Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1983, Page 2
DV. LAUGARDAGUR 26. NOVEMBER1983.
Stykkishólmur:
ELDUR í SKIPAVÍK
— óverulegar skemmdir
Frá Róbert Jörgensen, fréttaritara DV
í Stykkishólmi.
Eldur kom upp í skipasmíðastöðinni
Skipavík í Stykkishólmi upp úr kl. 11 í
gærmorgun. Einn starfsmaður hlaut 1.
stigs bruna, en hann fékk að fara heim
að lokinni aðgerð á sjúkrahúsinu.
Skemmdir í skipasmíðastöðinni urðu
óverulegar. Á tímabili var talin hætta
á sprengingu í gaskútum og var allt
starfsfólk stöðvarinnar látið yfirgefa
bygginguna.
Tildrög þessa óhapps voru þau að
verið var að færa krók á innanhús-
skrana. Hann rakst þá á suðukúta,
sem verið var aö vinna með, með þeim
afleiðingum að þeir féllu um koll. Þaö
brotnaði ofan af öðrum þeirra og varö
mikið bál inni í skálanum. Slökkviliðiö
var kallaö á vettvang en ekki kom til
kasta þess því að starfsmenn höföu
slökkt eldinn þegar það kom á vett-
vang.
-GB
GÖNGUGATAN ER LOKUÐl UMKRINGIÐ HRESSÓ OG
PULSUVAGNINN! gœtu þessir hermenn hafa hrópad er
þeir strunsudu um midbœ Reykjavíkur í gœr. Gamla fólkid
varð hissa enda hélt það að Bretinn vœri farinn fyrir löngu
og rniðaldra vinstrisinnum, sem tóku stúdentspróf þegar
œskuuppreisnir voru í blóma 1968, þótti þetta ósmekklegt.
Hér voru nefnilega á ferð stúdentsefni að dimittera eins og
það heitir og gekk ekkert slœmt til eins og sjá mátti efvel var
að gáð. Allir voru með trébyssur og margir á strigaskóm.
Umsátrinu um Hressó og pulsuvagninn hefur nú verið aflétt
og prófelstur í fullum gangi. -EIR/D V-mynd Helgi.
TROPICAL AIR PLANTS
Plöntur sem lifa á loftinu. Engin mold — enginn pottur. Uppsett á 500 ára gömlum
rótum. Komið og skoðið loftplönturnar í ALASKA, Breiðholti.
Hema sfheildverslun,
Hverfisgötu 108, simar 26771 - 45664.
Viðbrögð búnaðarmálast jóra:
„HORNÓTT OG
KLAUFALEG”
— segir Birgir Dýrfjörð
„Viðbrögð búnaöarmálastjóra í
þessu máli eru aö mínu mati bæði
homótt og klaufaleg,” sagöi Birgir
Dýrfjörð er DV ræddi við hann.
Hugmyndir Birgis um aö bændur
geti sparað sér umtalsverð útgjöld
meö því að gefa búpeningi upphitaö
drykkjarvatn hafa vakiö mikla athygli.
Telur hann að meö því aö hita
drykkjarvatnið í ákveðið hitastig spari
þaö skepnunni orku sem hún ella fengi
úr aukafóöurgjöf. Hefur Birgir sett þá
hugmynd fram að með þessu megi
spara ríflega 160 milljónir á ári hvað
varöar kúastofninn í landinu.
Fagmenn í ýmsum greinum land-
búnaðar hafa mótmælt þessum hug-
Bandalag háskólamanna heldur ráð-
stefnu um undirbúning væntanlegra
háskólamanna, aðgang þeirra aö há-
skóla og brautargengi, í Borgartúni 6 í
dag og hefst hún kl. 10 árdegis.
1 frétt frá BHM kemur fram að
margir hafi áhyggjur af aukinni að-
sókn í háskólanám samfara fjölgun
leiða til að öðlast slik réttindi.
Ráðstefnan hefst með ávarpi
menntamálaráðherra, Ragnhildar
myndum Birgis og sagt þær á mis-
skilningi byggðar. Kveða þeir rann-
sóknir hafa verið geröar á þessu og að
einnig séu í gangi rannsóknir sem sýni
það að hugmynd Birgis sé ekki „slíkur
búhnykkur sem látið er aö liggja.”
Athugasemdir þessar voru sendar út
af búnaöarmálastjóra, Jónasi
Jónssyni.
„I þessum athugasemdum kemur
fram aö gerðar hafi veriö rannsóknir á
þessu og einnig aö nú standi yfir rann-
sóknir á hinu sama,” sagöi Birgir.
„Það er því ekki óeölilegt að ég spyrji:
Hvers vegna er veriö að rannsaka það
sem þegar er búið að rannsaka? Það
má segja að þetta rekist hvað á annars
Helgadóttur, og síöan flytja framsögu-
' erindi þeir Guðni Guömundsson,
rektor MR, Guðmundur Arnlaugsson,
fyrrum rektor MH, Halldór Guöjóns-
son, kennslustjóri Hl, og Guömundur
Magnússon háskólarektor.
Ráðstefnunni lýkur meö pallborðs-
umræðum undir stjóm Þóris Einars-
sonar prófessors. Öllum er heimill
aðgangur að ráðstefnu þessari.
-GB.
horn enda virðast ekki liggja fyrir
neinar niðurstööur sem búnaðarmála-
stjóri, fyrir hönd fleiri, getur beinlínis
vísaðtil.
Nú, hann segir í niöurlagi athuga-
semdarinnar að bændur séu varaðir
við aö brynna meö heitu vatni nema aö
undangenginni rannsókn. Og þá er
spumingin sú hvort þessi „undan-
gengna rannsókn” eigi að beinast að
efnasamsetningu vatnsins. Ef svo er
ekki þá hlýtúr búnaðarmálastjóri að
eiga við aö rannsökuö veröi áhrif þess
aö gefa upphitað drykkjarvatn. Ef svo
er þá er hann kominn inn á sömu línu
og ég, þ.e. að æskilegt sé að gera slíka
rannsókn,” sagðiBirgir. -JSS
Fundur
um kyn-
fræðslumál
I dag, laugardag, mun Torfan,
aöildarfélag aö Bandalagi
jafnaðarmanna, halda fund í Norr-
æna húsinu. Veröa þar flutt sjö
framsöguerindi sem f jalla um kyn-
fræðslumál, getnaðarvarnir og
fóstureyðingar. Að framsöguerind-
unum loknum munu frummælend-
ur sitja fyrir svörum. Fundurinn
hefst klukkan 13.30 og er öllum
opinn.
Háskólinn í
brennidepli
— á ráðsf efnu BHM
Bordstofusett — 12 geröir
Verð frá kr. 19,500 (Borð og 6 stólar)
Leöursófasett — 15 gerðir
Verð frá kr. 39,500 15BHBSIS5""