Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Qupperneq 48
TAL STÖDVARBÍLAR
um alla borgina...!
s,«,85000
NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN
KNARRARVOGI2 — REYKJAVlK
Verðbreytingar á áfengi:
Sumt hækkar,
annað lækkar
Áfengisútsölur á landinu eru lokaöar
í dag vegna breytinga á veröi ýmiss
varnings sem þær hafa á boðstólum.
Ekki er um neina ákveöna prósentu-
hækkun eöa lækkun aö ræða heldur
hækkar sumt en annaö lækkar.
Sem dæmi má taka aö koníak og
dýrara viskí kostar eftir hækkun yfir
700 krónur en venjulegt viskí hækkar
yfirleitt úr 530 krónur í 600 sléttar.
Vodka fylgir sömu reglu, dýrari
tegundir hækka meira en þær ódýrari
og sumar standa í staö. Smirnoff
kostar til kæmis nú 590 en kostaði áður
546. Wiborova stendur hins vegar í
staö. Sama er aö segja um íslenskt
brennivín sem kostar eftir sem áöur
380krónur.
Dýrari tegundir af léttvínum hækka
meira en þær ódýrari. Til dæmis
hækkar St. Emilion rauövín úr 135 kr. í
180 en Valpolicella á tveggja lítra
flöskum lækkar úr 260 kr. í 150.
Liebfraumilch hvítvín hækkar hins
vegarlítiöeöaúrl35íl40. f ÞS
Banaslys
Síöastliöinn laugardag varð bana-
slys á Reykjanesbraut. Kona, fædd
1934, beiö bana er bifreið sem hún var
farþegi fór út af veginum um einum
kílómetra austan viö afleggjarann til
Grindavíkur. I bifreiðinni, ásamt kon-
unni sem lést, var ökumaður bif-
reiöarinnar og er talið aö hann hafi
misst stjórn á bifreiðinni sökum hálku
á veginum. Aö sögn lögreglunnar í
Keflavík var mikil hálka á Reykjanes-
braut á laugardaginn.
Ökumaöurinn slasaöist ekki mikið og
fékk aö fara heim af spítalanum eftir
að gert hafði veriö aö sárum hans. Lög-
reglan í Keflavík fékk tilkynningu um
slysiö kl. 16.45. Konan hét Erla Lárus-
dóttir til heimilis aö Ferjubakka 4 í
Reykjavík. -APH.
Skref fyrir
þá lægstu
Skref fyrir þá lægstlaunuöu er aöal-
atriöiö í kjaramálaályktun sem for-
mannafundur Alþýöusambands Is-
lands gerði í gær. A fundinum voru um
100 manns. Krafan um 15 þúsund
króna lágmarkslaun er áréttuö. En
ályktunin er annars almenns eðlis og
hófleg.
Reiknaö er meö aö samningaumleit-
anir á næstunni fari fram jöfnum hönd-
um af hálfu einstakra félaga og
sambandsins í heild.
I dag og á morgun veröur sambands-
stjóm ASI á heföbundnum fundum um
ýmis innri mál sambandsins, svo sem
skipulagsmál. Þá fundi sitja um 50
manns.
HERB
■ > l'n'"H ■iÍrIÉIIIIIIÉ^I *i-|-|'«ÉM>.illMI|l>'|||MMnÉ-| I I .. j
LOKI
Seftjarnarnesið VAR fítið
og lágt.
27022
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA33
SAAÁAUGLÝSINGAR—AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1983.
HOLLUSTUVERND RÍKISINS:
DAIIIIAD
DMNNMIf
VICTORYV
„Við höfum haft samband við inn-
flytjanda Victory-V taflnanna og til-
kynnt honum aö frekari dreifing sæl-
gætisins í verslanir sé óheimil,” sagöi
ÞórhaUur HaUdórsson hjá Hollustu-
vernd rikisins í morgun. Ekki hefur þó
enn veriö gripið til þess ráös aö inn-
kalla þaö magn sem til er í sölutum-
um. „Viö ætlum aö athuga hvernig
staðið er aö þessum málum á Norður-
löndum en ljóst er aö viö munum
krefjast þess aö Victory-V sælgætis-
pakkarnir veröi betur merktir i fram-
tíðinni ef dreifing verður heimiluö á
ný.”
Eins og fram kom í fréttum DV á
laugardag sýndu niðurstööur efna-
greiningar Þorkels Jóhannessonar hjá
Rannsóknastofu í lyfjáfræöí, sem gerð
var aö beiðni DV, aö umtalsvert magn
á klóróformi og etra væri í töflunum,
klóróformiö að vísu innan leyfilegra
marka en etra ekki. Ryendar mun
óleyfilegt aö nota etra, sem er svæf-
ingalyf, í sælgæti eöa aðra matvöru.
Islensk-erlenda verslunarfélagiö
hefur flutt Victory-V töflurnar inn í 20
ár og sala verið bærileg.
-EHt.
ÁSKIRKJA VÍGD
/gœr, kl. 14, varÁskirkja i Reykjavík vigð. Biskup íslands hr. Pótur Sigurgeirsson vigði kirkjuna og vígslu-
vottar voru sóra Ólafur Skúlason vigslubiskup, dr. Sigurbjörn Einarsson biskup og Grimur Grimsson, fyrr-
verandi sóknarprestur i Ásprestakalli. Sóknarprestur er sóra Árni Bergur Sigurbjörnsson sem hefur verið
starfandi prestur þar fró 1980.
