Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Qupperneq 32
32
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983.
Andlát
Guðmunda Guðmundsdóttir, Klepps-
vegi 28, andaðist í Landspítalanum 13.
nóvember.
Kristján Örn Kristjónsson þjónn,
Mánahlíð viö Suöurlandsveg, andaðist
í Landakotsspítala laugardaginn 12.
nóv.
Marta Ölafsdóttir, Drápuhlíö 2, lést 12.
nóvember.
Guðjón Kristinn Þorgeirsson, Sund-
laugavegi 26, lést í St. Jósepsspítaia
sunnudaginn 13. nóvember.
Björn Theodórsson andaðist í Moss,
Noregi, ll.þ.m.
Þorsteinn Magnússon frá Vestmanna-
eyjum, Litlahjalla 7 Kópavogi, lést 12.
þ.m.
Ólafur Oddgeir Kristinsson, Fossheiði
1 Selfossi, andaðist 13, nóvember í
Sjúkrahúsi Suðurlands.
Helgi Kristjánsson húsasmíðameist-
ari, Lambastööum Seltjarnanesi,
andaðist sunnudaginn 13. nóvember í
Vífilstaðaspítala.
Kristján Nói Kristjánsson bátasmiður,
Túngötu 9 Húsavík, sem andaðist 7.
nóv., veröur jarðsettur frá Akureyrar-
kirkju fimmtudaginn 17. nóvember kl.
13.30
Þór ý Jónsdóttir, Bergstaöastræti 6c,
veróur jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 16. nóvem-
ber kl. 15.
Tilkynningar
Sími AA-samtakanna
Eigir þú við áfengisvandamál að stríða þá er
sími samtakanna 16373 milli kl. 17 og 20 dag-
lega.
Opið hús hjá Geðhjálp
Geðhjálp. Félagsmiðstöð Geðhjálpar, Báru-
götu 11 Rvík. Opið hús laugardaga og sunnu-
daga kl. 14—18. Þetta „opna hús” er ekki
einskorðað við félagsmenn Geðhjálpar heldur
og aðra er sinna vilja málefnum félagsins.
Simi 25990.
Á almennum fundi Félags sagnfræðinema
sem haldinn var mánudaginn 7. nóvember
var samþy kkt eftirfarandi ályktun:
Almennur fundur Félags sagnfræðinema
krefst þess að farið verði að lögum við út-
hlutun námslána. Fundurinn leggur sérstaka
áherslu á að útvegað verði nægilegt f jármagn
til að Lánasjóður íslenskra námsmanna geti
staðið við skuldbindingar sínar við náms-
menn í desember.
Tilkynning
Jólakort með myndum eftlr Bjama Þ.
Valdimarsson. 1 tilefni af 70 ára afmæli
Bjama Þ. Valdimarssonar sem var fæddur
8/11 1913, d. 1972 hef ég ákveðið að gefa út
jólakort með myndum eftir listmálarann.
Þeir sem hafa áhuga á að senda vinum og
ættingjum svona kort hafi samband við mig í
tæka tíð. Meðfylgjandi mynd er af Bjama list-
málara er hann sat fyrir hjá Hafliða
Magnússyni listamanni mánuði áður en hann
lést.
Jón Kr. Olafsson, Bíldudal.
Nýtt jólakort frá
Ásgrímssafni
Jólakort Ásgrímssafns 1983 er komið út. Það
er prentað eftir vantslitamyndinni Kiðárbotn-
ar í landi Húsafells. Myndin var máluð 1948.
Kortið er í sömu stærð og fyrri listaverka-
kort safnsins (16x22 sm) og er með
íslenskum, dönskum og enskum texta á bak-
hlið. Grafik h/f offsetprentaði. Listaverka-
kortið er til sölu í Ásgrímssafni, Bergstaða-
stræti 74, á opnunartíma þess, sunnudögum,
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13.30 —
16.00 ogí Rammagerðinni, Hafnarstræti 19.
Hjálpræðisherinn
Þriðjudag kl. 20.30: Fagnaðarsamkoma fyrir
majórana Sólveigu og Svend Bjömdal,,
æaskulýðsleiðtoga Hjálpræðishersins. Ingi-
björg og Oskar Jónsson stjóma. Fjölmennið á
her.
