Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1984, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1984, Page 12
12 DV. MÁNUDAGUR 20. FEBRUAR1984. Frjáist.óháð dagbiað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stiórnarformaöur og Otgáfustióri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastióri og útgáfustióri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS H AR ALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍOUMÚLA 33. SÍMI 27022. Algreiðsla, áskriltir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstiórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR H F., SÍ ÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverðá mánuði 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr. Helgarblað25kr. Peningana eða lífið Ránið á Laugaveginum hefur veriö á hvers manns vörum um helgina. Ræninginn gekk að verki sínu með kaldrifjuöum en þaulskipulögðum hætti. Af lýsingum að dæma líkist atferli hans þeim bófahasar sem Islendingar þekkja af afspurn úr undirheimum glæpamanna erlendis. Er með hreinum ólíkindum að unnt sé að framkvæma vopnað rán á einni fjölförnustu götu höfuðborgarinnar. Og sleppa með ránsfenginn nánast sporlaust. Er þetta í annað skipti á stuttum tíma sem rán er fram- ið í Reykjavík, svo ekki er að undra þótt mörgum bregði í brún. Hvað er eiginlega að gerast, spyr fólk hvaö annað. Er í uppsiglingu skálmöld þar sem ótíndir glæpamenn ríða húsum, vopnum búnir, rænandi og ruplandi? Islenskt þjóðfélag hefur veriö blessunarlega laust við ofbeldi, þar sem samviskulausir þjófar heimta peningana eða lífið. Við höfum látið okkur nægja að fylgjast með vopnuðum ránum og glæpafaraldri í öðrum löndum. Kannske þess vegna hefur viðbúnaður gagnvart ránum, af því tagi sem nú hafa verið framin hér, verið í lágmarki. Bankastarfs- menn opna kurteislega dyrnar fyrir þjófinum þegar hann bankar bakdyramegin og starfsmenn ÁTVR takameö sér tvær milljónir króna óvarðir og óhultir. Fæstum hefur dottið í hug í alvöru að rán sé framið af þeirri bíræfni sem raun ber vitni, hvað þá að vopnum sé beitt og lífláti hótað. Eitt af því sem gert hefur íslenskt samfélag og búsetu svo eftirsóknarverða er einmitt öryggið og heiðarleikinn sem hér ríkir. Allir geta um frjálst höfuð strokið, farið óáreittir ferða sinna, lausir við ótta um árásir og ofbeldi. Þeir sem hafa ferðast til annarra landa, dvalið þar um lengri eða skemmri tíma, þekkja þann óhugnaö sem aðrar þjóðir búa við gagnvart þjófum, morðingjum og hvers- kyns ribböldum. Ibúðum verður að harðlæsa og helst standa vörð um, lausamunir eru aldrei óhultir, morð og líkamsárásir eru þar daglegt brauð. Þjóðhöfðingjar og áhrifamenn, jafnvel almennir borgarar eru umsetnir lög- reglumönnum og milljónir manna búa við ótta og ógnun gagnvart glæpum og gripdeild. I slíkum heimi er dýrmætt aö eiga sér búsetu í landi þar sem vopn eru fátíð, glæpir óþekktir og friðhelgi virt. Kannske er það til of mikils mælst að búast við svo óáreittu lífi. Kannske er sakleysi okkar barnaskapur og varnarleysi gagnvart ofbeldi til þess eins að bjóða hætt- unni heim. Þegar kvikmyndir og fjölmiðlar lýsa því í goðsagnar- stíl, hvernig rán og morð eru framin og uppvaxandi kyn- slóö fær kennslustundir í sjónvarpi um snjalla og háþró- aða glæpi er öðrum þræði verið að kalla sams konar athafnir yfir okkur. Og freistingin verður sterkari þegar peninga skortir til alls og neyðin verður örvæntingarfull. Nú ríður á miklu að lögreglan hafi hendur í hári ræningjanna. Nú þarf að sanna að glæpir borgi sig ekki og nú þarf jafnframt að sanna að löggæsla veitir öryggi þótt ekki sé hún fyrirferðarmikil alla jafna. Menn velta því fyrir sér hvort ránin tvö breyti þeim við- horfum sem Islendingar hafa haft til öryggisbúnaðar. Meðal annars hvort lögreglumenn þurfi að ganga um vopnaðir. Vonandi verður það ekki niðurstaðan. Vonandi getum viö lifaö áfram í þessu landi, frjálsir og öruggir, með því einu að treysta hver öðrum. ebs. DV Veröa niðurgreidd sultaríaun framtíðariausnin? Þeim fer nú fjölgandi er gera sér ljóst að nú verður að létta byrðar þeirra sem bera mestan þunga efna- hagsaðgerðanna, þ.e. láglaunafólks. Þess verður þó að gæta viö lausn vandans að úrræðin minnki vandann en auki hann ekki. En því er ástæða til að hafa orð á svo sjálfsögðum hlut að fram hafa komið tillögur sem fela í sér þá hættu að ástandiö festist í þessu fari. Hérerátt við afkomutryggingu eöa uppbætur á laun, greidd af ríkinu til fólks er vinnur fulla vinnu. Verði sú leiö valin að ríkið bæti upp laun