Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Side 30
30
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NÖVEMBER1983.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Mikligarður, stærsti stórmarkaður á landinu að opna:
Verslunargólfið
er hálfur hektari
— samnorræn innkaup vegna samvinnu við stórmarkaði á Norðurlöndum á að lækka vöruverð
Mikligaröur, stærsta verslun
landsins, veröur opnuö kl. 9 á
fimmtudagsmorgun. Mikligaröur er
í Holtagörðum, á mótum Kleppsveg-
ar, Holtavegar og Elliöavogs þannig
aö greiöfært er bæöi úr vesturbæ og
Breiöholti, svo eitthvað sé nefnt.
Þaö var ys og þys í versluninni er
DV-menn komu þangað til aö ná tali
af Jóni Sigurðssyni framkvæmda-
stjóra en eigendur Miklagarðs eru
KRON, Sambandiö og kaupfélögin í
- Hafnarfirði, Kjalamesþingi og á
Suðurnesjum.
Verslunarhúsnæöi Miklagarös er
7680 fermetrar, sem nemur um 2 1/2
prósenti af samanlögöu verslunar-
húsnæöi í Reykjavík. Sölugólf inni
eru 4700 fermetrar eöa rétt um 1/2
hektari. Kælikisturnar rúma alls 6
tonn af frystum mat. Innkaupavagn-
ar eru 450 sem samsvarar því að allir
íbúar á Þingeyri gætu komið sam-
tímis og verslað í Miklagaröi. Af-
greiöslukassar eru 14, tölvutengdir.
Starfsmenn eru um 100. Utanhúss
verða bílastæöi fyrir fleiri en 500
bila.
20 deildir eru í Miklagarði og á
vöruvalið sér ekki hliðstæðu í stór-
markaöi hér.
I matvörunni eru yfir 7000 vöruteg-
undir og -merki á boöstólum. Á 10
metra löngu kjötboröi eru fram-
reiddar allar tegundir ófrosins kjöts
og leiöbeina kjötmeistarar og mat-
sveinar um meðferð. Grænmetistorg
hefur undir einu þaki f jölbreytt úrval
garðávaxta og suörænna aldina, sem
viðskiptavinurinn velur og vigtar.
Það var mlklll sannfæringarkraftur í Jóni Sigurðssyni framkvæmdastjóra, er
hann var að útskýra hið lága vöruverð fyrir DV-mönnum. DV mynd: GVA.
Stórt hlaðborð er með brauöum frá
þekktum bakaríum.
Vmislegt fæst í Miklagarði um-
fram það sem menn eiga aö venjast í
stórverslunum hérlendis. Tímarit og
dagblöö fást í bókadeild, sem einnig
selur ritföng. Verkfæri og málning
fást þar, svo og sportvörur og blóm. I
snyrtivörudeild má velja um ýmis
þekkt vörumerki meö aðstoð sér-
fræðinga. Og í einu horninu eru olíur
á bílinn, bón, tvistur og aðrar rekstr-
arvörurbifreiöa.
Jón Sigurösson segir aö lægsta
vöruverð sé markmiö Miklagarös.
Hann segir aö stærö, vöruúrval og
nýjasta tækni séu við þaö miðuö aö
enn megi lækka vöruverð frá því sem
best hefur verið gert í þeim efnum,
án þess aö bjóöa annað en góöar
vörutegundir.
Samnorræn innkaup og samstarf
við stórverslanir á Noröurlöndum
gera þaö að verkum aö Mikligaröur
nýtur meiri magnafsláttar en aörir
vörumarkaöir einir og sér. Þá eru
tölvutækni og nútíma tækjakostur
hagnýtt til að lækka rekstrarkostnað
svo sem vegna birgöahalds, orku-
notkunar og rýmunar.
Allt um þaö þá er veriö aö opna
stærsta og glæsilegasta vörumarkað
til þessa og neytendur munu svo fella
sinn dóm yfir vöruveröinu.
Umsjón:
GissurSigurðsson
ogÓlafurGeirsson
NEC tölvan sem Benco flytur nú Inn. ^
BENCO MEÐ NYJA
EINKATÖLVU
Benco hf. setti nýverið á markaö
einkatölvu frá japanska rafeinda-
risafyrirtækinu NEC. Tölvan er
nefnd NEC APC (Advanced Person-
al Computer), er 16-bita og vinnur
m.a. undir stýrikerfunum NS-DOS
og CP/M-86. Það sem þessi tölva
virðist hafa framyfir sambærilegar
einkatölvur er öflugri örtölva, meirai
gagnarými á diskettum eöa ein millj-
ón stafir pr. diskettu, flutningur
gagna á milli vélarinnar er einstak-
lega sveigjanlegur og þá hefur hún
allt að 1.048.576 myndfleti á skjánum
í einu.
Benco hf. er einkaumboðsaöili
NEC á Islandi og hefur þegar gert
samning viö fyrirtækið Islensk for-
ritaþróun varöandi hugbúnað fyrir
öll venjuleg viöskiptaleg verkefni en
hægt er einnig aö fá hugbúnað frá
fleiri aðilum. Benco.býður tölvuna á
sérstöku verði til áramóta.
Góðar atvinnuhorfur í iðnaði
Könnun, sem Félag íslenskra iön-
rekenda geröi um miðjan september
meöal 39 iönfyrirtækja í landinu,!
leiddi m.a. í ljós að yfirleitt höföu;
fyrirtækin haldiö óbreyttum starfs-
mannafjölda þaö sem af var árinu.
