Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Síða 28
28
DV. MÁNUDAGUR12. DESEMBER1983.
Allt tilbúið fyrír
framleiðslu á bjór
— myndi skapa vinnu
fyrir 30 manns
Hjá Sana á Akureyri hefur lengi
verið bruggaöur áfengur bjór en áður
en hann fer út úr brugghúsinu er vatni
blandað saman við svo úr veröur
Sanitas pilsner eða lageröl. Fari svo að
bjór verði leyfður á Islandi gæti Sana
komið með framleiöslu sína án
nokkurs fyrirvara. Þó er gert ráð fyrir
að til að anna eftirspurninni þyrfti að
fjölga starfsfólki verksmiðjunnar tals-
vert og vinna á vöktum.
I brugghúsi Sana eru tveir suðu-
tankar sem hvor um sig tekur 10
þúsund lítra. Bruggarinn sem þar
stjórnar tekur kornið, sem fengið er
frá Bretlandi og Danmörku, og malar
þaö. Síðan eru settir í það humlar og
ýmis bætiefni. Humlarnir eru ræktaðir
í Þýskalandi og notaðir í þýskan bjór
og einnig danskan.
Þegar hér er komið sögu lætur
bruggarinn vatn saman við og hitar
blönduna upp í ákveðið hitastig. Þetta
er gert til að ná ákveðnum efnum úr
kominu. Og þegar því er lokið er
kornið sigtað frá og vökvinn soðinn.
Frá byrjun þessa verks til loka
suðunnar líöa um 12 klukkutímar.
Ifr
Pétur Jóhannsson bruggari hjá
Sana hugar að framleiðslunni i
brugghúsinu. Á þessum stað er
efnunum blandað saman og þau
síðan hituð upp.
DV-mynd JBH.
Nú er ölið kælt niður og sett í gerjun í
tönkum sem eru á efri hæð verk-
smiðjunnar. Þessir gerjunartankar
eru 16 talsins en þó ekki allir notaöir í
einu. Þarna er ölið í um 6 vikur. Að
sjálfsögðu eru mörg leyndarmál
bundin þessari framleiðslu, aðeins er
hægt að segja að gerjaö er við ákveöið
hitastig í ákveðinn tíma. Loks er öliö
kælt og látiö standa.
Þegar bjórinn hefur þroskast eins og
skyldi er hann blandaður með CO^
vatni til helminga. Áfengismagnið í
ölinu í tönkunum er 5,0—5,5% en end-
anlegur sty rkleiki er 2,24 %.
Ragnar Tryggvason verkstjóri hjá
Sana sagði að ef farið yrði út í fram-
leiöslu á sterku öli yrði að hreinsa
bjórinn meira og setja í hann meiri kol-
sýru. „Kostnaður viö tækjakaup yrði
enginn. Við erum alveg tilbúin til að
framleiða sterkan bjór og höfum til
þess öll tæki. Þetta myndi skapa geysi-
lega atvinnu miðað við það sem er í
dag. Hér fengju að minnsta kosti 30
manns vinnu í viöbót og það þyrfti
tvöfaldar, jafnvel þrefaldar vaktir.”
Bjórverksmiðjan kom í Sana árið
1966 en áður var þar aðeins gos-
verksmiöja. Kringum 1970 var þar
framleiddur sterkur bjór, Thule export,
fyrir skip og Fríhöfnina á Keflavíkur-
flugvelli. Þótti þetta of kostnaðarsamt
til aö borga sig og var hætt. Síðan þá
hefur Sana-bjór ekki verið til nema í
verksmiöjunni sjálfri. Enginn veit
hvort eða hvenær hann kemst þaðan
löglega út. Ekki þarf að efast um
gæðin, uppskriftin er danskrar ættar
og Danir vita hvernig bjór á að vera.
-JBH/Akureyri.
FRA JOLASVEININUM
„GJÖFIN“
frá
jólasveinlnum
tll barnsins. .
„G jöfln” frá jólasvein-
inum til barnsins:
JC með óvenju-
lega jólagjöf
JC-hreyfingin á Islandi býður upp á
óvenjulega jólagjöf nú fyrir jólin. Þeir
kalla hana: „Gjöfin” frá jólasvein-
inum til barnsins.. .
Að sögn JC-manna er gjöfin aö and-
virði 500 krónur, en hún veröur seld á
180krónur.
JC-menn munu taka niöur pantanir
og sjá síöan um að senda viðkomandi
barni gjöfina.
Gjöfin inniheldur ljósmynd af jóla-
sveininum, í og utan við hús sitt, viö
iðju sína og fallegt bréf þar sem jóla-
sveinninn segir frá sér og undir-
búningnum fyrir jólin.
Og síðast en ekki síst eru gjafaávís-
anir frá honum og eftirtöldum fyrir-
tækjum: Bókaútgáfunni Iöunni,
Tomma-hamborgurum, Bókaverslun
Snæbjarnar og Sælgætisgerðinni Opal
hf.
Að sögn JC-manna hafa undirtektir
við þessari óvenjulegu jólagjöf nú
þegar verið mjög góðar. öll JC-félög á
landinuannastsöluna. -JGH.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Rafha í Austurveri leggur áherslu á
fjölbreytt úrval af vönduóum gjafavörum
Þaó tryggir aó allir
fá eitthvaó vió sitt hæfi.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
VÖNDUÐ VARA SANNGJARNT VERÐ
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Símar: 84445, 86035
West Bend
steikar-
panna
kr. 6.218
Rubi arinsuga
kr. 1.490
Braun hrærivél
kr. 5.150
Braun kvörn/hakka
vél/mixer kr. 2.990
Krups eldhús
vog kr. 675
Handþeytarar frá kr. 2.006
Braun krullujárn m/gufu
kr. 990
Unisef stereo
feröatæki
frá kr. 3.510
Braun hárblásarar
frá kr. 995
egg, pela o.fl., kr. 1.890.-
Starmix djúpsteikingarpottur kr. 2.480
C2 -
Starmix grill og hitaplata kr. 3.740
Aðventuljós og jólaseríur í úrvali.