Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1984, Page 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR 43.TBL.— 74. & 10. ÁRG. —MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1984.
{ Samningaviöræður ASÍ og VSÍ: )■
Kauphækkun 4,5
12.057 kr. lágmarkslaun
Enginn fastur grundvöllur er feng-
inn í samningaviðræðum ASÍ og VSI
og var formannafundi ASI sem
haldinn var í gær frestaö fram til
klukkan 16 á morgun meðan beðið er
eftir ákveðnari niðurstööu.
Á fundinum í gær kynnti
samninganefnd ASI aö helst væri
rætt um 4,5 tii 5,5% kauphækkun nú
þegar en óljóst er með áfangahækk-
anir á samningstímanum. Þá er rætt
um aö hækka lágmarkslaun úr 10.961
krónu á mánuði í 12.057 krónur.
Aðilar eru að mestu sammála um
þær kröfur sem gera eigi til ríkis-
stjórnarinnar um félagslegar að-
geröir.
Rætt hefur verið um tekju-
tengdan barnabótaauka sem gæti
numið 12 þúsund krónum fyrir
einstætt foreldri sem hefði um 150
þúsund krónur í árstekjur en færi
lækkandi með hærri tekjum. Talið er
að þessi aögerð ein myndi kosta um
160 milljónir króna. Þá er rætt um
hækkun mæðra- og feðralauna,
barnalífeyris og tekjutryggingar og
vasapeninga fyrir ellilífeyrisþega.
i samningaviðræðunum hefur
einnig verið rætt um að setja inn í
samninga ákvæði um að foreldrar
geti fengið frí vegna veikinda barna.
Verkalýðshreyfingin hefur sóst eftir
aö færa megi orlofsdaga yfir á vetr-
armánuðina. Vinnuveitendur hafa
haldið á lofti þeirri hugmynd aö
sumardagurinn fyrsti og upp-
stigningardagur, sem báðir lenda á
fimmtudögum, verði færöir til
þannig að þeir verði á föstudögum og
tengist þannig helgum.
Mjög skiptar skoðanir komu fram
á formannafundinum um þær megin-
línur sem komnar eru fram í
samningaviðræðunum. Þó munu
flestir hafa verið þeirrar skoðunar
að nú væri ekki staða til að grípa til
verkfallsaðgeröa. Sú skoðun var
einnig ríkjandi að ekki væri hægt að
gera samning til langs tíma nema
hann væri opinn til endurskoöunar.
-OEF.
Vopnaði ræninginn ofundinn:
fíkniefnafíð yfirheyrt
Ræninginn sem rændi tæpum
tveim milljónum króna frá starfs-
mönnum ÁTVR, vopnaöur afsagaðri
haglabyssu fyrir utan útibú Lands-
bankans að Laugavegi 77 um tíu
mínútur fyrir átta á föstudagskvöld-
iö, var enn ófundinn í morgun.
Samkvæmt upplýsingum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins í morgun
hafa margir verið yfirheyrðir um
helgina. Frekari upplýsingar fengust
ekkiummálið.
DV hefur frétt að þeir sem hafi
verið yfirheyrðir hafi hvað mest
verið fíkniefnaneytendur. Má geta
þess að vikingasveit lögreglunnar
fór meðal annars inn í alræmt fíkni-
efnabælihéríborg.
Er DV spurði Bjarka Elíasson í
morgun hvort rétt væri að hringt
hefði verið í lögregluna og henni til-
kynnt að sest hefði til leigubilsins
aka í austurátt framhjá Hótel Esju
•sagðist hann ekki kannast við þetta
:samtal.
Þá hefur DV vissu fyrir því aö
maður sem braut rúöur í húsa-
lengjunni aö Laugavegi 178, þar sem
Vesturröst er, var liandtekinn
snemma á föstudagsmorgun. Honum
var þá sleppt aftur eftir y firheyrslur.
Sá hinn sami hefur aftur verið yfir-
heyrður um helgina. Engar upp-
iýsingar hafa fengist um það hvort
haglabyssan sem ræninginn notaði
sé úrVesturröst.
Víkingasveit lögreglunnar var enn
t viðbragðsstöðu í morgun. Þá má
geta þess að margir hafa hringt í lög-
regluna og bent henni á hugsanlega
ræningja. Meðal annars hefur verið
hringtutanaflandi. -JGH.
sjá nánar fréttir og myndir á bls. 2-3
í morgun héldu umsjónarmenn þáttarins Á virkum degi i útvarpinu upp
á hundraðasta þátt sinn. Útvarpað var frá Arnarhóli og boðið upp á
þjóðlegan rétt, þ.e. velling. Ýmsir fengu að smakka og hér má sjá þá
Ævar Kjartansson útvarpsmann og Vilhjálm Hjálmarsson, fyrrverandi
ráðherra, gæða sér á ráðherravellingi.
DV-mynd Loftur Ásgeirsson.
Sandey II:
Björgunar■
aðgerðir
standayfir
Björgunaraðgerðir á sanddæluskip-
inu Sandey II, sem hvolfdi á Viöeyjar-
sundi í október síðastliðnum hafa stað-
ið yfir á Engey um helgina. Starfs-
menn Björgunar hf., eiganda skipsins,
hafa unnið að því að snúa skipinu við
þar sem það liggur á hvolfi við
Engeyjarrif.
Við verkið eru notaðar meðal ann-
ars tvær stórar jaröýtur sem fluttar
voru út í eyna fyrir helgina með flot-
pramma Reykjavíkurhafnar.
Ætlun Björgunarmanna er aö velta
skipinu við, draga það lengra upp á rif-
iö, þétta þaö og draga síðan til hafnar
aö öllum líkindum inni á Artúnshöfða
þar sem bækistöðvar Björgunar eru.
Hvaö síöan verður gert við skipið er
ekki ákveðið en víst er að það verður
ekki gert aðsanddæluskipi aftur.
-SþS
Albertí
>>
Englandi
Þaö vekur nokkra athygli að nú
þegar samningaviðræður eru í miðjum
klíðum, meðal annars við BSRB, fer
Albert Guðmundsson fjármálaráö-
herra til Englands og kemur ekki tii
baka fyrr en á fimmtudag.
Hjá ritara ráðherrans fengust þær
upplýsingar einar að Albert væri í
opinberum erindagjörðum í Englandi
og myndi eiga tal við ýmsa menn en,
hverjar erindagjöröirnar væru og
hvaða menn yrði rætt við fékkst ekki!
uppgefið. |
-SþS