Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Page 30
30 DV. MÁNUDAGUR12. DESEMBER1983. {" " "(B/ft TUIVGSRAM " ~ " [ LITAÐAR KÚLU- OG KERTAPERUR E 27 og E14. Litir: gulur, rauður, grænn og blár. Takmarkaðar birgðir fyrirliggjandi. Raftækjaverslun Islands h.f. Ægisgötu 7 — Simar 17975 — 17976. KAWAI FLYGLAR Gæðavara frá Japan Verð kr. 192.000 - lengd 183 cm. Vorum að fa nokkui stykki í viðbót af þessum gæðahljóð- færum. Sérstök kjör í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins. pii' Frakkastíg 16. Simi 17632. íú geta allir notiö þeirrar ánœgju ad oría á stœrri mynd í sjónvarpinu. Sérstakur skermur sem settur er íyrir íraman sjónvarpið og stœkkar myndina verulega. Petta gerir t.d. sjóndöpru íólki auðveldara að íylgjast með mynd og texta. Beamscope er til í þremur mismunandi stœrðum. Komið og kynnist þessari írá- bœru nýjung írá Japan. 3 SENDUMÍ i PÓSTKRÖFU Myndirnar sýna hve veggrip þeirrar bifreiðar, sem er með slitna hjólbarða, er orðið lólegt þegar ekið er greitt. Eins og sjá má fíýtur bifreið með lólega hjólbarða nánast á vatnslagi á 100 kílómetra hraða. Kynning JC á meðferð hjólbarða: Slitnir hjólbarðar eru stórvarasamir Nú er sá árstími kominn að allir ættu að vera búnir að skipta yfir á vetrar- hjólbarða. Ekki er þó nóg að hjólbarðinn heiti vetrarhjólbarði ef hann er orðinn það slitinn að hann geti illa staöiö undir nafni. Samkvæmt íslenskum lögum má lág- marksdýpt sólamynsturs vera 1 mm en víða eru um þetta efni strangari reglur. T.d. er lágmarksdýpt 1,6 mm í Sviss, Austurríki og í Lúxemborg. Ýmsir telja að þegar við 3 mm mörkin sé kom- inn tími til að skipta um hjólbarða. Ef slitiö verður meira fara eiginleikar hjólbaröans ört versnandi, einkum þó veggripið í bleytu. Þessar myndir tala skýru máli. Strax á 75 km hraöa er veggrip þeirrar bifreiðar, sem er með slitna hjólbarða, orðiö mjög lélegt og á 100 km hraöa flýtur hún nánast á vatnslaginu. Veg- gripið er nær ekkert og stórhætta hefur skapast. Með þessu sést glögglega hve sólamynstrið gegnir mikilvægu hlut- verki í því að veita vatni undan hjól- barðanum þannig að betra veggrip fáist á hlautu yf irborði. Bifreiöaeigendur ættu að skoða þess- ar myndir vel um leið og þeir leiða hug- ann aö ástandi hjólbaröa á eigin bif- reiðum. Fréttatilkynning frá JC r Selfoss: ANÆGÐIR ELDRINEMENDUR Ef allir væru jafnáhugasamir um lærdóminn og eldri konurnar á Selfossi, sem komnar eru á áttræðis- aldur og þar yfir væri peningum þjóðarinnar ekki kastaöá glæ. Þann 10. október síðastliðinn byrjaði námskeið á vegum Styrktarfélags aldraðra á Selfossi. Eg leit nýlega inn á Rauða kross heimilið, þar sem Hall- dóra Arnadóttir kennir leirmótun. Þama voru 15 konur þegar ég kom og kennarinn sagði að þær væru oft upp í 22. Ánægja var mikil þama og konum- ar ljómuöu af gleði viö sköpunarverk sín. Kappið er svo mikiö viö aö klára til að komast í brennsluofninn. Konumar búa til ótrúlegustu hluti úr leirnum, allt frá smáhlutum upp í stórar skálar oglistaverk. 1 fyrravetur lærðu konumar að búa til sokkablóm og mála gler og gerði það mikla lukku. Kennslan fer fram kL 13—17, en áhuginn er svo mikill að ljúka við sem flesta hluti að henni lýkur oft ekki fyrr en að ganga sjö. Kennarinn fær bara kaup fyrir fjóra tíma, en svona er ánæg jan mikil að kennarinn telur þetta bara sjálfsagt. Ef allir nemendur og kennarar væru jafnáhugasamir og þessar rosknu kon- ur á Selfossi væru vandamál mennta- málaráðherra ekki jafnmörg. -Regína/Selfossi Verð án dýnu. ÞVI EKKI að sofa í nýju hjónarúmi um jó/in? Nú er tækifærið! Verðið var gott,,en 15% ímínus". Sjáðu hina auglýsinguna ÍDV Verð m/náttborðum án dýnu.I Réttverð 7.943, verð tilþín 6.751. Rétt verð 9.683, verð tilþín 8.230. Opið laugardag kl. 10—17, sunnudag kl. 14—17. HÚSGÖGN 0G GJAFAVÚRUR, fy .t • X HAMRABORG 12 KÚPAV0GI, SÍMI46460 SENDUM í PÓSTKRÖFU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.