Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 14
DV. FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984. Flutningaskipið Kampen var algjörlega vanbúið tH að leggja upp i ferðina til íslands í október. Ábyrgðarleysi skipstjórans kostaði hann sjálfan lifið og sex áhafnarmeðlimi að auki. Orsök þess að f lutningaskipið Kampen sökk við Suðurland í nóvember síðastliðnum: VÍTAVERT ÁBYRGÐAR- LEYSISKIPSTJÓRANS — segir í niðurstöðum sjóréttar í Hamborg Flutningaskipiö Kampen, sem fórst viö suöurströnd íslands í nóvember síöastliönum, heföi aldrei átt aö leggja upp í sína hinstu för. Samkvæmt niðurstööum sjóréttar í Hamborg var skipiö af f jölmörgum ástæöum ósjóhæft. Rétturinn komst ennfremur aö þeirri niðurstöðu að ekki væri sannaö aö útgerðarfélag skipsins, Schulauer Schifffahrtskont- or, licföi vitaö af bágbornu ástandi skipsins og ábyrgðin fyrir skipstap- anum skrifaöist því á skipstjórann en hann var einn sex skipverja, sem fórust, er skipið sökk. Samkvæmt upplýsingum frá fréttaritara DV í Þýskalandi, Hans Sætran, er þetta þó ekki í fyrsta sinn sem útgeröarfélag þetta tapar skipi vegna vanbúnaöar. I niðurstöðum sjóréttarins í Ham- borg segir aö þaö sem mestu skipti um hvernig fór meö Kampen var aö ekki var hægt að loka lestarlúgum skipsins nægjanlega vel. Sjór komst því í lestar skipsins — sérstaklega bakborðsmegin — og olli slagsíðu. Ekki bætti úr skák að farmur skips- ins, kol, var rakur fyrir og skreiö því auðveldlega til. — Farmurinn einn og sér var nægjanlega hættulegur fyrir þetta skip þó svo enginn sjór heföi komist í lestarnar, segir rétturinn. En það var fleira sem var að. Þeg- ar Kampen hélt úr höfn í Amsterdam áleiðis til Islands var skipiö ofhlaöiö. Það risti sex sentímetrum dýpra en hleðslumörk á Noröur-Atlantshafi á þessum árstíma segja til unn að leyfi- legtsé. — Þetta hlaut skipstjóranum aö vera kunnugt um, segir rétturinn. Þar aö auki höföu lausar lestar- lúgur gert göt á skilrúm milli lestar- rýmis og jafnvægistanks bakborös- megin, skömmu fyrir Islands- ferðina, en ekki var búið að gera viö þessi göt áður en lagt var upp í hina örlagaríku ferð. I viöbót við allt þetta var áhöfn skipsins fámennari en átti að vera. Samkvæmt reglum áttu 17 manns að vera um borö en voru aðeins 13 í síð- ustu ferðinni. Meöal annarra vantaði loftskeytamann, en heföi hann verið með heföi kannski verið hægt að bjarga öllum skipverjum. Loft- skeytamaður hefði getað komiö upplýsingum á framfæri um hvernig ástatt var fyrir skipinu eftir að það fékk á sig slagsíöuna. Og einnig heföi hann getaö séö um aö neyöarkall skipsins væri sent á neyðarbylgjunni í staö strandbylgjunnar eins og gert var. Með því tapaðist dýrmætur tími fyrir björgunarsveitirnar. Þaö var því fyrst og fremst víta- verðu kæruleysi skipstjóra Kampen að kenna aö skipið lagöi í þá helför sem kostaöi sjö manns lífið og þar á meöalskipstjórannsjálfan. -SþS Megn óánægja félagsmanna í Verkalýðsfélagi Grindavíkur: SAKA FORMANNINN UM EINRÆÐISLEG VINNUBRÖGÐ — „Er að gefast upp á þessu/’ segir Helga Enoksdóttir formaður sem hef ur leitað aðstoðar hjá VMSÍ 14 Góðsala í mjólkur- afurðum Tölur um mjólkurframleiöslu á síö- asta ári liggja nú endanlega fyrir. Inn- vegin mjólk til mjólkursamlaga var samtais rúmlega 106 milijónir lítra, er þaö 1,8% aukning frá árinu áður. Sam- dráttur vará Suöur- og Vesturlandi, en aukning varö einna mest í mjólkur- samlögum á Noröurlandi. Munur á mjólkurframleiöslu frá sumri til vetrar, hefur veriö mjög baga- legur fyrir samlögin, og hafa bændur verið hvattir til aó draga úr þessum mun. Þaö hefur veriö gert meö því að greiða mun fyrr fyrir vetrarmjólk en sumarmjólk. Þetta hefur orðiö til þess aö miklar breytingar hafa oröið á buröartíma kúnna á Suöur- og Vesturlandi nú síö- ustu tvö ár, og stefnir í jafnari mjólkurframleiðslu allt áriö vegna þess. Sala á mjólkurafurðum var yfir heildina litiö góö, en sérstaklega seld- ust ostar, kotasæla og skyr í meira mæli. Aftur á móti varö samdráttur í sölu á jógúrt og undanrennu. Smjörfjall landsmanna var í lok síö- asta árs rúm 300 tonn. -öþ Hækkanir opinberra gjalda Hækkanir ríkisskattstjóra á opin- berum gjöldum vegna athugana rann- sóknardeildar embættisins, námu tæp- um 7.800.000 krónum í 33 málum á ár- inu 1983. Skattsektir úrskurðaöar af ríkisskattanefnd námu 379.000 krónum í 6 málum. Einu máli var vísað til’ Rannsóknarlögreglu ríkisins og dómur gekk i einu skattsvikamáli á árinu. Rannsóknardeild