Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Side 6
6 > «• r, r rS \ T T C*" C* rr.rrr p m Tr> \ ■ “TTjrr r>£' CT DV. FOSTUD AGUR 3. FEBRUAR1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd ÞRIR FRANSKIR ÞING- MENN HÝRUDREGNIR Franska þíngið greiddi því atkvæði í gær að þrír þingfulltrúar skyldu hýru- dregnir í refsingarskyni fyrir óvirð- ingu við Frakklandsforseta Francois Mitterrand. A það sér ekkert fordæmi i sögu þingsins. Dreginn skal helmingurinn af þing- launum þessara þriggja fyrir næsta mánuö þar sem þeir neituöu aö taka aftur ummæli sem þingmennimir þrír höföu látið falla um feril Mitterrands á hernámsárum nasista. Höföu þremenningarnir dregið í efa að Mitterrand hefði verið svo óhollur nasistum eins og hann sjálfur vildi vera láta. Mitterrand fékk á sínum tima heiöurspening fyrir sitt framlag til andspyrnuhreyfingarinnar. Þegar úrslit lágu fyrir í gær var mikið púað af stjórnarandstæöingum og einn hinna hýrudregnu sakaöi vinstri öflin um að reyna að beina at- hygli kjósenda frá því, sem hann kall- aði getuleysi sósialista til að stjórna. Sættirí deilu Times Sættir tókust í gær í vinnudeilunni við Lundúnablaðið Times og mun blaðið koma út á morgun en útgáfa þess hefur stöðvast í átta daga. Prentarar Times staðfestu í gær samkomulag sem náðist milli útgef- enda blaðsins og leiðtoga landssam- taka prentara þar sem báðir aðilar slökuðunokkuötil. Deilan hófst á því að blaðiö réð einn úr prentarafélaginu til að vera safn- vörður, án samráðs við félagiö sem hefur rétt til að ákveða í hvaða verk meðlimir þess gangi. 750 prentarar lögðu niður vinnu en útgáfan rak þá alla með tölu, setti verkbann á aðra og lokaði. Sunday Times kom heldur ekki út 29. janúar. — Þaö var í fimmta sinn að útgáfa blaösins stöðvaðist á síðustu þrem árum, síðan ástralski blaðakóngurinn, Rupert Murdoch, keypti útgáfuna. Verkalýöserjur hafa mjög sótt á Times og hefur útgáfan stöðvast alls tólf sinnum á síðustu fimm árum og kom blaðið ekki út nærfellt í heilt ár (’78— ’79). Prentarafélagið samþykkti í gær bókavarðarskipanina og rétt fyrir- tækisstjórnarinnar til að veija úr utan- aðkomandi umsækjendum fyrir 40 aðr- ar stöður hjá fyrirtækinu. En útgáfan samþykkti að nýráðnir mundu þurfa að ganga í prentarafélagið. PERKINS SEKTAÐUR FYRIR LSD Leikarinn Anthony Perkins var dæmdur í 100 sterlingspunda sekt í gær fyrir að hafa smyglað LSD og kannabis til Bretlands. Höföu fundist 3 LSD-töflur og 8 grömm af kannabis á Perkins þegar hann kom á sunnudaginn á Heatrow- flugvöll frá Los Angeles. Perkins vinnur við gerð sjónvarpsþátta sem kallast „The Glory Boys” og er hluti þeirra tek- inn í Bretlandi. Hófst vinnsla þeirra í desember. Thatcher heimsækir Ungverjaland og Kadar Bretland: /I tvinnuleysi eykst að nýju Atvinnuleysi jókst á ný í Bret- landi síðastliðinn mánuð eftir að það hafði minnkað næstu þrjá mánuðina á undan. Atvinnulausir Bretar eru nú þrjár milljónir og tvö hundruð þús- und eða 120 þúsund fleiri en í desembermánuði. Alls eru nú 13,4 prósent vinnufærra manna í Bret- landi atvinnulaus. