Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1983, Page 14
14
DV. LAUGARDAGUR 26. NOVEMBER1983.
ROKKSPILDAIU
ROKKSPILDAN
ROKKSPILDAN
Psychic TV.
öll frábærri spilamennsku og há-
punktur framlags þeirra var lagiö
Söngull. Einar söng meö í öllum
lögum. Þótt hann væri ekki í beinni
útsendingu var sýnd vídeóspóla með
honum í sjónvarpi uppi á sviði.
Psychic TV
öll sviðsframkoma og tónlist
Psychic minnti á sértrúarflokk frá
miðöldum. Tónlist þeirra er sárs-
aukafull áheyrnar, eiginlega and-
tónlist. Þeir notuöu ýmis dularfull
hljóðfæri eins og auglýst hafði verið
til að skapa mjög þunga og ógn-
vekjandi stemmningu. Þaö var eins
og hljómsveitin væri að lepja
dauðann úr hauskúpu og vissulega
var stillimyndin á sjónvarpinu
þeirra hauskúpa. Það virðist á góðri
leið meö að verða venja á hljóm-
leikum að hafa sjónvarpstæki uppi á
sviði, Crass voru með það síðast og
Psychic TV nú.
Genesis P. Orridge, söngvari
hljómsveitarinnar og höfuðpaur,
söng af miklum krafti um hinstu rök
tilverunnar, dauðann, trúna og róm-
versk kaþólska kirkju. Hann vitnaði
einnig í Velvet Underground og Lou
Reed. Velvet Underground starfaði
fyrir nærri 20 árum í New York og
áhrifin frá henni voru greinileg í tón-
list Psychic TV. Sami dauöans há-
vaði, veggur af hljómum sem virtust
ekki af þessum heimi. Það er erfitt
að lýsa tónlistarlegri upplifun sem
þessari í oröum en þeir sem mættu,
og það var enginn smáf jöldi, geta þó
reynt að miðla þeim, sem ekki
mætíu, áhrifunum á hvaða hátt sem
þeir gera það.
Já, þaö var troðfullt hús og
Ásmundur í Gramminu gekk um
með ánægjusvip. Loksins virðist
vera kominn grundvöllur fyrir að
flytja inn erlendar hljómsveitir, ekki óska eftir og biðja um að fá að spila
síst þar sem margar þeirra beinlínis hér á landi. -ÁDJ.
Undarlegustu tónleikar hér á landi
í langan tíma voru haldnir í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð á mið-
vikudagskvöld. Auðvitað þurftu
menn að bíða eftir að tónleikarnir
hæfust, þeir voru auglýstir kl. 9 en
hófust ekki fyrr en um hálftíu leytiö.
Menntaskólinn í Hamrahlíð er
fyrir ýmissa hluta sakir ekki allra
heppilegasti staðurinn fyrir hljóm-
leikahald, hljómburður er frekar
slappur og sviðið of lágt. Þaö var
Sveinbjörn Beinteinsson allsherjar-
goði sem hóf tónleikana meö listilega
kveðnum rímum sem hann flutti á
sinn sérstæða hátt. Eftir rímurnar
kom stutt hlé og andrúmsloftið varö
rafmagnað. Menn biðu spenntir eftir
því aö sjá hvort dæmið gengi upp,
hvort Einar Örn yrði í beinni út-
sendingu eöa ekki. Frést hafði um
morguninn að einhver vandkvæði
væru á því að ná honum í gegn um
gervihnöttinn og svo fór, því miöur,
að Einar komst ekki í gegn. Hilmar
örn Hilmarsson kom upp á svið og
tilkynnti aö ekki yrði af mynd-
sendingu en hins vegar yrði Einar í
símasambandi.
Kuki
Kukl hóf spilamennsku sína á því
að barið var í stórt og mikið málm-
gjall og á eftir fylgdi flautuleikur og
trommusláttur. Sigtryggur barði
húðirnar af mikilli leikni og miklu ör-
yggi. Skömmu síöar fór aö heyrast í
Einar Erni og það var vægast sagt
draugaleg stemmning að vita af
Einari syngjandi í Lundúnum en
samt þarna á sviðinu. Þau Björk,
Birgir, Guölaugur, Einar hljóm-
borösleikari og Sigtryggur skiluðu
Hljómsveitin Kukl.
Poppbókln
er koitiin nt
I Poppbókinni eru einnig frásagnir
atkvæðamikilla aðila innan popps-
ins. Þeir eru:
— Bubbi Morthens rokkkóngur.
Hann segir m.a. frá músíklegu upp-
eldi sínu og aðdraganda og uppgangi
íslensku nýbylgjunnar.
— Egill Olafsson, Stuðmaöur með
stóru essi. Hann rekur m.a. 18 ára
langan og litskrúðugan músíkferil
sinn.
— Arni Daníel, blaðamaöur DV og
Vikunnar. Hann lýsir m.a. kostum og
göllum poppfréttamennskunnar.
— Magnús Eiríksson tónskáld.
Hann gefur m.a. góö ráð í sambandi
við lagasmíðar.
Þá er Poppbókin — I fyrsta sæti
loksins komin út eftir langar og
strangar fæðingarhríðir. I Poppbók-
inni er aö finna grófan útdrátt úr
sögu íslenskrar poppmúsíkur frá því
Hljómar stilltu saman strengi á fyrri
hluta sjöunda áratugarins. Fjallað
er um söngtextagerö og kunnustu
stefnur í poppmúsík eru skilgreind-
ar. Birtur er listi yfir helstu íslensku
poppplöturnar og 25 poppáhugamenn
velja bestu íslensku plöturnar.
Hönnun plötuumslaga er skoöuð og
sagt er frá stéttarfélögum músík-
anta og söngtextahöfunda. Öll hljóð-
ritunarver í landinu eru talin upp og
eins hljómplötuútgefendur.
— Siggi pönkari. Hann viðrar
skoöanir pönkaranna á poppinu.
— Ragnhildur Gísladóttir yfir-
grýla. Hún upplýsir m.a. um vinnu-
brögð skallapopparanna og uppgjör
hennar við þá.
— Ásmundur Jónsson plötuútgef-
andi. Hann ræðir m.a. um plötuút-
gáfu á Islandi.
Utgefandi Poppbókarinnar — I
fyrsta sæti er bókaútgáfan Æskan.
Skrásetjari bókarinnar er Jens Kr.
Guö.
«JE1MS
Einar komst
nærri því
alvegígegn
Mögnud stemmn
ing í Hamrahlíö