Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Page 5
DV. FÖSTUDAGUR 3. FEBRUAR1984. Útvarpslagafrumvarpið: „Ég er mjög svartsýnn” — segir fulltrúi Framsóknarflokks Olafur Þ. Þórðarson, fulltrúi Framsóknarflokks í viðræðum um útvarpslagafrumvarpið og nýjustu útgáfu þess, sagði við DV í gær að hann kannaðist ekki við að sendar hefðu verið tillögur frá þingflokki hans til Sjálfstæðisflokks vegna nýju útgáfunnar af frumvarpinu. En frétt útvarpsins í fyrrakvöld sagði aö bráðlega mætti vænta svars Sjálf- stæðisflokks viö slíkum tillögum. I umræddri frétt útvarpsins sagði m.a. að þingflokkur Framsóknar- flokks hefði sent þingflokki Sjálf- stæðisflokks tillögu að frumvarpi til útvarpslaga og þar sé hafnað ákvæðum i áliti útvarpslaganefndar um að einkaaðilum verði leyft aö stunda útvarpsrekstur meö þráðlausum hætti. Enn fremur sagði aö öll ákvæði um útvarpsréttamefnd hafi verið strikuð út en ekki yrði amast við kaplasjónvarpi. Þá sagði í umræddri frétt aö Sjálf- stæðisflokkur hafnaöi þessum til- lögum Famsóknarflokks og búist væri brátt við gagntillögum hans. Haraldur Olafsson, annar fulltrúi Framsóknarflokks í viöræðunum um •útvarpslagafrumvarpið sagðist ekki vita hvaðan útvarpið hefði þessa frétt — hann kannaðist ekki við að Framsóknarflokkurinn hefði sent inn tillögur til Sjálfstæðisflokks af þessu tagi. Ragnhildur Helgadóttir hefði sent þingflokknum í siöustu viku nýja útgáfu af frumvarpinu og eftir því sem hann besti vissi (og staöfest var af Páli Péturssyni þingflokksfor- manni í DV í gær) væri vart byrjað að fjalla um hina nýju útgáfu frumvarpsins af hálfu framsóknar- manna. Hins vegar sagði Haraldur að Framsóknarmenn hefðu lýst yfir sínum hugmyndum um kapla- sjónvarp og útvarp með þráðlausum hætti í byr jun desember, en það hefði ekki verið endanlegt. Olafur Þ. Þórðarson sagði í samtali við DV að það hefði verið fjaliaö lítilsháttar um hina nýju út- gáfu útvarpslagafrumvarpsins á þingflokksfundi Framsóknarflokks í fyrradag. ,,Ég vil undirstrika aö þaö er ekki rétt, sem kemur fram í þessari út- varpsfrétt, að við höfum sent inn til- lögur til Sjálfstæðisflokks um okkar hugmyndir. Okkar hugmyndir hafa aðeins verið settar fram i viðræðum við fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og þeir hafa hafnað okkar hugmyndum áöur en við höfum náð því stigi að geta rætt t.d. kaplasjónvarpið. Hins vegar fer umrædd útvarpsfrétt að einhverju leyti nálægt því sem komið hefur fram í viðræðum á milli full- trúanna en ég vil ekki tjá mig mikið meira um þetta,” sagði Olafur og bætti við: „Ég er mjög svartsýnn. Það kemur fram hjá sjálfstæðis- mönnum í endurskoðuðu útgáfunni að frumvarpinu, m.a. hugmyndir um auglýsingar, sem ég held að við eigum mjög erfitt með að sætta okkur við.” Þá sagði Olafur aö ekki væri mikil breidd á milli hans og Haralds Olafssonar í afstöðunni til þessa máls. „En ég er þeirrar skoð- unar að við eigum að fella niður tolla af myndsegulböndum þannig að fólk geti labbað út og leigt sér myndbönd. A Islandi er ekki rekstrargrund- völlur til að reka fleiri útvarps- stöövar,” sagði OlafurÞ. Þórðarson. DV náði tali af Friðriki Sophussyni í gærmorgun og kvaðst hann ekki hafa heyrt frétt útvarpsins en væri það rétt að framsóknarmenn hefðu gefið út yfirlýsingu af því tagi aö þeir væru mótfallnir útvarpi með þráð- lausum hætti væri þeim rétt lýst. „Þetta er táknrænt afdalasjónar- mið,” sagði Friðrik og bætti við: „Þetta eru svo miklir sveitamenn. Séu þeir á móti