Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Qupperneq 1
Órn Friðriksson:
Mæli með
samningunum
„Eg mun mæla meö aö samning-
amir verði samþykktir á fundi hjá
starfsmönnum álversins síödegis í
dag og meiru get ég ekki ráðiö í þess-
um efnum,” sagöi Örn Friðriksson,
sem veriö hefur helsti talsmaður
starfsmanna álversins í deilunni.
,,Eg get ekki sagt aö ég sé ánægö-
ur meö þessar niðurstöður en sætti
mig viö þær miðaö við aðstæður —
þaö var allt komiö í hnút.”
Örn sagðist bjartsýnn á aö samn-
ingarnir yröu samþykktir hjá félög-
um sínumá starfsmannafundiídag.
-EIR.
Jakob Möller:
Málið var
íklemmu
„Þaö var ekki um neitt aö ræöa.
Málið var komiö í klemmu og því
urðu menn aö semja,” sagöi Jakob
Möller, lögfræðingur hjá ISAL, í
samtali viö DV í þann mund sem
samningar í áldeilunni voru undirrit-
aöirnúímorgun.
„Hvort þetta eru góöir samningar
skal ósagt látiö en þaö skiptir mestu
að menn skrifuðu undir og mátti ekki
tæparastanda.”
-EIR.
örn Friðriksson, talsmaður starfsmanna álversins, undirritar samninginn i húsakynnum sáttasemjara klukkan
9.30 í morgun. Guðmundur Vignir Jósefsson varasáttasemjari, Guðlaugur Þorvaldsson aðalsáttasemjari og
Eiísabet Ólafsdóttir skrifstofustjóri fylgjast með. D V-mynd S.
Samid í áldeil-
unni i morgun
Samningar tókust í kjaradeilunni
í álverinu í morgun. Þeir voru undir-
ritaðir hjá ríkissáttasemjara
klukkan 9.30 í morgun meö fyrirvara
um samþykkt félagsfunda sem
haldnir verða í Straumsvík síðar í
dag.
Aðilar vildu ekki gefa upp fyrir
félagsfundi í hverju samkomulagiö
er fólgið. DV tókst þó að afla þeirra
upplýsinga aö samið var um 5
prósent launahækkun strax og þrjár
áfangahækkanir; tvisvar 2,5 prósent
og einu sinni 3 prósent. Áfanga-
hækkanimar koma fyrr en þær í ASI
— VSI samkomulaginu. Áöur var bú-
iö aö semja um bónus og ýmis önnur
atriði.
„Eg er alltaf ánægöur þegar deil-
um er lokið,” sagöi Guðlaugur Þor-
valdsson ríkissáttasemjari í samtali
við DV í morgun.
„Þetta hefur veriö löng og erfið
deila. Eg hef séö þær harðari og
lengri. En þessi var komin fram á
ystu nöf,” sagði Guðlaugur.
Samningamenn voru þreytulegir
þegar þeir gengu til undirskriftar.
Þeir höföu þá vakað heila nótt og
setiö á ströngum fundum frá því
klukkan 13.30 í gær. Þeim var ljóst aö
sáttasemjari ætlaöi ekki að sleppa
þeim út fyrr en gengið væri saman.
Tíminn var að renna út. Þaö stefndi í
lokun álvei;sins.
-KMU.
Jakob Möller, lögfræðingur hjá ÍSAL.setur nafn sitt undir
samninginn sem tryggir áframhaldandi rekstur álversins.
Ólafsvík:
Úttektásnjó-
f lóðahættu strax
Almannavamanefnd Olafsvikur-
kaupstaðar hefur beint þeirri
áskorun til stjórnvalda að nú þegar
veröi gerð úttekt á snjóflóöahættu í
fjalllendinu kringum bæinn og í
Olafsvíkurenni. Nefndin telur brýnt
að sérfróöur maður verði sendur á
staöinn, þar sem síöustu atburðir
sýni aö Olafsvík sé á snjóflóðahættu-
svæöi.
Guðjón Petersen, forstöðumaður
Almannavarna ríkisins, mun halda
fund meö heimamönnum á
mánudag. -GB
Mllljóuatjón varft I snjóflóftunum i Olafsvík og mildi aft ekki varft manntjón.
DV-mynd Ægir
— sjá nánari fréttir og m>iídir á bls. 4 - 5
Er vopnaði ræn-
inginn fundinn?
Rannsóknarlögregla ríkisins hand-
tók í gærkvöld mann vegna ránsins hjá
ÁTVR viö útibú Landsbankans aö
Laugavegi 77 síðastliöinn föstudag.
Yfirheyrslur stóöu yfir manninum
og fleirum hjá rannsóknarlögreglunni í
nótt. DV er ekki kunnugt um niðurstöð-
ur yf irheyrslnanna.
Samkvæmt heimildum DV var vitað
að „eitthvaö stóö til” hjá rannsóknar-
lögreglunni í gærdag vegna þessa
máls. Hvort sá er handtekinn var er
ræninginn er ekki vitað. Hann gæti
þess vegna verið einn hinna mörgu
sem yfirheyröir hafa verið að undan-
f ömu vegna þessa máls.
DV hefur ekki frétt hvort haglabyssa
sú er notuð var við ránið hjá ÁTVR hef-
ur fundist.
Talið er að fólk það sem var yfir-
heyrt í nótt sé tengt fíkniefnamálum.
Það hefur þó ekki fengist staðfest.
Krafa um gæsluvarðhald hafði ekki
verið sett fram í morgun. -JGH/-klp-