Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Qupperneq 8
8 DV. MIÐVDÍUDAGUR 25. JANUAR1984. Utlönd Útlönd Útlönd Útlönd Portúgal: DEILUR UM FÓST- UREYÐ- INGAR Umræöur hefjast í portúgalska þinginu í dag um lagafrumvörp til breytingar á lögum um fóstureyðing- ar. Þetta gæti orðið fyrsta átakamáliö innan hinnar átta mánaða gömlu tveggja flokka ríkisstjómar sem nú situr undir forsæti sósíalistans Mario Soares. Annað frumvarpiö er lagt fram af sósíalistum en hitt af kommún- istum. Frumvarp sósíalista gengur mun skemmra en frumvarp kommúnista. I frumvarpi sósíalista er kveðið á um að fella megi sakir niður þegar fóstur- eyðing er framkvæmd ef sannað þykir að móður hafi stafað hætta af bameign eöa aö fóstrið hafi verið vanskapað. Frumvarp kommúnista kveöur á um fortakslausan rétt kvenna til fóstur- eyðinga. Slikt frumvarp hefur áður veriö fellt í portúgalska þinginu. Samkvæmt skoðanakönnun portú- galska ríkisútvarpsins er 71% Portú- gala hlynnt því að lög um fóstur- eyðingu veröi rýmkuð. Aðeins 19% landsmanna vilja fortakslausan rétttil fóstureyðinga samkvæmt könnuninni en 5,5% eru alfarið andvíg fóstur- eyðingu. Antonio Ribeiro kardínáli, æðsti maöur kaþólsku kirkjunnar í Portúgal, hefur skorað á kaþólikka að kjósa ekki flokka sem berjast fyrir rýmkun ákvæða um fóstureyðingu. Carlos Mota Pinto, varaforsætisráðherra og formaður flokks sósíaldemókrata, hefur varaö við því að samþykkt ann- ars hvors frumvarpsins mundi gera stjórnarsamstarfið mun erfiðara. Þingmað- ur dæmd- ur fyrir kókaín- sölu Þingmaður frá Colombíu hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi í Banda- ríkjunum fyrir aö hafa selt 10 kg af kókaíni í New York. Verjandi hans sagði það einstakt undantekningartil- vik, sprottið af hugdettu. Carlos Nader-Simmonds (37 ára) hefur setiö í níu ár á fúlltrúaþingi Colombíu en brot hans gat varðað allt aðl5árafangelsi. Upp um hann komst þegar hann hafði látið leynierindrekum fíkniefna- lögreglu Bandaríkjanna í té sýnishom á kókaínsendingu sem átti að fara til Hamborgarí Vestur-Þýskalandi. Með honum var dæmdur í 33 mánaöa fangelsi fyrrum ritari í ræðismanns- skrifstofu Colombíu í Hamborg. Skæruliðar i birgðaflutningum i Angóla. Leggja að USA að við- urkenna Angólastjóm Portúgalsstjórn hefur tilkynnt Bandaríkjunum að það verði „mjög jákvætt skref” í átt til þess að koma á friðií suöurhelmingi Afríku að Banda- ríkjastjórn viðurkenndi Angóla. Kom þetta fram eftir viðræður sem Frank Wisner, aðstoðarutanríkisráð- herra USA, átti í gær við Mario Soares, forsætisráðherra Portúgals, og Jaime Gama utanríkisráðherra. Þar gerði Wisner hinum grein fyrir leyniviðræð- um sem hann átti í Cape Verde í síö- Kiessling hershöfðingi hefur komið ráðherranum istórvanda. ustu viku við f ulltrúa frá Angóla. Ýmsar getgátur eru á kreiki um þessar leyniviðræður og jafnvel talið að í þeim felist lykillinn að lausn vandans um sjálfstæöi Namibíu (Suövestur-Afríku), sem Suöur-Afríka drottnar yfir í óþökk Sameinuðu þjóð- anna. Bandaríkin hafa stutt kröfur Suður- Afríku um að kúbanskt herliö verði á brott frá Angóla áður en friður verði saminn við Angóla í skærum þessara nágrannaríkja út af Namibíu. Vera 25 þúsund til 40 þúsund kúbanskra hermanna í Angóla hefur jafnframt verið aðalþröskuldurinn í vegi fyrir því að Bandaríkin viðurkenndu stjóm Marxista í Luanda, sem farið hafa með stjórn landsins síðan Portúgalir veittu Angóla sjálfstæði 1975. Pyk Botha, forsætisráðherra Suöur- Afríku, kom í heimsókn til Lissabon í nóvember í vetur og upp úr því hófust viðræður milli S-Afríku og marxista- stjórnarinnar í Mozambique. Angóla, Suöur-Afríka og SWAPO- skæruliðar Namibíu hafa öll samþykkt í orði 30 daga