Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Qupperneq 5
DV. MÁNUDAGUR12. DESEMBER1983. 5 Tómar mathirslur: brytínn Innl íkœlinum, tómt búrið. Jón Stefánsson hásetí málningarvinnu um borð. þeir heföu haft meðferðis kassa af bókum frá Borgarbókasafninu i Reykjavík og síðan hefði þeim verið gefinn heill árgangur af hinu norska Hjemmet. Islenska útvarpið hefur stöku sinnum náðst. „En tragisk historie" Fjölmiðlar í Kristiansund hafa fylgst vel með Þyrli og áhöfn hans, viðtal við skipverja kom í útvarpsstöð bæjarins og blöð hafa fjallað um máliö nær dag- lega. Tidens Krav, víðlesnasta dagblaðið á þessum slóðum, kallar kyrrsetninguna ,,en tragisk historie”. Er Þyrill kom til Kristiansund, lagði „namsmannen” (eins konar lögtaks- maöur bæjarins) hald á pappíra skipsins og siöan var það fært að bryggju nokkuð frá aðalhöfninni, þar sem heitir Hjelkrem-brygg jan. Ole Lindvág, fulltrúi Norska sjómannasambandsins í Kristiansund, hefur verið áhöfninni á Þyrli mjög hjálplegur og kom henni í samband við íslenska sendiráöið í Osló. Að sögn skipverja var sendiráöið reiöubúið að aðstoða þá eftir bestu getu. Islenska utanríkisráðuneytiö stóð þar í vegi, fékkst ekki til að leggja út fyrir farar- eyri nema skipverjar legðu fram tryggingu. „Þetta er víst í sjöunda skipti á árinu sem utanríkisráðuneytið þarf að hafa afskipti af skipinu. Okkur Ragnar K. Agnarsson, 1. stýrimaður. finnst það skömm fyrir allan kaup- skipaflotann,” sögöu skipverjar. Þeir voru sammála um það að yrði málunum ekki kippt í lag yrði að selja skipið á nauðungaruppboði. Þyrill var í svokallaðri 20 ára klössun í Alaborg í sumar og tók hún rúma tvo mánuöi. Að sögn Siguröar Einarssonar 2. stýrimanns, ollu lé- legar ljósavélar i skipinu miklu „havaríi” á árinu og leiddu m.a. til strandsins í Hornafirði í október síö- astliðnum. Nýjar ljósavélar voru síðan settar í skipiö fyrir um mánuði og er það því í góðu lagi tæknilega. Vélarnar voru hins vegar dýrar og urðu að áliti skipverja ekki til að bæta fjárhags- stöðu útgerðarfélagsins. Framtíð Þyrils En hvað halda mennirnir um fram- tíð Þyrils? „Ef skipið kemst í drift, þá á reksturinn að geta gengið mjög vel. Þetta er mjög gott skip og við viljum allir vera áfram á því,” segir Haukur Þórólfsson. Sigurður Einarsson tekur undir þessi orð: „Ég átti alls ekki von á því að skipið yrði kyrrsett hér áður en við héldum út. En ég held að málið sé að leysast og tel það rey ndar öruggt. Það er líka mál til komið, eftir þrjár vikur. Einhvern veginn fer það af stað aftur.” Þess skal getið hér, aö undir venjulegum kringumstæðum er Þyrill 10 til 12 daga í hverjum túr. 1 þessari ferð var skipið að flytja 570 tonn af lýsi til Alnæs Trading í Kristiansund. Skipverjarnir sem blaöamaður mætti um borð voru ljúfir í viðmóti og rólegir en auösjáanlega langþreyttir eftir erfiða vist. Ragnar K. Agnarsson 1. stýrimaöur hafði á oröi aö ástandið hefði áreiöanlega orðið óbærilegt um borð ef allir úr áhöfninni hefðu verið áfram og ef ekki hefði komið til hjálpin frá félagsmálastofnuninni í Kristian- sund. Hann sagði að það þyrfti ekki að hafa mörg orð um hvíh'ka óvissu þetta skapaði fyrir alla, varðandi t.d. af- borganir og annaö heima. ,,Þó svo þetta skip skipti um rekstraraðila, þá á það eftir aö veröa undir smásjá um alla Evrópu. Eg er hissa á þvi að Sjómannasambandiö skuh ekki hafa látið frá sér heyra um þetta skip, það er búið aö ergja marga og um þaö viröist aldrei vera friður. Svo er þetta Sigurður Einarsson, 2. stýrimaóur. DV-myndir Pótur Ástvaldsson. náttúrulega einsdæmi að heil áhöfn fari á „sósíalinn.” Ég bjóst reyndar við einhverjum vandræðum í þessari ferð en ekki neinu svona. Svona at- burður eyðileggur mikið, sérstaklega fyrir viðskiptahlíöinni. ” Ragnar lét þess einnig getið að hinn nýi rekstraraðih (hvers nafn fékkst ekki upp gefið að þessu sinni) myndi standa í skUum við þá og að þeim hafi verið lofað uppgjöri, samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi Hallvarðs- syni hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur. Það var því nokkuð bjartsýnislegt hljóð í þessum sex skipverjum á Þyrli síðastUðinn þriðjudag og gerðu þeir sér jafnvel vonir um að losna síðar í vikunni. Þó hnúturinn verði e.t.v. leystur er þetta birtist, er eftir að ganga frá ýmsum málum, svo sem að vista skipiö og kaupa oUu. 1 það myndu fara minnst tveir dagar. -pá. ( Val ólympíuleikanna íLosAnge/es ; Minjagripir i ensku j fé/aganna sokkar Inqéllfo ÓJÉmmonm 1 Klapparstíg 44 Reykjavík Sími 10330 Laugavegi 69 Reykjavik • sími 11783 Ath. Mjög gott verð I æfmgaskór æfíngatöskur |jj§fe

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.