Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 32
40 DV. FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984. JOHN OG YOKO: MILK AND HONEY | TIL LÍTILS VAR BIDIN I rösk þrjú ár lúröi Yoko Ono á síö- ustu upptökum John Lennons og hélt aödáendum í spennu eftirvæntingar eins og við gætum átt von á perlum úr safni eiginmannsins. En spara heföi mátt eftirvæntinguna því lög Lennons á Milk & Honey eru meö því daprasta sem frá honum kom. Skýringin er sumpart sú aö lögin eru aö því er virðist hálfköruö og hljóö- blöndun ekki lokiö þegar hann féll frá. I annan staö má ætla aö flest lag- anna hafi beinlínis verið varaskeifur á Double Fantasy plötuna; lög sem fullnægðu ekki þeim gæðakröfum sem Lennon setti sjálfur viö endan- lega niðurrööun á þá plötu. Aö sönnu var plata með nafninu Milk & Honey í bígerö áöur en Lenn- on lést en auövitað átti hann margt ógert í hljóðveri áður en sú plata fengi gæðastimpil. Meöal annars áttu þau hjónin eftir aö taka upp í hljóöveri lögin tvö sem hér birtast af heimageröri kassettu: Grow Old With Me og Let Me Count The Ways. Fyrra lagiö, samið af Lennon og tilbrigöi viö ljóö Robert Browning, er hápunktur þessarar plötu og eina lagiö á Milk & Honey sem sómir sér viö hliðina á bestu lögum hans. Þessi lög áttu upphaflega aö vera horn- steinar Double Fantasy en tíma- skortur geröi þaö aö verkum aö John og Yoko frestuöu stúdíóupptökum á lögunum því síst af öl!u vildu þau kasta til höndunum viö þessi lög, sem voru þeim ákaflega dýrmæt. Yoko rekur sögu laganna tveggja á plötuhulstri og segir meðal annars aö Lennon hafi sungiö lagiö inn á nokkrar snældur heima; flestar þeirra hafi horfiö þegar vinir og vandamenn létu greipar sópa um eigur Lennons að honum látnum en síðasta upptakan með söng Lennons hafi varðveist og þaö er einmitt hún sem viö heyrum á Milk And Honey. Hafi John Lennon ekki verið sjálfum sér líkur á Double Fantasy eins og sumir vilja ætla þá er hann ekki líkari sér á þessari plötu. Margir hafa einlægt viljaö sjá Lennon í hlutverki bardagamannsins sem hjó á báöa bóga meö oröum sínum og tónum, reiöur, bitur og ótrúlega einlægur. Þegar hann birt- ist svo eftir fimm ára fjarveru á Double Fantasy, sáttur viö tilveruna og horföi björtum augum til framtíðar, fannst mörgum þeir vera sviknir. Undir þessa skoöun tek ég ekki; Double Fantasy sýndi okkur nýja hliö á John Lennon og þess var von aö Milk And Honey myndi gera þá mynd fyllri. Þær vonir brugðust. -Gsal I ALAN PARSON PROJECKT - THE BEST OF | VANTAR HEILDARSVIPINN The Best of Alan Parson project er myndast á plötunum. Þrátt fyrir aö úrval af fimm plötum hljómsveitarinn- lögin sem valin hafa veriö á plötuna ar ásamt einu nýju lagi. Nú hefur standi ein sér fyrir sínu þá er heildar- aöalsmerki Alan Parsons veriö ljúfar svipur plötunnar veikari en á þeim melódíur, spilaðar eða sungnar, sem plötum þar sem hvert lag á sér vísan hafa myndaö á hverri plötu fyrir sig stað innan um önnur lög sem falla eina heild og hafa þessar plötur yfir- hvortaöööru. leittheppnastnokkuövel. Erskemmst En eins og alltaf er samt hægt aö að minnast Eye In The Sky sem erm er hrífast af lögum þeirra Alan Parson og mikiö spiluö þrátt fyrir aö hún sé orðin Eric Woolfson, en saman-hafa þeir tveggja ára. samið öll lögin sem prýða The Best Of, Þess vegna er það aö The Best Of eins og raunar öll lög sem Alan Parson Alan Parson Project slítur nokkuö í flytur. Þetta eru Ijúfar melódíur sem sundur þennan heildarramma sem eldast vel og sum laganna eru raunar " hrein snilldarverk í einfeldni sinni. Alan Parson Project er enn á uppleiö. Þaö sýnir Eye In The Sky, en hún er, mest selda platan sem þeir hafa sent frá sér. Þaö eru tólf lög á The Best Of .Söngv- arar eru ýmsir. Atkvæöamestur er Lenny Zakatek, hann syngur fjögur lög, meðal þeirra er eina nýja lagiö á plötunni You Don’t Believe. Virkilega f jörug og grípandi melódía og ég heföi haldið aö þaö væri kjöriö til vinsælda. Aörir söngvarar láta minna aö