undir ákveðnu marki, svo að þau nægi til lágmarks framfærslu, jafngildir það niðurgreiöslu vinnuafls. Slík niður- greiðsla vinnuaflsins mun hamla öllum breytingum launa hjá viðkom- andi hópum síðar meir er aðstæður batna. Hætt er viö að atvinnurekendur muni ánetjast þessu ástandi og telja marga meinbugi á leiðréttingu laun- anna. Eðlilegt veröur aö teljast aö laun hækki með almennt batnandi hag, slík launahækkun mun þá verða stórt stökk fyrir atvinnuvegina þar sem þeir þurfa KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR HÁSKÖLANEMI £ „Verði sú leið valin að ríkið bæti upp laun undir ákveðnu marki, svo að þau nægi til lágmarks framfærslu, jafngildir það niður- greiðslu vinnuafls.” Leikdómur Það er útbreiddur misskilningur að þingflokkar Framsóknar og sjálf- stæðismanna hafi haft mestar áhyggjur af ástandi þjóðarbúsms að undanföma Þvert á móti hefur tími þeirra og atorka farið i að leika í nýrri þáttaröö sem hófst í desember. Ráðning í Búnaðarbanka Það er ekki vitaö hvað þessi fram- haldsflokkur verður í mörgum þátt- um en hann er þegar orðinn geysivin- sæll með þjóðinni. Þaö var uppselt á sýningu 1. þáttar fyrir jól. 2. þáttur var sýndur nýlega og reyndist geysispennandi. Hafnar eru upptökur og æfingar fyrir 3. þáttinn sem mun eiga að gerast í Seölabank- anum. 1. þáttur: Einfarinn I fyrsta þætti sýndu Framsóknar- menn frábæran leik. Túlkun Stefáns Valgeirssonar á einfaranum, sem er svikinn af ættflokki sínum, var aðdá- unarverð. Bjargföst trú hans á fomum venjum og trúarhefðum viö val til mannaforráða fékk djúpa merkingu í meðförum hans. Odeigur stóð hann gegn rótleysi samtímans. Steingrímur Hermannsson sýndi á opinn og hispurslausan hátt hið ein- læga fylgi við fomar dyggðir. Búningar voru úr íslensku vaðmáli yst sem innst klæöa. 2. þáttur: Merkisberinn ungi 12. þætti æsist leikurinn. Einfarinn úr 1. þætti virðist hafa snúiö baki við helgisiðum ættbálksins og heldur fram sjónarmiðum nýja tímans. Steingrímur Hermannsson er gætn- ari í tali og túlkar á nærfærinn hátt visku hins reynda forystumanns sem finnur nýja vinda blása. Kannski sigrar nýi tíminn. Kannski verða vofur hins gamla kveðnar niöur. Það þýtur í leik- tjöldunum og eftirvæntingin hríslast umsalinn. En þá geysist Sjálfstæðisflokkur- inn inn á sviðið. Mesta athygli vekur Þorsteinn Pálsson í gervi formannsins. Hann fylkir liði sínu gegn óróa- öflum nútímans. I þessu hlutverki tekst Þorsteini aö túlka á umbúðalausan hátt þá traustu varðstööu sem flokkur hans stendur um gildismat gamla tímans. Hér birtist sameiginleg vegferð einfarans í fyrri þættinum og djarf- hugans unga í þeim síðari. Hér standa saman æska og lífs- reynsla. Hér tekur hetjan unga upp merki fomra dyggða, merki einfarans úr 1. þætti. Leikmynd var mjög góð en bak- tjaldamakk í seinni hluta hafði trufl- andiáhrif. 3. þáttur: Otarinn Þessi þáttur mun gerast í Seðla- banka. Ekki er búið að velja í aðal- hlutverkiö en ýmsir munu reyna að otaþarsínumtota. Að veita ráðningu Af ráðningarmálum við Búnaðar- bankann er augljóst aö báöir ríkis- stjómarflokkamir fengu öðmvísi og ærlegri ráöningu en þeir ætluöu sér. Það hefur verið höggvið stórkost- lega í þessar traustu stoðir flokks- ræðisins á Islandi. Þeir eru eins og tröllkerlingar á flótta undan dag- renningunni. Vonandi er þetta upphaf þess nýja siðar að hæfileikar, menntun og reynsla verði lögö til ákvörðunar embættaveitingum. Þannig eiga allir aö hafa möguleika. Alþingis- mennimir líka. En einungis á gmnd- velli þess sem þeir hafa til brunns að GUÐMUNDUR EINARSSON ALÞINGISMAOUR i BANDALAGI JAFNAÐARMANNA bera. Ekki sem frambjóðendur flokksvélanna. Ritstjórar Morgunblaðsins skrifuðu Reykjavíkurbréf þann 11. febrúar sl. til vamar flokksræðinu. Þeir telja þar óhjákvæmilegt að al- þingismenn breytist í eins konar vandræðabörn á vinnumarkaðinum ef flokkarnir hætti aö geta holað þeim niður við lok þingmennsku. Því er til að svara að þekking og reynsla þingmanna gerir þá fullkom- lega samkeppnisfæra á markaði þar sem dugnaður og hæfileikar ráða úr- slitum. Ætli þeir hins vegar að leita sér forskots með fulltingi flokksvélanna er líklegt að þeim lokist ýmsar dy r. Láms Jónsson alþingismaður galt þannig stuðningsmanna sinna. Það er engu síður þörf fyrir reynslu hans og hæfileika á Alþingi en í banka. Vonandi njótum viö hans þar enn um stund. • „Af ráðningarmálum við Búnaðarbank- ann er augljóst að báðir ríkisstjómar- flokkarnir fengu öðruvísi og ærlegri ráðningu en þeir ætluðu sér.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.