Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Qupperneq 7
DV. FOSTUDAGUR 3. FEBRUAR1984. 7 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Páll Ásgeir sendiherra vakti lukku norskra blaðamanna. íslenski sendiherrann og njósnamálið Islenski sendiherrann í Noregi, Páll Asgeir Tryggvason, hefur heldur óvænt komist á síður flestra norsku dagblaðanna í dag í sam- bandi við njósnamál Treholts. Þannig var að Olafur konungur hélt sína árlegu veislu í gærkvöldi þar sem hann býður sendiherrunum í Osló. Fyrir utan konungshöllina hafði safnast saman mikill skari ljósmyndara og blaðamanna til að fylgjast með því hvort rússneski sendiherrann kæmi í veisluna. Þegar Páll Asgeir kom munduöu ljósmyndararnir „flashljós” sín en Páll Asgeir, sem er gamansamur maður og skildi hvað hékk á spýt- unni, sagði: „Strákar mínir, ég er nú barafrá Islandi.” Þótti blaðamönnum þetta fyndiö en skömmu síðar kom sá sovéski í veisluna og þótti mörgum furðulegt, svo skömmu eftir ótíðindin í sam- skiptum Noregs og Sovétríkjanna, þar sem níu samstarfsmönnum hans hefur verið visað úr landi. -Jón Elnar i Osló. NJÓSNUÐU UM OLÍUVINNSLU NORÐMANNA Tveir þeirra níu Sovétmanna sem vísað hefur veriö úr landi í Noregi eru taldir hafa stundað iðnnjósnir. Annar þeirra, Mikhael Utkin, mun hafa mest njósnað um olíuvinnslutækni Norð- manna og reyndi meðal annars að afla sér upplýsinga um Norsk Hydro. Leyniþjónustan norska mun hafa fylgst meö Utkin síðan hann kom til landsins 1981. Tilkynnt var í Osló í gær að aflýst heföi verið fyrirhugaðri heimsókn norsku þingmannanefndarinnar til Sovétríkjanna en áöur hafði Odvar Nordli, sem átti aö vera formaður nefndarinnar, sagst hættur við að fara vegna n jósnamálsins. I tilkynningunni var sagt að stór- þingið norska hefði í bréfi til sovéska sendiráðsins í Osló tekið sérstaklega fram að hætt væri við heimsóknina í kjölfar þess aö sovésku diplómötunum var vísað úr landi og af sömu ástæðum. Þetta er í annað sinn sem þessari þingmannaferð, er ákveðin var á árinu 1980, hefur verið frestaö eða aflýst. I fyrra skiptið var það vegna innrásar Sovétmanna í Afghanistan. Kaare Willoch forsætisráðherra sagði í gær að njósnamálið hefði að vísu spillt mjög sambúð ríkjanna en í samskiptum sínum yrðu þau þó að sinna nauösynjaverkum og að ráða- menn yrðu, þegar þörf krefði, að ræða saman um sameiginleg hagsmunamál eins og ekkert hefði í skorist. -Jón Einar í Osló. Trudeau er ánægður með Evrópuför Pierre Trudeau. Pierre Trudeau, forsætisráöherra Kanada, lét í gær í ljósi ánægju með þá ákvörðun sína að halda áfram viðræð- um við fulltrúa Varsjárbandalags- ríkja. Trudeau lét þessa ánægju sína í ljósi á fundi með fréttamönnum í Búkarest í gær eftir að hann haföi áöur heimsótt Austur-Þýskaland, Tékkóslóvakíu og Rúmeníu þar sem hann reifaði hug- myndir sínar um hvernig heimsfriður- inn yrði best tryggður. Trudeau færðist undan því að svara spurningum fréttamanna um hvort árangur heföi orðið af Evrópuför hans og sagöi aö það yrðu gagnrýnendur hans að dæma um. En hann bætti því við að nú þegar afvopnunarviðræður Sovétmanna og Bandaríkjamanna lægju niðri þá væri ákaflega mikilvægt að minni ríkin innan varnarbandalag- anna beggja tækju frumkvæðið. „Eg er mjög ánægður með þá ákvörðun mina að halda ekki einungis áfram viö- ræðum við aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins og óháð ríki heldur einnig við þau ríki sem eru í bandalagi gegn okkur,” sagöi Trudeau. HVER ER ÞINN LUKKUDAGUR? Vinningar daglega allt áriö 1984. 366 vinningar. Vinningsnúmer birtast daglega á baksíðu DV fyrir ofan LOKA. Mánaðarlega dregin út Datsun Micra bifreið árg. '84 frá Ingvari Helgasyni. VERÐMÆTI VINWINGA 5,5 MILLJÓN KR. VERÐKR.300 VERÐKR.300 Vinningar fyrir alla fjölskylduna 12 bílar 12 videotæki 12 stereosamstæður 24 reiðhjól 24 skíði 24 ferðaútvörp 258 aðrir eigulegir vinningar V VINNINGAR Aprll 1984 HJÍJKRUNARVÖRIIR LlMOGLlMBÖNI) SNYRTIVÖRUR Hansaplasf stnps SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 I _ - ■: .■ ■■ J.S. HELCASON HF. ....... I I * " . j r « n ” 2' !i HÓTELIÐ í HJARTA HÖFUÐBORGARINNAR Morgunverður og rjúkandi kaffi frá kl. 8 á hverjum morgni. HÓTELBORG VINNINGSNLMI.RIN BIRTAST DAGLKCíA I 5«, sin :sm Askriflarsíminn cr27022 Selt af íþróttafélögum um land allt, bókabúðum Penn ans og Eymundsson. Upplýsingar í símum 20068, 81325 og 84459. Iþróttafélög athugið að enn er hægt að fá spjöld. Björn Guðbjörnsson, vinnusími 24349.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.