Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Síða 20
JAM Frábærtsafn HASKOLAKORINN Ber kraftinum í nútímamúsík á íslandi glöggt vitni Þegar Paul Weller skýröi frá enda- lokum hljómsveitarinnar The Jam fyrir tæpu ári uröu margir svekktir, — og þaö ekki aö ófyrirsynju. Hljómsveitin haföi náö miklum vinsældum í Bretlandi og virtist í stöö- ugri framsókn. Sérstaklega vakti síöasta stúdíóplatan almenna aðdáun — The Gift. Á þeirri plötu vék hljóm- sveitin talsvert frá sínum upphaflega stil. Bein skírskotun tii Tamla Motown og bandarískrar soul-tónlistar varö áberandi og yfirgnæföi aö nokkru leyti pönk- og nýbylgjuáhrifin sem tónlist The Jam grundvallaöist á í bland viö áhrif frá tvéimur „gömlum” hljóm- sveitum: The Who og The Kinks. Paul Weller, sem var bæöi aðallaga- smiöur og söngvari The Jam, hefur síöan haldiö áfram á slóöum soul- tónlistarmanna meö nýrri hljómsveit sinni, The Style Counsil, en Jam heyrir sögunni til og safn nokkurra þekktustu laga hljómsveitarinnar hefur nýveriö komiö á markaðinn og heitir Snap! Þetta eru raunar tvær plötur í sama albúmi og 45 snúninga smáskífa í kaupbæti meö fjórum lögum hljóörit- uðum á hljómleikum. Fyrir gamla Jam aðdáendur er tæpast margt nýstárlegt á skífunum en óhugsandi er aö nokkurt plötusafn með sjálfsvirð- ingu geti sniðgengiö plötur The Jam, svo merkileg sem hljómsveitin var og mótandi í bresku rokki. The Jam var stofnuö áriö 1975 en það var ekki fyrr en tveimur árum síðar sem fyrstu plöturnar komu út, In the City fyrst á smáskífu í apríl 1977 og þaö er einmitt upphafslagiö á Snap! Síðan fylgir platan ferli hljómsveitarinnar, hér má finna öll lögin á smáskífunum ásamt lögum af stóru plötunum, sem minna eru þekkt. Jam er ein fárra hljómsveita síöustu ára sem hefur náö þleim stórgóöa árangri aö koma lögum sínum á topp breska listans strax í fyrstu viku, en þaö gerðist meö lögin Going Underground og Start. Rétt er aö vekja athygli á því aö tvö laganna eru í breyttum útsetningum. Demo-upptaka af laginu That’s Enter- tainment er notuö hér þar eö strákarnir þrír í Jam sættu sig aldrei fullkomlega viö útkomuna eins og hún birtist á plötunni Sound Affects. Þá er af sömu ástæöu búiö aö hljóðblanda á nýjan leik lagið Funeral Pyre. Þaö er pínulítið kaldhæðnislegt að það skuli hafa verið síöasta verk Paul Wellers, Rick Buckler og Bruce Foxton í ágúst síöastliðnum að endurvinna lagið Funeral Pyre. En Jam kveöur sumsé meö þessari frábæru safnplötu. -Gsal.t Háskólakórinn syngur Kantötu IV — Mansöngva sftir Jónas Tómasson og Tvo söngva um ástina jg Canto eftir Hjálmar Helga Ragnarsson. Stjórnandi: Hjálmar Helgi Ragnarsson. rónmeistari: Bjarni Rúnar Bjarnason, tæknimað- Jr auk hans, Þórir Steingrímsson. Upptaka á vegum Rikisútvarpsins. Setning/prentun: Prisma. Pressun: Teldec Hamborg. Útgáfa: Háskólakórinn, Háskóli íslands. Háskólakórinn er ekki nema rétt áratugsgamall. Aö segja tíu eða ellefu ára gömul stofnun, en eðli skólakórsins samkvæmt, meira og minna endumýj- aöur á hverju ári. Fram til þess tíma er kórinn var stofnaöur var músíkin í Háskólanum aö mestu einkamál guðfræðideildar, og svo