Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Page 1
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1983.
;'
'V
Óðum styttist til jóla og ekki seinna vænna aö huga
aö jólagjafainnkaupunum. Nú hefur þú í höndunum,
lesandi góöur, fjörutíu og átta síöna blaö þar sem þú
getur valið um mörg hundruð góöar jólagjafir. Auk
þess er inni í aðalblaöinu í dag átta síðna kálfur,
viðbótarjólagjafahandbók, sem þú stingur bara inn í
handbókina áöur en þú ferö að fletta henni. Þá ertu
meö fimmtíu og sex síður, troðfullar af skemmtileg-
um hugmyndum.
Þessi sívinsæla jólagjafahandbók DV mun
sannarlega létta þér leitina því í henni færðu hug-
myndir aö gjöfum fyrir allan aldur. Og þú getur auk
þess séö út eitthvað ódýrt í jólapakkann því verð
fylgir. Þaö er ástæða til að geyma jólagjafahandbók-
ina og skoöa hana vel og vandlega þegar nægur tími
gefst.
Jólagjafahandbókin getur líka verið óskalisti því
börnin geta bent foreldrum sínum á sína óskagjöf í
blaðinu. Það hefur sýnt sig í gegnum árin að jóla-
gjafahandbók DV kemur að góðum notum í jóla-
gjafaleitinni og þess vegna kappkostum við aö gera
hana sem vandaðasta og fjölbreyttasta.
Þá er í raun ekkert eftir nema að fara á staðinn og
versla. Með ósk um auðvelda jólagjafaleit og gleöileg
jól látum við lesendum eftir að kynna sér jólagjafa-
handbókina.
i
i
i
i