Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Blaðsíða 11
DV. MIÐVKUDAGUR 25. JANUAR1984. 11 Þorri blótaður íDalasýslu Frá önnu Flosadóttur, fréttaritara DV í Búðardal. Þorrablót Dalamanna eru nú aö hefjast af f ullum krafti. Alls eru haldin fjögur blót í sýslunni og hafa þeir i nógu að snúast sem sækja þau öll. Fyrsta blótiö, þorrablót Laxdælinga, verður haldið í Dalabúö laugardaginn 28. janúar og hefst með boröhaldi kl. 20.30. Fjölbreytt skemmtiatriöi verða á meðan setið er undir borðum og síðan veröur stiginn dans fram eftir nóttu. Síðar á þorranum verða svo haldin þorrablót Suöur-Dalamanna, Saur- bæinga og Fellsstrendinga. -GB ILátið ávallt vita um ferðir ykk-j ar — bröttfor og komutíma. „Þá fer ímyndunar- aflið í gang” — segir Margrét Björgótfsdóttir sem hefur borðað heilsufæði í 10 ár og framleiðir nú morgunkom ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSflLA ÚTSALA „Hingað til hefur ekki neitt ís- lenskt morgunkorn verið á markaðn- um, aðeins geysilega margar tegundir af erlendu korni, og ég vil endilega reyna að framleiða allt á Islandi og helst betra.” Þetta sagði Margrét Björgólfsdótt- ir í samtali við DV en Margrét hefur hafið framleiðslu kornblöndu fyrir morgunveröarboröið sem hún nefnir Morgungull. Hún hefur jafnframt stofnað fyrirtæki um framleiðsluna og það heitir að s jálfsögðu Gott fæði. Morgungullið dregur dám af er- iendum kornblöndum eins og Gran- ola og Músli. I því er haframjöl, sesamfræ, sólblómafræ, kókósmjöl, rúsínur og mólassasykur. Ætlar Margrét sér kannski að bæta morgunverðarsiði Islendinga? „Ekki endilega,” sagði hún. „Það fæst alveg jafngott erlent kom. En ef ég get komið með hollan islenskan mat á markaðinn, og sem er ódýrari, eru meiri h'kurtiiað fólk borði þetta í staðinn fyrir eitthvað sem er óhollt. ” — Hefurðu lengi haft áhuga á svonahollufæði? „Eg er búin að vera á jurta- og heilsufæði í tíu ár og hef mikinn áhuga á öllu sem því við kemur. ” Margrét sagði að hún hefði ekki endilega farið að borða jurtafæöi af heilsufarsástæðum en heilsan hefði komið í framhaldi af því. — Þú ert þá á því að þér líði betur en áður? „Já, mér persónulega en þetta er einstaklingsbundið. Ég er ekki á því að allir eigi að fara inn á þetta. Það veröur hver aö finna sitt. ” — En verður þetta ekki heldur einhæft fæði? „Nei, það er misskilningurinn. Þegar maður hættir aö borða þetta hefðbundna, soðna ýsu og lambalæri, fer maður að leita fyrir sér og ímyndunaraflið fer í gang.” Margrét var spurð hvort hún lifði af þessu fyrirtæki sínu. „Það er stefnan að hafa lifibrauð af þessu en ég lifi ekki alveg af þessu Vilhjálmur Svan fyrir utan diskóbilinn svokallaða en hann er notaður til að aka unglingunum til og frá skemmtistaðnum D 14 iKópavogi. Nýr unglingaskemmtistaður við Laugaveginn: „Opnum ekki fyrr en við njótum sömu kjara og hinir” — segja eigendurnir sem einnig reka D-14 í Kópavogi „Ég er ekki á þvi að allir eigi að fara inn á heiisufæði. Það verður hver að j finna sitt, "segir Margrét Björgólfsdóttir. DV-mynd GVA í dag. Og stefnan er að koma meö meira af hohu fæði sem er jafnframt ódýrara en innflutt.” Margrét er að mestu ein i f yrirtæk- inu en nýtur þó aöstoðar eiginmanns, vina og bakarans í Kökuvali þar sem hún vinnur Morgungullið. Þá flytur hún sjálf allt hráefni inn frá Eng- landi. — Þannigaöþúertbarabjartsýn? ,,Já, við vonum það bara,” sagði Margrét Björgólfsdóttir. -GB Eg sé ekki fram á að viö opnum þennan nýja staö á næstunni eða í það minnsta ekki að óbreyttu ástandi,” sagði Vilhjálmur Svan Jóhannsson, annar eigandi aö unglinga- skemmtistaönum D 14 í Kópavogi, er viö spurðum hann hvenær nýi staður- inn að Laugavegi 116 yrði opnaður. Hann og Gunniaugur Ragnarsson Selfoss: Langlegudeild fyriraldraða — íbyrjun febrúar Langlegudeild fyrir aldraða á Sel- fossi tekur til starfa í byrjun febrúar. Þar er rúm fyrir 26 sjúklinga í tíu tveggja manna herbergjum og sex eins manns herbergjum. Gamla sjúkrahúsiö á Austurvegi 26 á Selfossi er mjög flott og þar er mjög góð vinnuaðstaða. Þá hefur lyfta verið sett i það í fyrsta skipti. Matur og þvottur kemur allur frá hinu nýja Sj úkrahúsi Suöurlands. Tuttugu manns fá heilsdagsvinnu á langlegudeildinni að mér er sagt og minnkar þá atvinnuleysi á Selfossi. Hér eru 100 manns atvinnulausir og hafa þeir aldrei verið fleiri. Mér er sagt að útlit sé fyrir að atvinnuleysi aukist næstu vikumar. Hér er besta veður í dag, mánudag, en í gær var glórulaus blindbylur. Sel- fossrútan var sex tíma frá Reykjavík til Selfoss í stað þess að vera rúman klukkutíma. -Regína/Selfossi. eru að láta innrétta þar í kjallaranum mjög smekklegan skemmtistað sem þeir ætluðu að reka meö sama sniði og D14 — þ.e.a.s. vínlausan unglinga- skemmtistað. „Við treystum okkur ekki til þess að opna staðinn með þeim gjöldum sem það opinbera fer fram á. Við þurfum aö borga 86 krónur af hverjum miða sem unglingamir kaupa í söluskatt og skemmtanaskatt. En hver miði kostar 200 krónur,” sagði VilhjálmurSvan. „Þetta er mikið óréttlæti því á sama tíma þurfa aðrir unglinga- skemmtistaðir, sem reknir eru á vegum Æskulýðsráðs og borgarinnar, ekki að borga neitt og vínveitinga- staðirnir þurfa ekki að borga nema 8,90 krónur af hverjum miða sem þeir selja í svokallað rúllugjald. Það er verið að vinna að því að fá þetta leiðrétt og hefur bæjarfógetinn í Kópavogi m.a. verið okkur mjög innan handar í því sambandi viö D 14. Við höfum enn ekki fengið neina leiðrétt- ingu og á meðan að svo er ekki treystum við okkur ekki til að opna nýja staðinn á Laugaveginum,” sagði hann. -klp-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.