Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Qupperneq 47
ÐV. FIMMTUDAGUR8: DESEMBER1983. '47 Skautar fyrir alla Það er óhætt að segja aö þeir hjá versluninni Sport, Laugavegi 13, eigi skauta fyrir alla fjöl- skylduna því þeir eru fáanlegir í öllum stærð- um, skautarnir þar. Þetta eru góðir skautar og skórnir eru vínilklæddir að utan og leður- fóðraðir að innan. Byrjendaskautar kosta 310 kr., skautar í st. 33—35 kosta 1.065 kr. og skautar í st. 36—42 kosta 1.155 kr. Elan gönguskíði Það er ekki fyrir ekki neitt sem sjálfur skíðakóngur- inn Stenmark notar ELAN-skíði. Elan göngu- skíði færðu f versluninni Sport að Laugavegi 13 og kosta þessi frábæru skíði á myndinni aðeins 1.330 kr. Alpina gönguskíðaskórnir kosta 1.305 kr., stafir 272 kr. og bindingar 187 kr. Hér er frábært sett fyrir skíðamanninn. Fyrir hestamanninn í Sporti Hestamennirnir fá allt sem þá vantar hjá Sporti að Laugavegi 13: hnakkar á 4.331 kr., ístöð á 721 kr., beisli frá 595 kr. og íslenskt lag af stangamélum á kr. 1.395. Sem sagt: Sport hefur allt fyrir hestamanninn. KREDITKORT EUROCARO] Hitalök sem velkomin verma rúmið Nú þarftu ekki lengur að skrföa upp f fskalt rúmið. Hof, Ingólfsstræti 1 a, býður nú sérstök hitalök. Þau eru þannig gerð að maður svitnar ekki á þeim, verður aldrei kalt og aldrei of heitt. Þau eru frábær í rúmiö hjá eldra fólkinu og ekki síöur hjá ungbarninu, t.d. í barna- vagninn. Einnig eru þau mjög góð fyrir þá sem eru mikiö rúmliggjandi. Lökin eru bæði til einbreiö og tvíbreiö og kosta frá 540 krónum. Fyrir jólin í versluninni Hofi, Ingólfsstræti 1 a (á móti Gamla bíói), er mikiö úrval af jóladiska- mottum á aðeins 110 krónur. Þá er þar fjölbreytt úrval af jólaefnum til að nota í gardínur eöa dúka. Hvort sem þú ætlar aö skreyta heimiliö fyrir jólin eða gefa jólalega gjöf, þá fæst hún í Hofi, að ógleymdum öllum garnhillunum, útsaumsmyndunum og yfirleitt öllu sem nefna má í sambandi við hannyrðir. Alpina skíðaskór Skíðaskórnir frá Alpina þykja mjög góöir enda eftirsótt vara, ekki bara á íslandi heldur einnig erlendis. Alpina skíðaskórnir fást í versluninni Sport, Laugavegi 13, og eru bæði fáanlegir á börn og fullorðna. Barnaskór f stærðum frá 25—35 kosta 1.232 krónur og fullorðinsskíðaskór í st. 36—41. Stærri númer, frá 42—46. Loðfóðraðar lúffur í vetrarkuldanum er nú gott að eiga hlýjar og góðar lúffur, að maður tali nú ekki um skfða- húfur. Hjá versluninni Sporti aö Laugavegi 13 er mjög mikið úrval af lúffum á alla fjöl- skylduna og kosta þær aöeins frá 145—230 kr. Þá býður Sport einnig upp á skíðahúfur af mörgum misjöfnum gerðum og einni gerðinni má auðveldlega breyta í lambhúshettu. Húf- urnar kosta frí krónum upp í 187. Góðir og hlýir svefnpokar Svefnpokar koma sér alltaf vel og nauðsynlegt fyrir hvern og einn að eiga svefnpoka. Hjá Sporti, Laugavegi 13, er mikið úr- val af góðum svefnpok- um, til dæmis dúnsvefn- pokum, sem mjókka niður, á 3.985 kr. og einnig fíberpokum á 2.384 kr. JOFA er viðurkennt merki hvaö öryggi varðar. í Sporti, Laugavegi 13, færðu JOFA öryggisreiðhjálma fyrir hestamanninn, hvort sem hann er unglingur eða fullorðinn, á 862 kr. Gjöf sem veitir öryggi. átíy >. lim Klukkur með útsaumi Hér er tilvalin gjöf fyrir myndarlegu húsmæöurnar. í einum pakka fá þær hér fallega klukku upp á vegg og þær geta sjálfar saumað út í kringum klukkuna. Þannig veröur hér til nytsamur hlutur með eigin handbragði. Útsaumsklukkan fæst í Hofi, Ingólfsstræti 1 a (á móti Gamla bíói) og kostar 1.990 kr. með öllum fylgihlutum. Elan svigskíði Já, þau eru einnig fáanleg svigskíðin frá ELAN sem Stenmark, skíðakóngur- inn, hefur miklar mætur á, í versluninni Sport, Laugavegi 13. Úrvaliö er gífurlegt og verðið frá 2.598—5.435 kr. Skoðaöu Elan skíðin sem Sport hefur á boðstólum. ■ KREDITKORT VELKOMIN Barnaskíðasett Þetta frábæra barnaskíða- sett hefur Sport, Lauga- vegi 13, á boðstólum og er það gífurlega vinsælt, enda á mjög góðu verði. Hér er hún komin, gjöfin handa krökkunum sem þeir hafa bæði gagn og gaman af. Rfiithefca aídic4Hd®*{ Öryggishjálmar fyrir hestamanninn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.