eru einu farartálmamir á Sprengisandsleið. Þar eru Nýjadalsá og Hagakvíslar, báöar með jökulvatni og mis-vatns- miklar, og engar brýr. Þessar ár eru ekki fyrir fólksbíla og því er Sprengi- sandur sem heild ófær litlum fólksbíl- um og getur jafnvel orðiö erfiður jeppum. Þessar ár er hins vegar auövelt að brúa, og til þess veröur að • „Menn skyldu þó varast aö fara míkið inn á reginfjöll á litlum og stundum vanbúnum fólksbflum, því að víða er grýtt og auðvelt að skemma góðan bfl og sitja hjálpar- laus einhvers staðar úti í víðáttunni.” neinu ráði né heldur dýralíf, það er staðreynd. Eg hef farið í rútubíl um heimkynni villidýra í Krúger-þjóð- garðinum í Suður-Afríku, og bílaum- ferð virðist ekki trufla líf dýranna, þau láta sig slíka umferð engu skipta. Hins vegar taka þau til fótanna um leið og gangandi maöur sést utan bíls. Það er því staðreynd, aö f ugla- og dýraskoðun koma fyrr en síðar; á aðalfjallveg- unum eiga ekki að vera neinar hættur. Norðan Tómasarhaga taka við enda- lausar melaöldur og varla stingandi strá nokkurs staöar fyrr en komið er norður á Fossgilsmosa viö Kiðagil. Fjallasýnin er samt mikilfengleg á báða bóga og svo erum viö þarna nærri landsmiðju. Já, væri ekki athugandi að Samstarf okkar við Norðurlönd Samskipti okkar viö frændur okkar á Norðurlöndum eru vinsælt umræðuefni í blöðum og öðrum fjölmiölum. Það líður varla svo mánuður, að ekki sé rætt eða deilt um ýmsar hliðar þessara mála. Og samkvæmt nýlegri skoðana-, könnun er vilji fyrir því á Islandi að halda áfram miklum og góöum tengsl- um við hinar Noröurlandaþjóðimar. I þessu efni er rétt að víkja nokkrum orðum að einuin þætti þessara mála, sem varla hafa verið gerð nógu góð skil. Er þar átt við mikinn innflutning okkar frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi og þá staöreynd, að þessar þjóðir kaupa lítið af okkur á móti. Tölur Hagtíðinda Svo nýlegt og einstakt dæmi sé tekið úr september-hefti Hagtíðinda, sem; gefin eru út af Hagstofu Islands, þá. fluttum viö inn frá Danmörku í jan,- ágúst á þessu ári (1983) fyrir kr. 1.193.915 (þús. kr.). á sama tíma fluttum við út til Danmerkur fyrir kr. 168.192 (þús. kr.). Ef þessar tölur eru sléttaðar af, þá munar þar rúmum 1.000 milljónum króna. Þegar sömu tölur eru teknar fyrir Svíþjóð, en innflutningur kr, 1.071.548 ; (þús. kr.) en útflutningur kr. 149.987 1 (þús. kr.). Þarna munar tæplega 1.000 milljónum. Enn má nefna Noreg, en þaöan er flutt inn í jan.-ágúst fyrir kr. 903.887 (þús. kr.) en út fyrir kr. 74.057 (þús. kr.) Viöskipti við Finnland fyrir sama tíma eru verulega minni. Inn- flutningur kr. 314.072 (þús. kr.) en út- flutningurkr. 110.609 (þús. kr.). Ofanritaður innflutningur er skráður Kjallarinn af Hagstofu cif. til Islands, en útflutn- ingur er fob. Hrikalegur viðskiptahalli Ef þessar tölur eru teknar saman og einfaldaðar, þá höfum við á 8 mánuðum flutt inn vörur frá Norður- löndum fyrir um 3.000 milljónir um- fram útflutning okkar til sömu landa. Breytt í dollara eru þetta rúmlega 100 milljónir dollara. Bandaríkin eru um 1000 sinnum stærri að fólksfjölda en Island. Því samsvarar 1 milljón dollara hjá okkur einni „billjón” dollara hjá þeim. Það þættu skrýtin viöskipti, ef Bandaríkin flyttu inn á 8 mánuðum fyrir meira en 100 „billjón” dollara frá einhverju landi eða löndum umfram útflutning til sömu landa. Dæmið um Japan Mikið hefur verið rætt um innflutn- ing frá Japan til Bandarikjanna, en hann hefur verið hagstæður fyrir Japani. Þetta hefur valdiö deilum milli þessara þjóða og hafa Bandaríkin krafist aukinna möguleika til sölu á vörum sínum til Japan og áætlanir eru uppi um það, að japönsk fyrirtæki byggi verksmiðjur í Bandaríkjunum til að jafna hallann á viöskiptunum. Hér er þó um hlutfallslega miklu lægri tölur að ræða heldur en hinn óhagstæði viðskiptajöfnuður okkar við Norðurlönd. A síðasta ári eða 1982 var innflutn- ingur til Bandaríkjanna frá Japan 37,7 „billjón” dollarar, en útflutningur á móti frá Bandaríkjunum til Japan 21,0 „billjón” dollarar. Mismunur er því tæplega 17 „billjónir”, en þessi óhag- stæði viöskiptajöfnuður fyrir Banda- ríkin hefur heldur farið vaxandi síðustu ár. Eins og áður segir, þá eru þetta smámunir, ef miðað er við við- skipti okkar við Norðurlönd og tekið er mið af stærð hlutaöeigandi landa. Nýlendustefna Nýlendustefna er óskemmtilegt orð og heldur óvinsælt enda hafa flestar eöa allar gamlar nýlendur verið aflagðar og þeim gefið frelsi. I dag er oft rætt um nýja nýlendu- stefnu og er þá átt við viðskipti milli þjóöa, þar sem alla eðlilega gagn- kvæmni skortir. Er þá stundum sagt, að þetta eða hitt landið sé viðskipta- nýlenda eins eða annars. Þangað er þá mikið selt, en lítið keypt á móti. Þetta eru að vísu stór orð og ekki er meö þessu sagt, aö við séum viðskipta-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.