Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 3. FEBRUAR1984.
SÆNSKUR SÉRFRÆÐ-
INGUR RÁÐINN
— til að auka markaðshlutdeild íslendinga á Norðurlöndum
Innan skamms veröur hafist handa
viö að efla kynningu og markaössetn-
ingu á íslenskum vörum og þjónustu á
Noröurlöndum. Til verksins veröur
fyrst um sinn fenginn sænskur
markaðssérfræðingur sem gjörþekkir
Norðuriandamarkaöinn og honum til
aöstoðar verða íslenskir aðilar. Veröur
þetta gert í samráði við íslenska út-
flytjendur.
Viðskiptahalli Islands við hin
Norðurlöndin kom til umræðu á fundi
viöskiptaráðherra landanna í Stokk-
hólmi í byrjun desember og lýstu þeir
sig samþykka því að Norræna ráð-
herranefndin veitti fé til ofangreinds
verkefnis. Allar líkur benda nú til aö á
fjárlögum nefndarinnar þetta árið
verði veittar 500 þúsund norskar
krónur til þessa. Þá er þess einnig
vænst að íslenskir aðilar leggi fé á
móti.
Að sögn Ulfs Sigurmundssonar hjá
Utflutningsmiðstöð iðnaðarins h'st
mönnum þar vel á aö fá aukið fé til
markaðsöflunar fyrir íslenskar vörur,
en hann sagði að margir heföu þó kosið
að íslenskur maður væri fenginn til að
stjórna því. Þaö heföi sína galla aö
þetta væri erlendur maður. Hann
þyrfti að hafa mikið fyrir því að setja
sig inn í íslensk málefni. Kostimir
væru hins vegar þeir aö maðurinn
stæði nær markaöinum sem ætti að
komastinná.
-GB.
Islendingur á Akur-
eyri íhugar stækkun
— útgáfa sjónvarpsblaðs einn af möguleikunum
„Við erum að kanna ýmsa mögu-
leika í rekstrinum og eitt af þvi, sem
hefur komið til tals, er útgáfa á blaði
þar sem sjónvarpsdagskránni yrðu
gerð góð og rækileg skil,” sagði Hall-
dór Halldórsson, ritstjóri Islendings á
Akureyri, þegar hann var spurður
hvort í uppsiglingu væru breytingar á
blaðinu.
Halldór sagði aö þetta yrði þó aöeins
viöbót við blaðið, það myndi halda
áfram aö flytja fréttir eins og áður. Ef
af þessu yrði myndi upplag blaðsins
hins vegar veröa aukið verulega og því
jafnvel dreift ókeypis.
Halldór sagði aö rekstur Islendings
gengi vel og þetta væri aöeins ein hug-
mynd af mörgum um stækkun. önnur
væri sú aö fjölga útgáfudögum og fara
í áskriftarherferð. Ekki vildi Halldór
tímasetja þessar breytingar ef í þær
yrði ráöist.
-GB.
Þessi skothylki komu fyrir skömmu i troll hji bátí á Grundorfirði. Bfmynd-
in prentost vel má sjá að þau eru frá árunum 1943 og 1944. Kúlurnar voru
enn á hylkjunum þegarþau komu úr hafdýpinu.
DV-mynd Bæring Ceciisson.
FORSETAKJÖR
Á LAUGARDEGI
Samkvæmt stjómarfrumvarpi,
sem lagt var fram á Alþingi í gær,
munu forsetakosningar fara fram á
laugardegi í staö sunnudags eins og
veriö hefur.
Samkvæmt núgildandi lögum skal
reglulegt forsetakjör fara fram
síöasta sunnudag í júnimánuði.
Ákvæðum laga um kosningar til Al-
þingis og um sveitarstjórnarkosn-
ingar hefur hins vegar verið breytt
þannig að kjördagur verði á laugar-
degi i staö sunnudags áður. Er þetta
frumvarp lagt fram til að sama
skipan verði höfö á viö forsetakjör.
-ÖEF.
Um helgina eiga allir leigubílstjórar erindi í Lágmúla 5, því
við kynnum hinn frábæra Citroén BX Diesel lauqardaq
4/2 frá kl. 13 til 18 oq sunnudaq 5/2 frá kl. 13 til 18.
Citroén BX Diesel er tvímælalaust einn ódýrasti og
hagkvæmasti bíll sem hægt er að fá til leigu-
aksturs á íslandi og samt sem áður ríku-
lega búinn: 1905 cm3, 65 DIN hestafla,
4ra strokka, vatnskæld vél, 5 gíra
kassi, framdrif, vökvastýri, diska-
bremsur á öllum hjólum, litað gler,
rafdrifnar rúður og læsingar, loftnet og
4 hátalarar, þurrka á afturrúðu, snúnings-
hraða- og smurmælir og kvartsklukka.
Citroén BX Diesel með ofangreindum búnaði
ásamt skráningu (án þungaskatts) og 6 ára ryðvarnar-
ábyrgð kostar aðeins kr. 359.260,- til leigubílstjóra.
G/obusf
LÁGMÚLI5,
SÍMI81555
CITROÉN *