Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Side 30
30
DV. MIÐVIKUDAGUK 25. JANUAR1984.
Dómarar
vilja
aðskilnað
sýslu-
starfa og
dómstarfa
A aöalfundi Dómarafélags Reykja-
víkur, sem reyndar er félag dómara
um land allt, á síöasta ári kom fram
stuðningur viö margvíslegar umbætur
á réttarfari hér á landi.
Samþykkt var aö hraöa bæri heildar-
endurskoöun dómstólaskipunarinnar,
sem fæli meðal annars í sér lögtöku
frumvarps um millidómstig, Lög-
réttu, og aö stjórnsýslustörf og dóm-
störf yrðu aöskilin í sem ríkustum
mæli.
Sýslumenn og bæjarfógetar eru ekki
í dómarafélaginu.
-Þó.G.
Húsavík:
ATVINNUÁSTAND
FREMUR SLÆMT
Frá Inglbjörgu Magnúsdóttur,
fréttaritara DV á Húsavík.
A atvinnuleysisskrá á Húsavík eru
60—70 manns úr bænum og aö auki
30—40 úr nærsveitum, þar af um 20
úr Aðaldal.
13. janúar hófu um 180 manns aftur
vinnu hjá Fiskiöjusamlagi Húsa-
víkur en þar haföi vinna legið niöri
síðan fyrir jól. Ráöningarsamningar
tóku aftur gildi þegar vinna hófst en
þeim var sagt upp í nóvember og var
verkafólkiö á atvinnuleysisskrá þá
daga sem ekki var unnið. Voru þaö
1—3 dagar í nóvember, 4—8 í
desember og 10 í janúar. Ekki lítur
allt of vel út um atvinnu viö fisk-
vinnslu í janúar, febrúar og mars.
Gæti hún orðið stopul og er að sjálf-
sögöu háö því hve mikill afli berst á
land. Þaö hefur áhrif ef margir
stærri bátar fara suður á vertíö og
óvissa er um hver áhrif kvótakerfis-
insveröa.
Atvinnuástand í öðrum greinum er
í daufara lagi, um 20% meira
atvinnuleysi í desember 1983 en í
desember 1982.
„Viö veröum aö fá ný atvinnutæki-
færi í þessum bæ ef viö eigum ekki aö
horfa fram á fólksfækkun. Að vísu
ætti aö vera hægt aö fullvinna meira
úr sjávarafuröum en ég sé ekki
annaö en að fleira þurfi aö koma til,”
sagöi Kári Arnór Kárason hjá Verka-
lýösfélagi Húsavíkur í samtali við
fréttaritara DV.
-GB.
Samtök
eðlisfræöinga
gegn
kjarnorkuvá
Samtök íslenskra eölisfræöinga gegn
kjamorkuvá hafa veriö sett á stofh.
Tilgangur samtakanna er aö afla fróö-
leiks og veita fræðslu um kjarnorku-
vopn og áhrif af beitingu þeirra. Mark-
miö samtakanna er aö vekja al-
menning og stjórnvöld til umhugsunar
um yfirvofandi tortímingarhættu, aö
því er segir í fréttatilkynningu.
Samtökin segjast óháö stjórnmála-
flokkum og hreyfingum. Aöild aö
samtökunum er heimil eölisfræðing-
um, eölisfræðinemum sem og öörum
sem starfa í skyldum greinum. I stjóm
samtakanna eiga sæti Gísli Georgsson,
Hans Guömundsson og Knútur Árna-
son.
Árver hf. á Árskógssandi:
r
RÆKJUVINNSLA A
AÐ HEFJAST ,
UM MIÐJAN MAI
Stofnaö hefur veriö á Árskógsströnd
hlutafélagiö Árver til að sinna rækju-
vinnslu á Árskógssandi samkvæmt
nýfengnu leyfi. Að félaginu standa níu
útgeröaraöilar á Árskógssandi og
Hauganesi, sveitarfélagiö, Kaupfélag
Eyfiröinga og einstaklingar. Um 150
manns hafa skráö sig fyrir hlutafjár-
loforöum.
Stofnfundurinn var haldinn þann 11.
þessa mánaðar, en á þremur dögum
þar á undan söfnuöust sjö milljónir
króna í loforöum. Hlutaféð á aö veröa 8
milljónir. KEA mun eiga stærsta hlut-
inn, eöa 33% af hlutafé.
Sveinn Jónsson frá Káifsskinni er for-
maöur Árvers hf. en með honum í
stjórn eru Valdimar Kjartansson og
Karl Steingrímsson frá Hauganesi,
Höröur Gunnarsson frá Árskógssandi
og Kristján Olafsson á Dalvík.
Sveinn sagöi í samtali viö DV að sjö
bátar hygöust gera út á rækju í sumar
og ætti það aö nægja fyrir verk-
smiðjuna miöað viö eitt hundraö tonn á
bát. Þess utan virtust margir fleiri
hafa áhuga á aö leggja upp hjá Árveri.
Húsnæði heföi fengist hjá tveimur
útgeröaraðilum á Arskógssandi og
þyrfti litlu aö breyta þar, hins vegar
væri þaö heldur lítiö.
Vélakostur verksmiðjunnar mun
kosta 9—10 milljónir króna. Pillunar-
vélarnar veröa fengnar frá Laitran
verksmiöjunum í Bandaríkjunum og
var sölustjóri þess fyrirtækis á ferö
noröanlands á dögunum. Gufuketil og
ýmsan annan búnaö er hægt aö smíða
innanlands.
Áætlað er aö hefja framleiðslu ekki
síöar en um miðjan maí, sagði Sveinn
Jónsson. Miöað væri við aö 15 manns
fengju vinnu í verksmiðjunni og allt aö
helmingi fleiri ef nægjanlegt hráefni
yröi til aö vinna á tveimur vöktum.
-JBH/Akureyri.
Alls heimsóttu 77.592 útlendingar Islandáríð 1983.
Erlendum feröamönnum fjölgaöi
Erlendir ferðamenn á Islandi voru
6,9 af hundraði fleiri á nýliönu ári
miöaö viö árið áöur. Alls komu 77.592
útlendingar til landsins áriö 1983,
samkvæmt yfirliti Utlendingaeftir-
litsins.
Bandaríkjamenn voru fjölmenn-
astir eöa 24.915 talsins. Frá Bret-
landi komu 8.868 ferðamenn. Vestur-
Þjóöverjar voru 8.765 talsins, Danir
6.665, Svíar 5.554, Norðmenn 5.345 og
Frakkar 3.922.
Ferðamennirnir komu frá 103 ríkj-
um. Frá þrettán ríkjum kom aðeins
einn maöur. 35 feröamenn höföu
ekkert ríkisfang.
-KMU.