útvarpi með þráðlausum hætti sýnir það aö ekkert má gera fyrir þéttbýlið. En slfkt útvarp yrði hagkvæmt í þétt- býli. Sagði Friðrik jafnframt að í endurskoöaðri útgáfu útvarpslaga- frumvarpsins, sem Ragnhildur Helgadóttir hefði sent þingflokkun- um í síðustu viku, kæmu sjálfstæðis- menn til móts viö framsóknarmenn með því að helga fyrsta kafla frumvarpsins algerlega ríkisút- varpinu. „Framsóknarmenn vilja gera því hæst undir höfði og við höfum fallist á þaö. En án þess aö þeir hafi svarað þessari nýju útgáfu þá veit ég að það hefur ekki fengið glimrandi undirtektir hjá þeim sú skoðun okkar sjálfstæöismanna að skipa eigi útvarpsréttamefnd emb- ættismönnum en ekki aö kjósa í hana, eins og útvarpslaganefnd lagði til,” sagði Friðrik Sophusson. -HÞ. SEINASTIFRESTUR TIL AÐ BORGA JÓLAGJAFIRNAR Nú, nk. mánudag, er seinasti frestur aö gera upp skuldir sínar við greiöslu- kortafyrirtækin. En um jólin var mönnum tíðrætt um að greiðslukorta- eigendur hefðu bjargað jólavertíðinni með því að kaupa jólagjafirnar upp á krit. Margir töldu þetta vera skamm- góöan vermi og það kæmi að því að f ólk yrði í vandræðum með að gera skil. Aö sögn beggja forráðamanna greiöslu- kortafyrirtækjanna, sem hér eru starf- andi, viröist sem flestir hafi verið hóflegir í úttektum og ekki nema örfáir sem hafa farið yfir leyfilega úttekt. En þar með er ekki öll sagan sögð, erfiðleikarnir geta verið fyrir hendi að greiða þessar upphæðir, þar sem fyrir- hyggjan hefur ekki verið í fyrirrúmi. I flestum tilfellum er úttektarheimildin 20 þúsund krónur sem getur verið ofviða mörgum á þessum seinustu og verstu tímum. -APH. t KAIMGOL , ^ Alpahúfur — angóruhúfur — filthattar túrbanar — angóruhattar — regnhattar. — Pepe <>0 derhúfur HATTA- OG GJAFABÚÐIN FELL Frakkastíg 13, sími 29560. „ALDREI IMYRKRI - nokkrir þingmenn vilja dragaúrveiðumí svartasta skammdeginu Þingmennirnir Eyjólfur Konráð Jónsson, Egill Jónsson, Halldór Blöndal, Pétur Sigurðsson og Arni Johnsen hafa lagt fram þings- ályktunartillögu þess efnis aö rikis- stjómin beiti sér fyrir að fiskveiðar verði mjög takmarkaöar í svartasta skammdeginu. Máli sinu til stuönings segja þeir veiðamar óhagstæðastar og hættuleg- astar á þessum tíma, fiskvinnslan óarðbær og atvinna við hana stopul. Vilja þeir stööva veiðar og láta dytta að sem flestum húsum og skipum á meðan á tímabilinu frá miðjum desem- ber fram í miðjan janúar. Sjómönnum 'og fiskvinnslufólki verði tryggð einhver laun á meðan meö því t.d. að greiðaþeimúthlutaorlofs. -GS. Fáskrúðsfjörður: Aukin atvinna Frá Ægi Kristinssynl, fréttaritara DV á Fáskrúðsflrðl. Skuttogarinn Hoffell landaöi 100 tonnum af blönduöum fiski á fimmtudag eftir viku útivist. Ljósafell SU landaði 65 tonnum fyrr í vikunni. Nú eru 5 manns á atvinnuleysisskrá á Fáskrúðsfirði, en voru mest 90 um áramót. GB. < ”> (D O > 00 Q < D H 0C LU I: < H 00 Q < D t oc < n. I < ui oc 00 D I- VILTU BREYTA - ÞARFTU AÐ BÆTA —ERTU AO BYGGJA - VILTU BREYTA-U LITAVER -■ AUGLÝSIR NÚ VORUM VIÐ AÐ BREYTA OG BÆTA, NÝ, GLÆSILEG MÁLNINGARDEILD, VERIÐ ÁVALLT VELKOMIN • Hefurþúkynnt þér afslátt og greiðsluskilmála okkar? 0piðtilkl.7 á föstudögum og hádegis á laugardögum. MÁLNINGARTEG.: • Kópal • Pólitex • Hörpusilki • Vítretex • Spred-Satin • Nordsjö Hreyfilshúsinu Grensásvegi. Sími 82444. 33 3 C > o 00 fe H > I m 30 H C > o oo < Q O (_ > C 00 33 m < > vpððab av n±M3 - v±3^a av n±duvd - v±A3us n±iiA - vpðða'i gv n±ua

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.