plötusafn Skúla heitins Hansen, sem var ekki einkamál neinnar deildar heldur leyndarmál, vel geymt. Rut L. Magnússon byggöi upp vel- syngjandi kór í Háskólanum svo aö þegar Hjálmar Helgi Ragnarsson tók viö stjórninni fyrir þremur árum ætla ég aö hann hafi tekið viö góðu búi. Ekki hefur Hjálmar'ætlaö sér aö veröa elli- dauöur í starfinu því aö nú hefur annar tekiö viö, Ámi Haröarson. Af tveimur ástæöum er útkoma plötu þessarar fagnaöarefni. Hún varðveitir minnmgar frá því blómaskeiöi er kór- inn átti undir stjóm Hjálmars. Svo er platan virkilega góö, í öllum skilningi. Nýjar plötur Um verkin var fjallaö á sínum tíma, þegar kórinn söng þau á tónleikum. Er óþarfi að rifja þá umfjöllun upp hér, en vert er þó að minna á eitt sem er þeim sameiginlegt — aö við flutning þeirra em miklar kröfur geröar til kórsins. Undir þeim kröfum stendur kórinn, og vel það. Söngur hans á plöt- unni er eins og á tónleikunum þegar verkin voru frumflutt, hreint frábær. Öll vinna viö plötuna ber vitni um smekk og gott verklag. Allt frá texta- blaöi og skýringum, textaþýöingum Siguröar A. Magnússonar, Sverris Hólmarssonar og Alans Widdowson, umbúöum og hönnun þeirra til upptöku og vinnslu plötunnar sjálfrar. En umfram allt er þetta plata sem ber kraftinum í nútímatónlist á Islandi glöggt vitni. EM | THOMAS LEDIN - CAPTUREP | Hollast heimasetíð GRAHAM SMITH - KALINKA Misgott lagaval Kalinka er þriðja platan sem Graham Smith sendir frá sér. Tvær fyrri plöturnar vom útsetningar Olafs Gauks fyrir fiölu og hljómsveit á göml- um og nýjum íslenskum dægurlögum og var sú fyrri nokkuö vel heppnuð, fjörug og lífleg. Seinni platan aftur á móti var líflaus og frekar leiöinleg. Graham Smith hefur því vent kvæði sínu í kross og á Kalinka em nær ein- göngu þjóölög, íslensk og erlend og fær Smith nú loksins tækifæri til að sýna hversu góöur fiðluleikari hann er. Ut- setningar á Kalinka eru í heild miklu einfaldari en á fyrri plötum hans og hefur Graham Smith sjálfur útsett flest lögin ásamt Jónasi Þóri hljóm- borðsleikara sem einnig aðstoðar hann mikiö við hljóðfæraleikinn. Lögin á plötunni em alls tólf og nokk- uö misjöfn aö gæöum. Finnst mér hon- um takast best upp í lögum frá sínum heimaslóöum og fer hann á kostum á fiöluna í Scottish, sem er blanda af skoskum og írskum þjóölögum, High- land of Scotland, skoskri þjóölaga- syrpu og Dance For A Dance, írskri þjóðlagasyrpu. Eg held aö varla sé hægt að spila þessa þjóölagadansa bet- ur. En á plötunni er einnig rússneskt þjóðlag, titillagiö Kalinka, er ég ekki alveg sáttur við útsetninguna á því, finnst hún yfirkeyrð. Það eru tvö ís- lensk lög á Kalinka, Sprengisandur og er útsetningin í litlu frábmgðin hefö- bundinni meöferö á þessu vinsæla lagi, og Saknaöarljóð eftir Heiödisi Norö- fjörö, virkilega fallegt stef er Graham Smith spilar af innlifun. Á Kalinka kemur Graham Smith í fyrsta skipti fram sem tónskáld, hefur hann samiö tvö lög, Wedding Dance í samvinnu viö Jónas Þóri, líflegt lag í anda bresku þjóðlaganna á plötunni og Condor rólegt lag, þar sem auðvelt er aö ímynda sér viö hlustun fuglinn condor klífandi í háfjöllum