Sóknarmenn kirkjunnar og einn arkitektanna sem teiknaði kirkjuna sáu um að bera inn hina helgu
muni að altarinu.
Kirkjuskip Áskirkju ernú fullfrágengið en safnaðarheimili sem er hluti kirkjunnar er enn ísmiðum.
Eftir vígsluathöfnina var öllum kirkjugestum boðið i kaffidrykkju á Hrafnistu. En tH gamans má geta
þess að 10. hvert sóknarbarn Ásprestakalls dvelur á Hrafnistu. -APH/D V-mynd Bj. Bj.
Ráðstef na um fíknief navandann:
Öllum sagt upp
hjá Siglósíld
„Þaö var hverjum einasta starfs-
manni Siglósíldar sagt upp á föstu-
daginn, eöa 70 til 80 manns, og er
uppsagnarfrestur hjá langflestum
aðeins vika. Ástæðan er sögö hrá-
• efnisskortur, en nú liggja fyrir birgöir
af síld til mánaðarvinnslu og af rækju
til vinnslu í annan mánuð,” sagöi einn
starfsmaður fyrirtækisins í viötali viö
y, DV í morgun.
„Hér er eitthvert allsherjar leyni-
makk á ferðum og viö óttumst stórlega
að nýir kaupendur muni flytja verk-
smiðjuna á brott og þá liggur ekkert
annaö fyrir hjá mörgum starfsmönn-
um hér en að flytjast brott líka. Okkur
þykir þetta mjög undarlegt þar sem
Siglósíld er nú eina deild Þormóös
ramma sem skilar hagnaði. Þá höfum
viö lauslega kannað áhuga starfsfólks
á kaupum á fyrirtækinu og hafa
margir lýst sig fúsa til að láta eins til
tveggja mánaöa laun á ári renna til
hlutabréfakaupa, en enginn hefur
spurt okkur um áhuga á málinu,”
sagöi ónefndur starfsmaður Sigló-
síldar.
Ekki náðist tímanlega í hina nýju
stjómarmenn fyrirtækisins í morgun,
til að spyrjast nánar fyrir um málið.
—GS
Ferðakostnaöur
ríkisstarfsmanna 1982:
51 milljón
íutan-
landsferðir
Feröakostnaöur vegna feröalaga á
vegum ríkisins erlendis nam á síðasta
ári tæplega 51 milljón króna og ferða-
kostnaöur innanlands nam tæpum 69
milljónum króna. Risnukostnaöur
ríkisstofnana á síðasta ári var um 14,4
milljónirkróna.
Feröakostnaður erlendis var mestur
á vegum heilbrigöis- og trygginga-
málaráöuneytis eöa 9 milljónir króna,
feröakostnaöur vegna utanlandsferöa
á vegum menntamálaráöuneytis nam
7,9 milljónum, stofnanir sem heyra
undir samgönguráðuneyti eyddu 6,5
milljónum í utanlandsferðir, utanríkis-
ráöuneytiö kostaöi 6,3 milljónum til
utanlandsferöa og iðnaöarráöuneytiö 6
milljónumkróna.
Af einstökum ríkisstofnunum var
mestur kostnaður vegna utanlands-
feröa á vegum Landspítalans eða 4,6
milljónir króna, utanlandsferðir
starfsmanna Pósts og síma kostuðu
rúmar 2 milljónir, Flugmálastjóm
notaöi 1,9 milljónir og sömu upphæö
notaöi Háskóli Islands. Kostnaöur viö
utanlandsferöir alþingismanna nam
hins vegar 3,2 milljónum á síðasta ári.
ÖEF
„Mikill áhugi forráðamanna”
—segir Guðrún Agnarsdóttir, formaður þingf lokks Kvennalista
,,Þaö kom glögglega fram á ráö- Ráöstefnan sem haldin var aö
stefnunni, aö forráöamenn barna og Hótel Borg hófst með því að flutt voru
unglinga sýna þessu máli mikinn fimm framsöguerindi um máliö. Síð-
áhuga,” sagði Guörún Agnarsdóttir, an voru pallborðsumræður. AÖ þeim
formaður þingflokks Kvennalista, er loknum hófust umræöur með al-
DV ræddi við hana um ráöstefnu um mennri þátttöku ráðstefnugesta.
fíkniefnavandann er Kvennalistinn
og Kvennaframboð . gengust fyrir í „Eg vona að þetta hafi gert sitt til
gær. aö halda þessu máli vakandi,” sagöi
Guðrún. „Þaö virtist vera ásetning- miö Kvennalistans og Kvennafram-
ur flestra sem þarna voru aö láta boös meö ráðstefnunni hefði einkum
þessa umræöu ekki lognast út af. verið þaö að virkja þann meðbyr
Ráöstefnugestir virtust vera á einu sem umræðan heföi fengiö viö um-
máli um aö full þörf væri á aö sam- f jöllun fjölmiöla á fíkniefnavandan-
eina alla hina mismunandi aöila i um og stuðla að áframhaldandi um-
átaki gegn fikniefnavandanum og ræðu. Á næsta ári væri fyrirhugað að
reyna aö finna lausn á honum." fylgja málinu enn frekar eftir.
Guörún sagöi ennfremur að mark- -JSS