Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Blaðsíða 33
DV. MIÐVKUDAGUR 25. JANUAR1984. 33 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Veiðimennívanda með ■■■■•■ vodka og snæri Rússar hafa gaman af því aö sitja á ísilögöum vötnum og draga fisk upp um vök sem þeir sjálfir gera í klakann. Hafa þeir gjarnan vodkaflösku viö hönd og vök og þykir þetta hin þjóðlegasta iðja. Um síöustu helgi munaöi þó minnstu að illa færi fyrir 200 slik- um veiðimönnum þar sem þeir sátu á ísnum. Isinn losnaöi nefnilega frá landi og rak á haf út meö 200 veiði- menn og álíka margar vodkaflösk- ur. Þurfti sovéska strandgæslan aö senda flotann á eftir ísbreiðunni til aðbjargaþegnunum. OCRMltRC fOITIOM §tMmh Myndir í Le Monde Hið mjög svo alvörugefna og ábyrga franska dagblað, Le Monde, sem rekiö hefur verið með miklu tapi undanfarin tvö ár, ætlar nú að snúa vöm í sókn. Einn liður- inn í þeirri viðleitni er að hefja birt- ingu ljósmynda en þær eru teljandi á fingrum nokkurra handa sem birst hafa á síöum blaðsins þau 40 ársem þaðhefurkomið út. Upplag Le Monde er 400 þúsund eintökdaglega. langferð — frá Stykkishólmi til Lúxemborgar Valgeir Sigurðsson, veitinga- maður í Lúxemborg, og Sigurvin kokkur hans færðu hertoganum í Lúxemborg óvenjulega gjöf í fyrra: Risalúðu af Islandsmiðum sem dregin var á land í Stykkis- hólmi. Ekki fylgir fréttinni hvort lúðan komst inn um dyr hertoga- hallarinnar né hvort hertoginn varð glaður eða dapur þegar hann sá skepnuna. Alla vega hefur hann orðið hissa. Myndin af Valgeiri, Sigurvin og risalúðunni er tekin fyrir framan hertogahöllina í Lúxemborg. wm íééé EFTIR EINN EI AKI NEINN stendur á gríðarstóru skilti við áfengisverslunina í Lindargötu í Reykjavík. Á myndinni er risaglas þar sem í eru iskubbar og heil bifreið á floti og í öllu saman er svo hrært með hauskúpupinna. Þessi myndskreyting fór eitthvað fyrir brjóstið á góðkunningja „ríkisins” sem átti leið þama fram hjá á dögunum og heyrðist hann umla í barm sér: DREKKTU TVO OG AKTU SVO.... Elil KERUNG LAGDI TARZAN AÐ VELU Johnny Weissmuller (Johnny fiskur) látinn Það var mál manna að Johnny fisk- ur hefði ekki veriö mikill leikari þegar hann tók að sér Tarzanhlutverkið. En það gerði ekki svo mikið því Tarzan var ekki beinlínis málóður í fyrstu myndunum (You Jane, me Tarzan) en líkamsburðirnir og fimin sviku engan. Kvikmyndaframleiðendur létu hann meira að segja rveifla sér í ljósakrón- um stórhótela tii aö sýna blaöasnápum og öðrum fram á að maðurinn tilheyrði frekar frumskóginum en hinum sið- menntaða heimi. Eftir að Johnny hætti að leika Tarzan varð auðurinn fljótt uppurinn. Hann lifði hátt og vel, kvæntist 6 sinn- um en komst þó bærilega af með því að reka sundskóla og sinna starfi mót- tökustjóra í Cæsar Palace spilavítinu í Las Vegas. Ariö 1977 fékk hann slag og var sjúklingur upp frá því. Dvaldi hann lengst af á einkasjúkrahúsi i Los Angeles en varð að fara þaöan að kröf u eigenda sjúkrahússins eftir nokkur frábær Tarzanöskur sem hann lét dynja á starfsfólki og sjúklingum spítalans öllum til mikillar skelfingar. Vöktu þessi síðustu öskur Johnny fisks heimsathygli og eru enn í minnum höfö. Síöustu ár ævi sinnar dvaldi Weismuller ásamt sjöttu konu sinni í Acapulco í Mexíkó og þar lést hann á laugardaginn var. Er Johnny Weismuller lét af störfum sem Tarzan í kvikmynda- verunum var hann beöinn um að gefa eftirmanni sínum gott ráð. Og þá svar- aði Johnny: — Aöalatriöið er að sleppa ekki takinu á kaðlinum þegar feröin er hvaðmest. Þegar Johnny Weismuller fæddist í Chicago í júní 1904 var hann svo veik- buröa að læknar hugðu honum vart líf. Var foreldrum hans því sagt aö láta strákinn synda ef þaö gæti bætt honum upp máttleysiö. Og Johnny tók sund- tökin svo um munaöi, strax árið 1922 var hann búinn aö slá öll heimsmet í 'sundi á vegalengdunum frá 45—450 metra og í kjölfarið fylgdu svo 4 gull- verðlaun á ólympíuleikunum 1924 og '28. Svo mjög synti strákurinn að hann fékk viðumefnið Johnny fiskur. Ekki var hann þó líkur neinum þorski í laginu, 1,90 á hæð og glæsileg- asti líkaminn í Ameríku sögöu kvik- myndaframleiðendur þegar þeir buðu honum hlutverk Tarzans í trjánum árið 1932. A næstu 16 árum lék Weis- muller í 19 Tarzanmyndum og grædd- ist stórfé.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.