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, kom til Búdapest í gær í sina fyrstu heimsókn til austan- Thatcher virðist njóta nokkurrar aðdáunar Ungverja af blaðaskrifum að dæma vegna helmsóknar hennar þangað. tjaldsríkis og mun hún eiga í dag fund með Janos Kadar, leiðtoga Ungverja- lands, um þörfina fyrir átak til varð- veislu heimsfriðarins. ,,Við eigum ekki nema 16 ár eftir í næsta árþúsundiö, og við verðum að gera eitthvað til þess að viðhalda friðnum þangað til,” sagði hún við komuna til Búdapest. Þetta er fyrsta heimsókn bresks forsætisráðherra til Ungverjalands og er hún þar eystra túlkuð sem vottur um hugsanlega þíöu í samskiptum austurs og vesturs eftir kaldastríðs- ástand síðustu mánaða. Heimsókn Thatchers hefur hlotið mikla umfjöllun í ungverskum blöðum og hefur verið daglega á forsíöum og í forystugreinum. Virðist af ummælum sem „járnfrúin” njóti töluverðrar aðdáunar hjá Ungverjum. 34 FÓRUSTí ÓVEÐRI í AFRÍKU 34 eru taldir hafa f arist í f lóðum sem fylgdu í kjölfar mikils hvirfilvinds sem gekk yfir Mozambique og Suður-Af- ríku. Orhellisrigningar í þrjá daga samfleytt leiddu til flóðanna þar sem hundruð manna misstu heimili sín. Ein af þverám Incomati-árinnar flæddi yfir bakka sína í gær og ein flóð- bylgjan reif með sér tólf manns. Þaö stytti loks upp í gær um leið og hvassviðrið fjarlægðist land en víða voru bæir einangraðir bæði í Mozam- bique og Suður-Afríku. Ósk Walesa um viðræður haf nað af stjórninni Pólsk stjómvöld höfnuðu í gær ósk Lech Walesa, leiðtoga Einingar, um viðræður. Var samtimis skýrt frá trúnaðarbréfi er Walesa hafði ritað til Jaruselskis forsætisráöherra og óskað eftir samstarf i í þágu Póilands. Walesa lét og í ljósi ótta um aö stjómvöld ætluðu sér að útiloka hann algjörlega frá allri þátttöku á stjórn- málasviðinu. Hann sagði ennfremur að hann og fjölskylda hans hefðu sætt margs konar harðræði af hálfu yfir- valda. Svar stjórnvalda var á þá leið að ásakanir hans væm úr lausu lofti gripnar og settar fram í auglýsinga- skyni. Svar stjórnvalda var stílað til „borgarans” Lech Walesa en það orða- lag nota pólsk stjómvöld að sjálfsögöu í þeim tilgangi að sýna að Walesa hafi ekki lengur neinu hlutverki að gegna í pólsku stjómmálalíf i. YokoOno lifirí stöðugum óttaog martröð „Þegar John var myrtur hélt ég að þaö væri það versta sem gæti gerst. En það reyndist bara byrjunin. Þau þrjú ár sem síðan em liðin hafa verið ein samfelld martröð,” sagði Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, í viðtali við timaritið Playboy á dögunum. Hún segir að ekki sé nóg með að ókunnugt fólk og starfsfólk hennar hafi stolið frá henni heldur hafi einnig fólk sem hún taldi góða vini sína stolið frá henni og svikið hana á allan hátt. Og mitt í allri sorginni fékk hún bréf frá Mark Chapman — moröingja Lennons — þar sem hann fór fram á aö hún legði blessun sína yfir aö hann skrifaöi bók um John Lennon. Tekjurnar af bókinni áttu að fara til velferðarmála. Auk alls annars lifa Yoko og Sean, hinn átta ára gamli sonur hennar, í stööugum ótta við að verða myrt. Lög- reglan í New York hefur og staðfest að mörg dularfull innbrot hafi átt sér stað í íbúð Yoko í Dakota-byggingunni þar sem John var myrtur. Schliifer tók reið- hjólið með ífríið Poul Schliiter, forsætisráðherra Danmerkur, hefur síðustu daga dvalið á Kanaríeyjum og hvílt sig eftir árangursríka kosningabaráttu og frá því að stýra dönsku þjóðarskútunni. Eini ferðafélagi hans til Kanaríeyja var reiðhjólið hans. „AðaltUgangurinn meö ferðinni er að komast í góða líkamlega æfingu. Eg ætla mér að hjóla um eyjuna og njóta þess aö vera langt í burtu frá hinni leiðinlegu dönsku veðráttu,” sagði danski forsætisráðherrann við frétta- menn er fylgdust með er hann kvaddi konu sína á flugvellinum. „Eg hef ekki tekið neitt frí í tvö ár og hlakka því mjög til fararinnar,” sagöi hann áður en hann steig um borð í flug- vélina á leiö í sólina á Kanaríey ium.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.