óspilltrar náttúm. Þaö streyma á markaðinn safnplöt- ur þessa dagana frá stærstu hljóm- plötuútgáfum landsins. Ein þeirra er Án vörugjalds frá Skífunni, sjálfsagt er nafnið í tilefni þess að ríkisstjórnin felldi vörugjald af plötum nýlega. Nú, þaö kennir ýmissa grasa á þess- ari plötu. Þaö em fjórtán lög á plöt- unni, þekkt, minna þekkt og óþekkt, semsagt ágætur kokkteill fyrir þá sem láta sér safnplötur nægja og það em nokkuö margir því yfirleitt seljast þessar plötur m jög vel. Af þekktari lögum á plötunni skal fyrst nefna nýtt lag frá súperdúettin- gæðum og útsetningar séu misgóðar er í heild hægt aö hafa ánægju af hlustun plötunnar og hún er góöur mælikvarði á snilld Graham Smiths sem fiölara. HK um Hall & Oates, Say It Isn’t So, gríp- andi lag sem nýtur mikilla vinsælda í dag. Agneta Fáltskog er hér meö sitt þekktasta lag af sólóplötu sinni Can’t Shake Loose, Just Got Lucky meö Joboxers er vinsælt lag og Human Touch með Rick Springfield er vinsælt lag vestan hafs þessa dagana. Á plötunni eru þekktar nýbylgju- stjörnur frá Bretlandi, meöal annarra á Elvis Costello eitt lag, Everyday I Write The Book, splunkunýtt lag frá Eurythmics Who’s That Girl og Rebel Run með Toyah. Einn heiöurspoppari af eldri kyn- Thomas Ledin hinn sænski gerir nú miklar og ákafar tilraunir til aö hasla sér völl á hinum alþjóölega poppmark- aði. Hann hefur hingað til ekki haft er- indi sem erfiði og trauöla trúi ég aö þessi nýja plata Tómasar, sem er önn- ur piatan hans á þessu ári, breyti nokkru þar um. slóðinni, Mick Fleetwood, á eitt lag, I Want You Back. Tvö íslensk lög eru á Án vörugjalds, eru þaö Stefnumót meö Guðmundi Rúnari Lúövíkssyni og Dancer með Magnúsi Thor, lag sem ég held að hafi örugglega ekki heyrst áð- ur. Án vörugjalds er hvorki betri né verri en aðrar safnplötur, þær eru orönar fastur liöur í plötuútgáfu Is- lendinga og meöan þær seljast vel veröur sjálfsagt áframhald á útgáfum semþessum. HK Eg er reyndar þeirrar skoðunar að Tómas hafi ekkert á alþjóðlegan mark- aö að gera, honum væri nær aö rækta þær vinsældir, sem hann á vísar meöal sænskra ungmenna og hefur notiö um langt árabil. Lagasmíöar hans, þótt þokkalegar séu, eru allt of sléttar og felldar og umfram allt ófrumlegar til þess aö eiga nokkum möguleika á því aö öölast vinsældir alþjóölega. Þar aö auki hafa Tómas og þeir sem aö baki plötum hans standa tilhneigingu til aö ofhlaða lögin hljóöfærum svo að úr verður þreytandi hávaði. Eg veit að Svíar eiga marga mun frambærilegri tónlistarmenn og hljóm- sveitir en Thomas Ledin, en því miður fyrir þetta fólk er þaö ekki gift inn í fjölskyldu Stikkans Andersons, eig- anda og stjómanda alþjóðaauöhrings- ins ABBA. Tommi er sem sagt giftur dóttur Stikkans og þess vegna er sífellt veriö aö trana greyinu fram. En aldrei aö segja aldrei. Þaö má vera aö Tommi detti dag nokkurn niöur á lag, sem gæti öðlast vinsældir meö peningunum hans Stikkans, en um langtímavinsældir Tómasar held ég aö verði ekki aö ræða. SþS Þótt Kalinka innihaldi misjöfn lög aö ÝMSIR - ÍN VÖRUGIALDS: BLANDAÐUR KOKKTEILL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.