Jafnframt bjuggust talsmenn fyrir-
tækjanna viö aö þaö ástand héldist
óbreytt eöa batnaöi jafnvel til ára-
móta. Þannig svöruöu 70 prósent að-
spuröra aö þeir myndu halda
óbreyttum mannafjölda, 30% aö
starfsmönnum yrði f jölgað en enginn
gaf í skyn fækkun starfsmanna. Því
virðast atvinnuhorfur í iðnaði góöar
þessa stundina.
Ráðstefna um
umbúðamál
Laugardaginn 26. nóvember nk.,
frá kl. 13 til 17, gengst Fll í samvinnu
við Iöntæknistofnun Islands fyrir
ráöstefnu um umbúöamál. Á ráð-
stefnunni verður fjallaö um stööu
umbúðatækni í dag, notkun staölaðra
umbúöaeininga og væntanlega þróun
á þessu sviöi á næstu árum.
Á ráðstefnunni munu innlendir
framleiöendur og notendur umbúða
flytja erindi um stööu innlendra um-
búðaframleiöslu og notkun umbúöa í
íslensku atvinnulífi. Einnig mun
Terje Lunde, framkvæmdastjóri
Den Norske Emballasjeforening,
flytja erindi um væntanlega þróun í
umbúöatækni á næstu árum.
Ráðgjafarfyrirtæki
í matvælaiðnaði
Nýlega stofnaöi Hákon Jóhannes-
son matvælafræöingur B.SC. fyrir-
tækiö Matvælatækni er veitir ráögjöf
í matvælaiðnaði. Starfssviö fyrir-
tækisins er ráðgjafar- og þjónustu-
starfsemi til fyrirtækja í matvæla-'
framleiöslu. Aðstoðar þaö við verk-
efnaval, nýjungar og endurbætur í
framleiðslu, einnig gæöaeftirlit,
geymsluþolsathuganir og vörumerk-
ingar. Og viö val umbúöa og véla
og ef óskaö er námskeiðahald inn-
an fyrirtækjanna sjálfra. Hafa nú
þegar verið haldin nokkur námskeiö
varöandi hreinlæti og hreinlætiseftir-
lit.
Þá er í bígerð hjá fyrirtækinu aö
koma sér upp eigin rannsóknarstofu
til þess aö geta annast þjónusturann-
sóknir fyrir iönfyrirtæki í matvæla-
iönaöi. Fyrirtækiö er nú til húsa aö
Fellsmúla 4 í Reykjavík.
Tvenn hjón úr Reykja-
vík kaupa Helluprent
Starfsemi Helluprents á Hellu er
nú endanlega lokiö með þvi að tvenn
hjón úr Reykjavík keyptu allar vélar
fyrirtækisins nýverið. Það eru hjónin
Vigdís Osk Sigurjónsdóttir, setjari
hjó DV, og Guömundur Þormóðsson,
framkvæmdastjóri, og Fríða Björg
Aöalsteinsdóttir, setjari hjó DV, og
Oddgeir Guöfinnsson, prentari og
setjari,; sem vinnur hjá Morgunblað-
inu sem umbrotsmaöur.
Alveg ó næstunni munu þau stofna
fyrirtæki um prentsmiðjureksturinn,
og eru þau aö leita aö heppilegu
húsnæði á Reykjavikursvæðinu. Vél-
búnaöurinn spannar allt fró setjara-
vélum til bókbandsvéla og er allur
offset-búnaöurinn nýlegur.
Kristján
Jóhannsson
framkvæmda
stjóri AB
Kristján Jóhannsson tekur
við framkvæmdastjóm AB um
áramótin. Hann varö stúdent
frá VI 1972 og lauk HA-prófi í
hagfræöi frá Viðskiptaháskól-
anum í Kaupmannahöfn 1978 og
cand. merc. prófi frá sama
skóla ’81. Meö námi starfaði
hann hjá Statistik og Privat-
banken í Kaupmannahöfn.
Hann var hagfræðingur FH ’81
og kennari í hagfræöi við viö-
skiptadeild Hl og á fjármála-
námskeiöum Stjómunarfélags
Islands frá ’82. Kristján er 32
ára.
Aðalsteinn Snævar
Guðmundssonfjár-
málastjóri Miklagarðs
Aöalsteinn Snævar Guð-
mundsson hefur veriö ráöinn
fjármálastjóri og staögengill
framkvæmdastjóra Mikla-'
garös. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akur-
eyri ’71 og viöskiptafræöiprófi
frá Hl áriö ’76. Aö prófi loknu
hóf hann störf í fjárreiöudeild
Flugleiða og sl. fjögur ár hefur
hann verið fulltrúi í hagdeild
félagsins. Aðalsteinn Snævar
hefur tekið þátt í undirbúningi
Miklagarðs síöan í ágúst í
sumar. Hann er 33 ára.
Sveinbjöra B jömsson
framkvæmdastjóri
Ofnasmiðjunnar
Sveinbjörn Björnsson hefur
veriö ráöinn framkvæmda-
stjóri Ofnasmiðjunnar hf. Aö
loknu forskólanámi í Tl, nam
hann rekstrartæknifræði í Agd-
er ingeniör distrikt höjskole í
Noregi og lauk prófi ’76. Þá
vann hann sem aöstoöarmaöur
forstjóra SVR í eitt ár en fór
svo í framhaldsnám í sama
skóla í hálft annaö ár og nam
véltæknifræði og hagfræöi. Aö
því loknu vann hann hjá
Rekstrartækni hf. í tvö ár og
síöan hjá Skeljungi í þrjú ár
sem deildarstjóri rekstrar- og
framkvæmdasviðs. Sveinbjörn
er31árs.