Átthagasamtök
Héraðsmanna
hafa nýlokið ellefta starfsári sínu. Þau mál
sem hæst hefur borið á árinu auk hefðbundinna
félagsstarfa eru: Áframhaldandi endumýjun
á gamla læknisbústaðnum á Hjaltastað en þar
hófust störf fyrir tveim áram. Allt starf á
Hjaltastað hafa félagsmenn unnið í sjálfboða-
vinnu og hreint með ólíkindum hvað unnist
hefur. Otrúlega mikið hefur borist af gjöfum
til hússins bæði í peningum og munum. Hæst
ber þó gjöf Sigurðar Elíassonar, en hann gaf
tvær útihurðir, flutti þær á staðinn og lét setja
þær í. Að öðru leyti hafafélagsmenn aflað
tekna til framkvæmda með sölu á blómum,
kökum og handunnum munum gefnum af
áhugafólki. Á vegum félagsins hefur staðið yfir
undirbúningur að gerð styttu sem meiningin
er aö reysa Sigfúsi Sigfússyni þjóðsagnarit-
ara í samvinnu við austfirska aðila. Er von
okkar að hún verði afhjúpuð á 130 ára fæðing-
arafmæli Sigfúsar sumarið 1985. Árlegur
haustfagnaður Atthagasamtakanna verður
haldinn í Domus Medica fimmtudaginn 17.
nóvember kl. 2030. Spiluð verður félagsvist
og vonumst við eftir að félagsmenn fjölmenni.
Stjórnin.
Háskólasjóður Háskóla
íslands gefur út kort
Háskólasjóður Háskóla Islands hefur gefið út
tvö kort eftir verkum Þorvalds Skúlasonar í
eigu Listasafns Háskóla Islands.
Verkin era, skip í höfn (1942, olíulitir,
90X100) og stóðhestar (1941, olíuUtir,
107X160).
Megintilgangur Háskólasjóðs, samkvæmt
skipulagsskrá, ef að efla menningarstarfsemi
innan Háskólans.
Kortin eru gefin út í takmörkuðu upplagi.
Auk þess sem Háskólinn hyggst með þessu
efla Háskólasjóð hefur hann þá ánægju að
bjóða til kaups kort með myndum eftir nafn-
togaðan Ustamann.
Kortin eru boðin tU sölu stofnunum og fyrir-
tækjum og fást einnig á aðalskrífstofu Háskól-
ans og í Norræna húsinu.
HáskóU Islands.
Æskulýðsleiðtogi Hjálp-
ræðishersins heimsækir
ísland
Hjálpræðisherinn á von á góðum gestum.
Majóramir Svend og Sólveig Björndal, sem
veita forstööu æskulýðsstarfi Hjálpræðishers-
ins í Noregi, Færeyjum og Islandi, koma tU
lslands í fyrsta sinn. Þau munu dveljast hér á
landi frá 14. til 27. nóvember. Fyrsta sam-
koman verður í Reykjavík þriðjudaginn 15.
nóvember. Þann 16. og 17. verða samkomur á
tsafirði, þann 18., 19-og 20. á Akureyri og siðan
verða samkomur í Reykjavík auk þess sem
samkoma verður í Hveragerðiskirkju 23.
nóvember.
Sólveig og Svend Björndal era norsk. Þau
hafa í rúmlega tuttugu ár starfað sem trúboð-
ar í Afríku, nánar tiltekið í Zimbabwe, auk
þess sem þau störfuðu um skeið i Suður-
Afríku. Meðan á heimsókn þeirra stendur hér
mun efnt til sérstakra kristniboðskvölda þar
sem þau hjónin munu segja frá starfi sínu í
Af ríku í máli og myodum.
Nú hættum við að reykja
5-daga áætlun — námskeið fyrir þá sem vilja
hætta reykingum — verður í Reykjavík 20,—
24. nóvember nk. Staður: Lögberg, Háskóla
íslands. Tími: kl. 20. Kostnaður: Námskeiðs-
gjald er kr. 450 og greiðist fyrsta kvöldið.
Innritun: Innritun i simum 13899 og 19820 á
skrifstofutíma.
Aö vanda veröur einvalallð lækna að starfi.
Aðalleiðbeinandi og stjórnandi verður sem
áður Jón Hjörleifur Jónsson.
Islenska bindindisfélagið stendur fyrir
námskeiöinu með aðstoð Krabbameinsfélags
Reykjavíkur. 5-daga áætlunin er öllum opin.
Notum gullið tækifæri til að losna við reyking-
ar.
Isienska bindindisfélagið.
