Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1984, Blaðsíða 9
, WP í .OS HUOAOtlVIÁM .VG
DV. MÁNUDAGUR 20. FEBRUAR1984.
Útlönd Útlönd
Kosningar á
Filippseyjum
síðasta
tækifæríð
Leiðtogi stjómarandstöðunnar á Fil-
ippseyjum, Salvador Laurel, sagði í
gær aö landið rambaöi á barmi borg-
arastyrjaldar. Lýsti hann þing-
kosningunum fyrirhuguðu þann 14.
maí sem síöasta tækifærinu til
friðsamlegrar lausnar.
Þetta kom fram í ræðu sem Laurel
flutti í San Francicso á fundi hjá sam-
tökum Filippseyinga, sem andvígir
em stjóm Ferdinands Marcosar.
Laurel var fangelsaður í Manila í
síðustu viku, eftir að fundist hafði
skammbyssa í farangri hans, en hann
var látinn laus strax morguninn eftir.
Sjálfur sagði hann að byssunni hefði
verið komið fyrir af öðrum til þess að
búa til sakir á hendur honum.
Laurel varði í ræðu sinni ákvörðun 12
stjórnarandstööuflokkanna um að
sniöganga ekki kosningarnar en sú
ákvörðun hefur orðið til þess að kljúfa
andstæðinga Marcosar forseta.
Forkosn-
ingar
ídag
Demókratar ganga til forkosninga í
Iowa í dag en það em fyrstu forkosn-
ingamar í langri lotu sem nú fer í
hönd. Átta einstaklingar berjast um að
hljóta útnefningu demókrataflokksins
til forsetaframboðs en Walter Mon-
dale, fyrrum varaforseti þykir líkleg-
astur til þess að hreppa hnossið.
Jackson, eitt framboðsefna
demókrata, stígur í vænginn við eina
aöalkvenréttindakonuna í Bandarikj-
unum.
TARTARIFANG-
ELSAÐUR FYRIR
ANDSOVÉSKAN
ÁRÓDUR
Einn af mannréttindafrömuðum
tartara á Krímskaga hefur verið
fangelsaður fyrir andsovéskan áróður.
Blaðið Pravda Vostoka (Pravda aust-
ursins), aðalmálgagn Sovétstjómar-
innar í lýðveldinu Uzbekistan, segir að
Mustafa Dzhemilyov hafi hljóðritað út-
lendar útvarpssendingar og dreift
segulspólum og afritum meðal ungs
fólks.
Dzhemilyov (40 ára) hefur síðustu
18 árin dvaliö að minnsta kosti 10 ár í
hegningarbúðum vegna baráttu sinnar
fyrir réttindum tartara á Krímskaga
og leyfi til þess að þeir flyttu á upp-
hafsslóðir sínar við Svarta hafið. —
Þaðan vom tartarar fluttir nauðungar-
flutningum 1944, sakaöir um að hafa
átt samvinnu við innrásarlið nasista.
Keflavíkur-
ganga á Spáni
Tugir þúsunda manna tóku þátt í
mótmælagöngu í miðborg Madrid til
þess að krefjast úrsagnar Spánar úr
NATO og brottflutnings bandarískra
herstöðva í landinu. Var gengið úr mið-
bænum og til nærliggjandi herstöðvar
flughers Bandaríkjanna, tólf km leið.
Göngumenn sögöu sjálfir að um 55
þúsundir heföu tekið þátt i göngunni
sem tók fjórar klukkustundir. Bám
þeir spjöld meðáletrunum eins og „Við
munum vinna þjóðaratkvæð-
ið”. . . „Natonei! Herinnburt!”.
Spánn gekk í NATO 1982 en ríkis-
stjórn sósíalista, sem kom til valda
síðar það ár, sló á frest fullnustu
hernaðaraðildar Spánar að bandalag-
inu og hét því að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um máliö. Ekki hefur
enn verið ákveðið hvenær hún fer
fram.
Síðustu skoðanakannanir gefa til
kynna að flestir Spánverjar mundu
vilja hætta í bandalaginu.
BEINT FUJG I SOLINA
.FERDA
AÆTLUN
1984
4'
FERÐAMIÐSTOÐIN kynnirferða-
áætlun 1984 til BENIDORM, Costa
Blanca strandarinnar á Suðausturströnd Spánar.
Eins og áður er aðeins flogið leiguflug í góða veðrið.
GÓD GISTING Á HÓTELUM EÐA ÍBÚDUM
Gististaðir eru allir fyrsta flokks: íbúðir með 1-2 svefnherbergjum,
Studíó-íbúðir eða hótel með fæði. BENIDORM ferðirnar eru 2ja-3ja
vikna og brottfarardagar eru: 18. apríl (2ja vikna páskaferð), 2. maí,
23. maí, 20. júní, 11. júlí, 1. ágúst, 22. ágúst, 12. sept. og 3. október.
Áætlað verð í sumar miðað við gistingu í íbúðum: Frá kr. 18.400.,
gisting á hótelum m/fæði frá: Kr. 24.200.
FM-FERÐALÁNIN
Staðfestingargjald við pöntun kr. 2.500. Síðan mánaðarlegar greiðslur
allt frá kr. 1.000 í 3-6 mánuði fyrir brottför og lánar þá Ferðamiðstöðin
allt aö sömu upphæð í jafn langan tíma, sem greiðist með mánaðar
legum afborgunum eftir heimkomu. Verðhækkanir sem verða á
sparnaðartímanum af völdum gegnisbreytinga ná ekki til
þess hluta heildarverðsins sem greitt hefir verið.
Dæmi: 4 mánaðarlegar greiðslur fyrir brottför kr. 2.000,
— samtals kr. 8.000, -, lánar þá Ferðamiðstöðin þér
allt að sömu fjárhæð kr. 8.000, -, er greiðast til baka
með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, eftir heim-
komu á jafnlöngum tíma.
FM greiðslukjör
Staðfestingargjald kr. 2.500, - við pöntun u.þ.b.
helmingur af heildarverði greiðist 30 dögum fyrir
brottför og eftirstöðvar með jöfnum afborgunum á
3 mánuðum eftir heimkomu.
Staðgr.afsl. 5%.
Verðlisti fyrirliggjandi
Þeir, sem hafadvaliðá BENIDORM ströndinni hrósaveðrinu, verðlaginu,
matnum, skemmtistöðunum, skoðunarferðunum og traustri þjónustu
FERÐAMIÐSTÖÐVARINNAR.
BEINT FUJG
I SÖLINA
OG SJÓINN
IjSj FEROA
IeUI miðstodin
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133