ríkisskattstjóra athugaöi 651 mál á árinu. Bókhalds- skoðanir voru framkvæmdar í 533 fyrirtækjum og voru 413 afgreiddar meö athugasemd. Skattstofunum bár- ust upplýsingar um 467 aöila frá erlendum skattayfirvöldum. -GB NATOveitir styrki til um- hverfismála Atlantshafsbandalagið mun á árinu ’84 veita nokkra styrki til fræðirann- sókna á vandamálum er varða opin- bera stefnumótun í umhverfismálum. Styrkirnir eru veittir á vegum nefndar bandalagsins, sem fjallar um vanda- mál nútímaþjóöfélags, og er æskilegt að sótt veröi um styrki til rannsókna er tengjast einhverju þeirra verkefna, sem nú er fjallað um á vegum nefnd- arinnar. Gert er ráö fyrir því að um- sækjendur hafi lokið háskólapróf i. Um- sóknum skal skilað til utanríkisráöu- neytisins fyrir 31. mars ’84 og lætur ráöuneytiö í té nánari upplýsingar um styrkina þar á meðal framangreind verkefni. -öþ Feröastyrkir til Svíþjóðar Islandsnefnd Letterstedtska sjóðs- ins hefur ákveöið aö veita feröastyrki á árinu 1984 handa íslenskum fræöi- og vísindamönnum sem ferðast vilja til Svíþjóöar á því ári í rannsóknarskyni. Til úthlutunar úr sjóönum eru 15.000 sænskar krónur. Tekið skal fram aö ekki er um eiginlega námsferöastyrki að ræöa, heldur koma þeir einir til greina, sem lokið hafa námi en hyggja á f rekari rannsóknir á sínu sviði. Umsóknir skal senda til Islands- nefndar Letterstedtska sjóösins, c/o Þór Magnússon, Þjóðminjasafn Is- lands, Pósthólf 1439, 121 Reykjavík, fyrir 1. mars 1984, þar sem veittar eru nánari upplýsingar. Megn óánægja ríkir nú meðal félagsmanna í Verkalýösfélagi Grindavíkur. Beinist óánægjan eink- um að formanni félagsins. Er formaö- urinn sakaöur um aö sýna einræði viö stjórn félagsins, halda sjaldan fundi í félaginu og greiða atvinnuleysisbætur úrfélagssjóöi. DV hefur rætt viö allmarga félags- menn. Kváðu þeir allir að fundir heföu ekki verið haldnir í félaginu í ár. For- maöur heföi ítrekað veriö beöinn um aö halda fundi, bæði meö félagsmönn- um, svo og meö stjóm og trúnaðar- mannaráöi, en án árangurs. Hann heföi þá lokaö skrifstofu f élagsins f yrir mörgum mánuðum og flutt starfsem- inaheimtilsín. Atvinnuleysisbætur heföi formaöur- inn greitt út á tímabilinu frá í vor til hausts, en heföi ekki farið hinar hefö- bundnu leiðir í tryggingakerfinu. Hann heföi greitt bæturnar úr félagssjóði sem geröi þaö aö verkum aö vextir af sjóönum töpuöust. Kváöu félagsmenn félagið ekki starfhæft um þessar mundir þar sem formaður bryti öll gildandi lög og reglugerðir. Helga Enoksdóttir, formaöur verka- lýösfélagsins, kvaöst hafa haldiö fund meö stjóm og trúnaöarmannaráöi í maí í fyrra. Þá heföi veriö haldinn félagsfundur í april á siöasta ári. Astæðuna fyrir þessum fáu fundum kvað hún vera þá að mjög erfitt væri aö starfa með fólkinu í verkalýðsfélag- inu. Fundirnir færu út um þúfur, enda bæri þar mest á órökstuddum fullyrö- ingum. „þetta er orðiö ófremdar- ástand og ég er að gefast upp á þessu,” sagöi Helga. „Þaö hefur hvarflað aö mér að segja upp vegna þessa ástands. En ég hef leitað til Verkamannasam- bands Islands um aðstoð og er nú að bíöa eftir henni. Sú aöstoö, sem ég fer fram á, em einfaldlega leiðbeiningar um hvernig starfa eigi viö slíkar aö- stæöur sem hér. Erindreki VMSI hefur veriö upptekinn aö undanfömu, en um leið og hann hefur aöstoöað mig mun ég boöa til aðalfundar. -JSS Samvinna Háskóla Islands og Minnesotaháskóla Carol Pazandak, aðstoðarmaður rektors Minnesotaháskóla, færir forseta islands, Vigdisi Finnbogadóttur, gjöf frá rektornum. Dr. Guðmundur Magnússon, rektor Háskóla islands, fylgist með. Ljósm. G.T.K. Mjög góö samvinna hefur tekist milli Háskóla Islands og Minnesotahá- skóla í Minneapolis. Á 70 ára afmæli Háskóla Islands bauð rektor Háskóla Islands rektor Minnesotaháskóla, Peter Magrath og frú, aö vera viöstödd hátíöarhöldin. Þegar forseti Islands, Vigdís Finn- bogadóttir, heimsótti Bandaríkin á sýninguna Scandinavia Today, bauö rektor Minnesotaháskóla henni sér- staklega í heimsókn. I framhaldi af því styrkti Banda- ríkjastjórn samskipti háskólanna með upphæð sem nemur $50.000,-. Aöal- tengiliöur háskólanna við þá styrkveit- ingu var Carol Pazandak, aðstoöar- maður rektors Minnesotaháskóla. Hún afhenti forseta Islands, Vigdísi Finn- bogadóttur, gjöf frá rektor Minnesota- háskóla á Bessastööum föstudaginn 10. febrúar sl., aö viðstöddum rektor Há- skóla Islands, dr. Guömundi Magnús- syni og fleiri gestum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.