Rangæingafélagið
Kvöldvaka
Rangæingafélagið efnir tii kvöldvöku þriðju-
daginn 15. nóv. nk. kl. 20.30 í Hreyfilshúsinu
v/Grensásveg. Hreinn Haraldsson
jarðfræðingur flytur erindi um Markarfljót og
sýnir litskyggnur. Eftir kaffihlé stjórna
Guðrún Guðmundsdóttir og Herdís Þorgeirs-
dóttir söng og flytja gamanmál. Allir
velkomnir.
Kvenfélagið Fjallkonurnar
Haldið verður upp á 10 ára afmæli félagsins
þriðjudaginn 15. nóvember kl. 20.30 í Gerðu-
bergi. Félagskonur era hvattar til að koma í
kaffi.
í gærkvöldi____________í gærkvöldi
Brandenburg og Belli
Heimur Jóhönnu, danska sjón-
varpsleikritið sem sýnt var í sjón-
varpinu í gærkvöldi, hefur að öllum
líkindum virkað sem hrein merking-
arleysa á þá sjónvarpsnotendur sem
ekki þekkja nöfnin Brandenburg,
Belli og Cæsar í sínu rétta samhengi.
Hér er ekki verið að ræða um þýska
greifa, símtól né keisara heldur Otto
Brandenburg, fyrsta rokkara Dan-
merkur, Peter Belli, fyrsta bítil
sama lands og svo Cæsar sem var
helsta stjarna Dana á gæru- og
bongótímabilinu þegar fólk skreytti
sig meö blómum og hélt því staöfast-
lega fram að það elskaði allt sem lífs-
anda dró.
Allar þessar stjörnur fóru með
hlutverk í danska leikritinu um
heymarskertu stúlkuna sem þvoði
glös á bar, bar bam undir belti og
beið eftir barnsföður sínum. Brand-
enburg var drykkfelldur þjónn sem
stal úr kassanum, Belli skítkokkur
með minnimáttarkennd og Cæsar
hommi í uppvaski. Sjónvarpskvik-
mynd þessi vakti gífurlega athygli á
heimavelli er hún var frumsýnd þar
fyrir ekki alllöngu á nákvæmlega
sama hátt og íslensk sjónvarpsmynd
með þeim Stefáni (Lúdó), Rúnari
Júlíussyni og Björgvini Halldórssyni
myndi gera hér á landi ef frystihús
væri sögusviðið. Ekki er eins víst að
útlendingar myndu skilja fyrirbærið.
Annars var myndin bæði skemmti-
leg og norræn. Mikill bjór var drukk-
inn, fyrsti bítill Danmerkur næstum
drukknaður við Litlu Hafmeyjuna á
nærbuxunum einum fata á meðan fé-
lagi hans fylgdist með í sama bún-
ingi. Einnig var þetta vandamála-
mynd í þeim skilningi að málefni
heyrnarskertra vorutekin rækilega
fyrir. Er Svarthöfði félagi okkar nú
f jarri góðu gamni, hann hefði vafalít-
ið getað lagt glæsilega út af danskri
sjónvarpskvikmynd þar sem allt
kemur fyrir í senn: bæklun, kynvilla,
drykkjuskapur á Löngulinu, ómerki-
legur þjófnaður og strákar á nærbux-
um.
Aftur á móti var þátturinn um ráð-
herrann og ráöuneytisstjórann sem
einnig var á dagskrá sjónvarps i gær
lærdómsríkur um margt. Ráðherr-
ann ætlaöi aö rífa listasafn og þar
meö að krækja sér í nokkur atkvæði
en skifti snarlega um skoðun er hann
var gerður aö verndara lista. Er
eiginlega óskiljanlegt aö stuönings-
mönnum norrænnar samvinnu og
„skandinavisma” hafi enn ekki hug-
kvæmst að gera Svarthöfða að for-
stjóra Norræna hússins og kaupa sér
þannig friö. -eir
Úrslit í hjólreiðakeppni
skólanna
Þann 8. október síðastliöinn fóra fram lokaúr-
slit í hjólreiðakeppni milli þeirra sem bestum
árangri náðu í milliriðlum sl. vor. Orslita-
keppnin var þríþætt, í fyrsta lagi spumingar
um umferðarmál, í öðra lagi góðakstur og
loks hjólreiðaþrautir. AIls höfðu 16 áunnið sér
rétt til þátttöku en 15 mættu til leiks.
Hverjum keppanda var í upphafi gefinn
ákveöinn stigastofn, 390 stig hverjum, en fyrir
það sem miður fór í keppninni vora síðan
reiknuð frádráttarstig. Sigur úr býtum
bára því þeir sem flest stig fengu.