vopnahlé sem Botha lagði til en hvert um sig hefur sett fram skilmála, sem hin hafa ekki fengist til aö samþykkja. Evrópumenn drepn- iríUganda Stjórn Uganda hefur borið af sér ásakanir stærstu skæruliðasamtaka landsins um að hún beri ábyrgð á drápi fjögurra Evrópumanna í grennd viö Kampala á sunnudaginn. Skæruliðarnir þræta fyrir að hafa drepiö fólkið eri segja líklegast að „morödátar Obote forseta” hafi verið þar að verki. — I yfirlýsingu frá ríkis- stjóminni er gefið í skyn aö skæru- liðarnir hafi myrt fólkið til þess að koma óorði á stjóm landsins, áður en til fundar kemur með fulltrúum Ug- anda og ýmsum vestrænum góðgerðaraðilum (í París í þessari viku) sem gefa hjálpargögn ýmiss konar og matvæli til Uganda. Vitnað er í fyrri yfirlýsingu leiötoga skæruliöa í mars í fyrra þar sem hann sagði aö skæruliðar heföu aðvarað alla útlendinga í Uganda í allra síðasta sinn. Ráðherra að baki dauðasveitunum Wömer i vandræoum Varnarmálaráöherra Vestur-Þýska- lands, Manfred Wömer, sem þegar stendur í pólitísku illviðri fyrir áð hafa rekiö einn af æðstu yfirmönnum hers- ins og sakað hann um kynvUlu er nú lentur í enn meiri vandræðum. Ástæðan er sú aö skjöl úr ráðuneyti hans fundust ískuröi nálægt Koblens í október sl. og tókst tímaritinu Stern að komast yfir þau. Er hér um að ræöa tölvuutskrift varðandi hergögn sem talsmaður vamarmálaráðuneytisins segir að sé ekkert leyndarmál. Hins vegar hafa sósíaldemókratar sem em í stjómarandstööu gert sér mat úr máUnu, segja að þetta sé „öryggis- leki” og krefjast skýringa Wörners á þinginu í dag. Ekki er vitað hvort Wörner mætir sjálfur tU aö svara fyrirspurnum varðandi þetta „öryggishneyksli” eins og einn sósíaldemókratinn í vamar- málanefnd þingsins orðaði það. Sama nefndin byrjar yfirheyrslur á morgun vegna brottvUíningar Kiess- Ungs herforingja, sem harðneitar ásökunum um kynvUlu og mútuþægni í því sambandi. En sósíaldemókratar vUja að Wörner segi af sér vegna KiessUngmálsins. I gær átti Wörner fund meö mörgum háttsettum aðilum mnan hersins í Bonn og svaraði spurningum varðandi KiessUng herforingja sem var annar æösti yfirmaður NATO í Evrópu, er 58 ára og ókvæntur. I mjög varfærinni yfirlýsingu að fundi loknum var sagt að herforingj- amir hefðu komið sér saman um að á þeim upplýsingum sem Wörner byggði hefði hann ekki átt annarra kosta völ en að handtaka KiessUng í desember sl. Stjómskipuð nefnd í Argentínu sem rannsakaö hefur örlög þúsunda manna sem hafa horfiö leggur tU að stjómvöld í landinu komi í veg fyrir að tugir hátt- settra manna úr her og fyrri stjóm yfirgefi Argentínu. Er nefndin í þessu tiUiti aöaUega að vísa til aðila tengdra herforingja- stjórninni sem var við völd frá 1976 þar tU þingræðislegu fyrirkomulagi var aftur komið á í desember sl. Nefndin segir aö banna eigi fyrrverandi ráðherra mnanríkismála að yfirgefa landið sem og herforingj um. Segir nefndin að vitnisburöur um- ræddra aðUa geti orðið mikilvægur í rannsóknum á mannshvörfum vegna „sóðastríðsins” svokaUaða gegn vinstri skæruliðum sernt á sjöunda áratugnum. Stjóm Alfonsin mun ekki vera tilbúin tU að gefa út tUskipun þess efnis að meina fimmtíu manns aö hverfa af landi brott og þurfa mál hvers viðkom- andi einstaklmgs að fara fyrir rétt. Nú þegar sitja margir háttsettir aðilar frá tímum herformgjastjómarmnar í fangelsi, m.a. fyrrum forseti sem Alfonsin tók við af, Reynaldo Bignone. Meðal þeirra sem nefndin leggur tU að veröi bannað að yfirgefa landið er innanríkisráðherrann Jose Lopez Rega sem einhverjU- nátengdm segja einn helsta hönnuð dauðasveitanna svonefndu sem voru í samvmnu við öryggissveitir hers í „sóðastríðinu”.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.