Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Qupperneq 15
ÐVi. MIÐVIKUDAGUR25i JANUAR1884.
Menning
Menning
Dagur
reiði
og
Vorsin-
fónían
Tónlkeikar Sinfóníuhljómsveitar íslands, Söng-
svoitarinnar Filharmónfu og fólaga úr Fóstbrœðr-
um (Háskólabíói 19.janúar.
Stjórnandi: Guflmundur Emilsson.
Einsöngvarar: Marianne Mellnös, Sigurður
Björnsson, Sven Anders Benktson.
Efnisskrá: Krysztof Penderecki: Dies Irae; Robert
Schumann: Sinfónía nr. 11 B-dúr, op. 38.
Þegar Penderecki samdi Oswiecim
oratorio eöa Dies Irae haföi hann
þegar slegið í gegn. Það geröist á árinu
1958 aö hann stökk alskapaöur sem
tónskáld fram á völlinn með verkun-
um ,,Ur Davíðssálmum” og
„Utstreymi”. Og þegar í upphafi ferils
voru honum trúarleg yrkisefni huglæg.
Ahrif Pendereckis á tónskáld sam-
tímans eru sterk og má meðal annars
sjá óræk merki þeirra hér á landi. —
Dies Irae ber öll höfuöeinkenni hand-
bragös Pendereckis. Framsetningin er
djarfleg, smíöin frumleg og drama-
tíkin í hámarki. Og svo er verkið þræl-
snúiö til flutnings. Á metríska þáttinn
leggur Penderecki ekki ríka áherslu,
en ætlar flytjendum aö skapa stemmn-
ingar eftir eigin tilfinningu. Guömund-
ur Emilsson stjórnaði hins vegar all-
stíft og hélt öllu í föstum ryþmiskum
skorðum. Það leiddi til þess aö flytj-
endur skiluðu tónum og texta mjög
skýrt, en fyrir vikið varö minna úr
þætti tilfinninganna. Kveinstafimir
uröu þvi áhrifaminni en efni stóðu til
þar sem kórinn var með þessu full-
haminn. Aö öllu samanlögðu var þessi
leið varfærninnar samt sú skynsam-
legasta því hætt er viö að músíkalska
hliöin heföi ekki reynst jafnskýrt og vel
mótuö ef veldi tilfinninganna heföi
mátt sín meira. Gott jafnvægi rikti
meö röddum kórsins og hljómsveitin
stóö vel fyrir sínu. Slagverkamenn í
aöalhlutverkum sýndu hér hvaö í þeim
bjó, búnir alvæpni, ef svo má segja.
Þaö voru ekki hvaö síst hljómfögur
gongin, fengin aö láni utan úr bæ, sem
lyftu hljómnum til hæöa.
Einsöngvararnir fluttu sína þætti af
skörungsskap. Marianne Mellnás hef-
ur feikn mikla rödd sem hún beitir af
öryggi og ekki brást Sigurður fremur
en venjulega. Sven Anders Benktson
fannst mér allmikið þurfa að hafa fyrir
hlutverki sínu. En hann kom öllu vel til
skila og hefur afar viðkunnanlegan
djúpbassa. — Ekki verður svo skilið
viö Dies Irae aö ógetið sé upplesturs
Baldvins Halldórssonar á íslenskri
þýðingu textans. Hann var eitt áhrifa-
mesta atriöið í flutningi þessum, öll-
um.
Eftir hlé skyldi slegið á léttari
strengi. Vorsinfónía Schumanns heföi
aldeilis átt að vera hljómsveitinni og
stjómandanum upplagt tækifæri til aö
sletta svolítiö úr klaufunum. Og eftir
varfærnina í Dies Irae átti ég von á að
svo mundi verða. En Guðmundur tók
þann kostinn að halda fast um stjórn-
völinn. Hann lagði meira upp úr því
aö slá taktinn beran en að teikna
Tónlist
Ey jótfur Melsted
mjúkar línur og móta hljómfullar
hendingar. Hraðavalið var heldur ekki
alveg í samræmi viö það sem almennt
tiökast. Byrjunin var til dæmis dálítið
stiröleg og scherzo þátturinn íviö of
daufur en víða brá þó fyrir laglega
leiknum köflum. En hér úti á Islandi
eru menn svo sem alvanir því aö
vorþeyrinn geti snúist upp í noröan
garra og vist koma oft góö sumur eftir
köldvor.
EM
Á VECUM
OC VECLEYSUM
Við leígjum hina frábæru
PORTARO 4 hjóladrifs-jeppa
á verði sem enginn getur
keppt við.
b)i»ii)i>wv
VÖljYn rTIZ'Z' Smlðjuveol 44 d ■ Köpavogl
^+*u**~— Slmar 75400 og 78660
1 SMÁAUGLÝSINGAÞJÓNUSTA
viDQEnin
IEITKR SPORIN
OG AUDVELDAD ÞER FYRIRHÖFN
• Afsöl og sölutilkynningar bifreiða
• Húsaleigusamningar (löggiltir)
• Tekið á móti skriflegum tilboðum
Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá
um að svara fyrir þig símanum. Við tökum á móti
upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær í góðu tómi
virka daga kl OPIÐ: laugardaga 9 sunnudaga k .9- -1 1.11 -22 4 3—22
Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17.
SÍMINN ER 27022
ATHUGIÐ Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17föstudaga.
SMÁAUGLÝSINGADEILD,
ÞVERHOLT111, SÍMI27022.