Tveir efstu keppendumir fá að launum fría
ferð til Ungverjalands næsta vor ásamt sigur-
vegurunum í nýlokinni vélhjólakeppni, þeim
Sævari Olafssyni og Sigmundi Sæmundssyni.
Þar verða þeir fulltrúar Islands í alþjóðlegri
keppni á vél- og reiðhjólum sem
alþjóðasamband umferðarráða, PRI, gengst
fyrir.
Að þessu sinni vora það Akureyringar sem
röðuðu sér í þrjú efstu sætin en úrslit urðu sem hér segir: 1. Sveinbjörn Jóhannesson,
Gangfræðaskóla Akureyrar 2. HaukurHauksson, 388 sög
Gagnfræðaskóla Akureyrar 3. FinnurHauksson, 375 stig
Gagnfræðaskóla Akureyrar 4. MagnúsGuðmundsson, 372 stig
Seljaskóla, Reykjavík 5. ÞorsteinnV.guðmundsson, 368 sög
Glerárskóla, Akureyri 6. Þröstur Gylfason, 363 sög
Lækjarskóla, Hafnarfiröi 7. Björgvin Benediktsson, 362 stig
Ölduselsskóla, Reykjavflc 8. GuðmundurJónSmárason, 361 stig
Garðaskóla 9. Guðmundur Asgeir Olafsson, 347 stig
Stóru-Vogaskóla 10. FriðrikHelgiFriðriksson, 341 stig
Laugalækjarskóla 335 sUg
Nýlega komu út á vegum
námssjóðs Lögmannafólags
íslands 2 dómasöfn
sem Amljótur Björnsson prófessor hefur
tekið saman.
Annað safnanna fjallar um dóma í
vátryggingamálum 1920—1982. Er þar í fyrsta
lagi um að ræða ágrip af hæstaréttardómum i
vátryggingamálum, kveðnum upp eftir að
lög um vátryggingasamninga nr. 20/1945 tóku
gildi og í öðru lagi ágrip af eldri hæstaréttar-
dómum sem telja má að enn hafi raunhæft
gildi.
Hitt dómasafnið er um dóma í sjóréttar-
málum 1965—1982. Fyrir utan dóma í sjórétt-
armálum era teknir með dómar um
samninga um flutning farms með flugvélum
og bifreiðum þannig að í safninu er að finna
tæmandi skrá fyrir hæstaréttardóma i
flutningsrétti fyrir tímabilið 1965—1982.
Dómasöfnin era til sölu hjá Bóksölu
stúdenta við Háskóla Islands.
Þjóðminjasafnið gefur út
bók
Þjóðminjasafn lslands hefur gefiö út bókina
„Hus, gard och bebyggelse” sem hefur að
geyma 25 greinar um merkar fomleifarann-
sóknir á Norðurlöndum.
Greinarnar byggjast allar á erindum sem
flutt vora á ráðstefnu norrænna fornleifa-
fræðinga að Laugarvatni í ágúst 1982 og era
allar skrifaðar á norsku, sænsku eða dönsku.
M.a. er sagt frá niðurstöðum fornleifarann-
sókna í Reykjavík árin 1971—1975, byggða-
rannsóknum á Holti í Eyjafjallasveit og
byggmgum frá fyrstu öldum Islandsbyggðar.
Bókin er 270 bls. að stærð og prýdd miklum
fjölda mynda og skýringarteikninga.
Þetta er fyrsta bókin sem Þjóðminjaafnið
gefur út og sá Guðmundur Ölafsson safnvörð-
urumútgáfuna.
Fundir
Félagsfundur
Haustfundur Snarfara verður haldinn
fimmtudaginn 17. nóvember í húsi Slysa-
vamafélags lslands og hefst kL 20.00.
Fundarefni: 1. Félagsstarfið 2. Uppbygging
hinnar nýju smábátahafnar Snarfara. 3.
önnurmál.
Stjómin.
Kvenfélag
Kópavogs
Fundur verður haldinn í félagsheimilinu
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 20.30.
Stjómin.
Almennur félagsfundur Sam-
félagsins, félags þjóðfélags-
fræðinema við Háskóla
íslands,
haldinn 4. nóvember 1983, skorar á hlut-
aðeigandi að sjá til þess að fjárhagsvandi LIN
verði leystur þannig að sjóðurinn geti staðið
við skuldbindingar sinar á þessu ári.
A undanfórnum mánuðum hafa kjör
almennings verið skert stórlega. Það væri því
aö bæta gráu ofan á svart að vega að þessari
stofnun sem ætlaö er að jafna aöstööu til
náms. Skeröing á námslánum leiðir til þess að
þeir sem eiga efnaða að geta stundað nám en
aðrir verða frá að hverfa.
