Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR1984. 3 Það er slíkur atburður sem Daily Express segir að gerist daglega í Reykjavík. DV-myndS. Æsifréttaskrif Daily Express um hundamálin: Segir aftökusveitir íögreglu skjótandi hunda í Reykjavík Bresk blöö hafa f jallað mikiö um hundamál fjármálaráðherra, aö sögn Einars Benediktssonar, sendi- herra í London. Aðallega hafa þau vitnað í tilmæli Alberts Guðmunds- sonar að hann muni flytja af landi brott fái hann ekki haldið hundinum. Þó hefur eitt blað skorið sig úr. Það er Daily Express sem flutti á laugardag heilsíðufregn um aftöku- sveitir, „ extermination squads”, lögreglu sem hér gangi um og skjóti þá hunda sem í náist. Jafnframt birti blaðið myndina frægu sem tekin var í sambandi við Framnesvegarmálið svokallaða af lögreglumönnum að skjótahund. ,,Eg hef reynt tvisvar að fá leið- réttingu á þessu,” sagöi Einar. ,,Eg talaði við ritstjóra og sagði að þetta væri allt meira og minna rangt. Þeir báðu mig afsökunar og buöu mér aö koma leiðréttingu á framfæri en ekk- ert hef ur verið birt ennþá. Þeir birtu nú síðast frétt frá fréttaritara sínum í Reykjavík þar sem sagt var að það væri baráttu Daily Express að þakka að borgar- stjóri og bæjaryfirvöld væru eitthvað að sjá sig um hönd í málinu.” Einar sagði að fólk hefði hringt og í sendiráöið hefði komið slangur af bréfum vegna hundamálsins. I bréf- unum segir fólk að það ætli sér ekki að heimsækja landið vegna þessa. „Þetta er slæmt atriði fyrir Island á meðan verið er að kynna Jandið sem ákjósanlegt feröamannaland,” sagði Einar. -ÞóG Hálkumælingabíll á ReykjavíkurfíugvöH — kostaði tvær milljónir króna án aðflutningsgjalda .JBíllinn kostaöi okkur í kringum tvær milljónir króna. Við fengum að- flutningsgjöld niðurfelld,” sagði Pétur Einarsson flugmálastjóri um nýjan Saab 900 turbo sem kominn er á Reykjavíkurflugvöll. „BíUinn kom til landsins í ágúst síð- astliðnum en við vorum að leysa hann úr toUi. Það þurfti að endumýja brautarbíl og bremsumæli,” sagði Pétur. Nýi bíUinn mun þjóna tvenns konar hlutverki. Annars vegar verður hann notaður tU almenns eftirlits á flug- brautunum. Hins vegar til aö mæla hálku og bremsuskilyrði fyrir flugvél- ar. Gamli bremsumæUrinn er í sér- stakri kerrru sem tengd var aftan í annan bU þegar mæla þurfti bremsu- skilyrði. Nýi mælirinn er innbyggður í Saabinn og mun nákvæmari en sá gamli. Mælirinn er aftast í Saabnum, undir skottinu. Þegar hálkan er mæld er lítið hjól sett niður á brautina. Tíu prósent tregða er á mUU þessa mæUngahjóls og afturhjóla bilsins. BUnum er síðan ekið eftir flugbrautinni á 90 kUómetra hraða á klukkustund, sem er besti mæUngahraðinn. Tölva sér um að vinna úr upplýsingunum. Niðurstaðan kemur út sem Unurit á strimli. Saab mun vera eini aöUinn sem býður upp á bUa með þessum útbúnaöi. Sams konar bíU er á KeflavUturflug- veUi. -KMU. Bremsuskilyrði eru mæld með því að aka bdnum á 90 kUómetra hraða á klukku- stund eftir fiugbrautinni. DV-myndir Loftur. Bremsumælirinn er í skottinu. Lítið hjól, sem maðurinn bendir á, er sett niður á brautina. SALURINN Á 3. HÆÐ í FIAT HÚSIIMU EV-SÉRKJÖR LÁNUM í 3, 6, 9 EÐA JAFNVEL 12 MÁN^^íTqOO _ NOTAÐIR BILAR I BILAR I EIGU UMBOÐSINS ____ swS°*5*^LU'' 300 1929 ALLT Á SAMA STAÐ 1984 -EGILL VILHJÁLMSSON HF. - Smiðjuvegi 4c — Kópavogi __ Sími 79944

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.