Varðandi næsta fjárhagsár vill fundurinn
taka undir ályktun SHI frá 20. október sl. og
skorar á f járveitingavaldið að veita LlN það
fjármagn sem nauðsynlegt er til aö sjóðurinn
geti staðið við skuldbindingar sínar.
Sýningar
Lína
Langsokkur
Um þessar mundir stendur kvikmyndahúsið
Bíóbær fyrir sýningum á kvikmynd um Línu
Langsokk. Forráðamenn Bíóbæjar ætla nú
að efna til ritgerðarsamkeppni í tengslum við
myndina. Efni ritgerðanna á sem sagt að
fjalla um Línu Langsopkk á einhvem hátt.
Skilafrestur er til 15. desember og geta öll
böm sem áhuga hafa tekið þátt i keppninni.
Fyrir 10 bestu ritgerðirnar verða veitt vegleg
verðlaun. Ritgerðirnar á að senda til Bíó-
bæjar, box 247, Kópavogi.
Vetrarfundur Sambands íslenskra
rafveitna og Sambands íslenskra hita-
veitna hófst í morgun á Hótel Sögu í
Reykjavík.
Meginefni fundarins veröa verðlags-
mál rafveitna og hitaveitna ásamt
ööru sem er ofarlega á baugi í málefn-
Sýning í
Gerðubergi
1 Gerðubergi sýna nú 5 íslenskir listamenn
verk sín og er þessi sýning í tengslum við list-
iðnaðarsýninguna sem nú stendur yfir á Kjar-
valsstöðum. Þeir sem sýna era: Jens Guð-
jónsson gullsmiður, Kristrún Isleifsdóttir og
Sóley Eiríksdóttir, sem sýna keramik, og
hjónin Sigrún O. Einarsdóttir og Sören Larsen
sem sýna glerUst. Þessir Ustamenn hafa unn-
ið í svokallaðri „workshop” með bandarisku
listamönnum sem ný sýna á Kjarvalsstöðum.
Sýningin stendur yfir tU 27. nóv. og er opin
mánudag—fúnmtudag frá kl. 16.00—22.00 og
föstudag—sunnudag frá kl. 14.00—18.00. Að-
gangur er ókeypis.
Tónleikar
Háskólatónleikar í
Norræna húsinu
Aðrir háskólatónleikar á þessu misseri
verða haldnir í Norræna húsinu miðviku-
daginn 16. nóvember 1983 kl. 12.30. A efnis-
skránni er Divertimento í Es-dúr fyrir horn,
fiðlu og sefló eftir Franz Joseph Haydn og
Kvartett i F-dúr fyrir hom, fiðlu víólu og
seUó eftir Johann Andreas Amon.
Flytjendur eru: Joseph Ognibene hom,
Júliana E. Kjartansdóttir fiðla, Helga
Þórarinsdóttir víóla og Nora Kornblueh
seUó.
Spilakvöld
Spilakvöld í
félagsheimili
Hallgrímskirkju
Spilakvöld verður í félagshekniU Hallgrims-
kirkju í kvöld (þriðjudag) kl. 20.30. Allur
ágóði rennur tU styrktar kirkjunni.
Sigiingar
Akraborgin
siglir nú fjórar ferðir daglega á mUU Akra-
ness og Reykjavttrar en að auki er farin
kvöldferð á sunnudögum. Skipið sigUr:
FráAk. FráRvflt:
Kl. 08.30 Kl. 10.00
Kl. 1130 Kl. 13.00
Kl. 14.30 Kl. 16.00
Kl. 1730 Kl. 19.00
Kvöldferðir á sunnudögum frá Ak. kl. 20.30
ogfráRvíkkl. 22.
Finnskur
prentvillupúki
Misritun var í nafni finnska fyrir-
tækisins, sem Steinullarverksmiðjan á
Sauöárkróki samdi við á dögunum og
sagt var frá í DV á föstudag. Nafn
fyrirtækisins er Oy Partek og eru hlut-
aöeigandi beðnir velvirðingar á mis-
tökunum.
um orkuveitna. Fjölmörg erindi verða
flutt og meðal þess sem fjallað verður
um er orkuverð á raforku og jaröhita,
virkjun jarðvarma fyrir smærri hita-
veitur, staða og horfur, málmtæring og
útfelling í hitaveitum og mat á orku-
vinnslugetu.
Fundinum lýkur á morgun.
Sambönd rafveitna og
hitaveitna funda