sér kveöa. FélagiParsonsogtextahöfund- ur, Eric Woolfson, syngur eitt lag, er þaö hiö undurljúfa Time sem maöur veröur aldrei leiður á. Jack HaiTÍs, Elmer Gantry, Dave Townsend, Dean Ford og Colin Blunstone syngja einnig sitt lagiö hver. Eittlagerþaösemmér finnst oröiö nokkuð vænt um af lögum Alan Parsons, þaö er Old And Wise af Eye In The Sky. Þar fer einhver fall- egasta melódía, í frábærri útsetningu, sem ég hef heyrt lengi og fer vel á því aö enda plötuna á þessu lagi. En þrátt fyrir að þarna fari þau lög Alan Parsons Project sem mesta spil- un hafa fengiö vil ég benda fólki sem vill kynnast verkum hans frekar á aö verða sér úti um einhverja af þeim fimm plötum sem Alan Parson hefur sentfráséráöur. hk. Skemmtun fyr- ir danslimina Sem allir vita eru jólin hátíð kaup- manna, ekki síst þeirra er versla meö plötur. Plötuútgefendur eru aö sjálfsögðu einnig meövitaöir um markaðsmálin. Af þessu leiöir aö fyrir hver jól yfirfyllist allt af nýjum plötum og síðan kemur ládeyöa fram á vor. Þetta ástand hefur þaö í för meö sér fyrir þá, sem setja sig á há- an hest og ætla aö segja neytendum fyrirfram hvernig tiltekin plata er, að hjá þeim safnast fyrir lítill lager af plötum sem ekki tekst aö hreinsa út fyrr en langt er liðiðá næsta ár. Er það aö sjálfsögðu hið versta mál. En við þessu er lítið aö gera er ég hrædd- ur um. Nú er svo komiö aö í dag rek ég síðustu eftirlegukindina frá jóla- flóðinu út. Þeir sem í hlut eiga eru sveinarnir í Classix Nouveaux meö plötuna Secret. Ariö 1982 sendu Sal Solo og félagar hans frá sér skemmtiplötuna La Verité sem innihélt ágætis dans- músík og margar einkar grípandi laglinur. Enda naut platan sú vin- sælda. Svo komu blessaðir drengim- ir til Islands og spiluöu fyrir okkur í Höllinni. Secret á það sammerkt meö La Verité aö hún er skemmtiplata núm- er eitt, tvö og hátt í þrjú. Tónlistin er kraftmikil og rífandi nýrómantík sem hleypur beint í lappimar. I mín- um augum er trommarinn í aðalhlut- verki. Ég sé hann fyrir mér allan á ótæpilegu iði, berjandi trumbumar af öllum mætti, taktfastur í meira lagi eins og róðrarstjórar galeiöanna forðum. I ofanálag kemur trommu- heili mikið viö sögu. Takturinn þungi er svo leiðandi að meira að segja lög, sem eru ballöður aö upplagi, s.s. Heart From The Start og Never Nev- er Comes, fá innundir sig trommar- ann taktfasta og tölvuvætt undirspil og væl, m.a.s. spreningar og læti. Og ofan á öllu þessu þunga undirspih flýtur fallegasta ballaöa. Annars hvílir svipaöur stíll yfir tónlistinni og kom fram á fyrstu plötunni og ekki er laust viö aö manni finnist hann orðinn ofurlítið gamaldags. Getur þaö verið? Laglínur em margar hverjar vel lukkaöar þótt ekki séu þær jafngrípandi og á La Verité. Um hljóðfæraskipan veit ég lítið enda ekki ástæða til aö geta um frammistööu neins sérstaklega. Sal hinn sköllótti er þó ágætur söngvari en hljómar assgoti svipað og allir hinir nýrómantísku söngvararnir. Hvers vegna skyldu þeir allir beita rödd sinni á svo svipaðan máta? Er þetta hluti af þessari músíkstefnu? Auk meölimanna fjögurra eru nefndir til sögunnar 8 gestaleikarar sem ég hiröi ekki um aö nefna þar sem á framlag hvers og eins þeirra er ekkert f rekar minnst. Bestu lögin finnst mér vera Never Never Comes (næst því aö teljast ró- legt þótt trommarinn gefi því engin griö) og af danslögunum t.d. All Around The World. Sem sagt: Skemmtiplata sem höföar til danslimanna fyrst og síöast. -TT. pOPP SMÆLKI Menn erueinlægt að finna sér frumleg yrkisefni og svo virðist sem söngvar um fræga leikara sé það nýjasta nýtt. Madness er búin að senda frá sér 2ja laga plötu með laginu: Michael Caine og stelpurnar í Bananarama eru vaknaðar til lífsins og ný smáskífa þeirra heitir: Robert DE Niro’s Waiting... Og talandi um Madness: nýja lagið frá Tracey Ullman (þeirri geðþekku stúlku) er úr safni Madness og heitir: My Girl... Arlega eru veitt verðlaun breska hljómplötu- iðnaðarins og úrslit nýlega kunn: Culture Club var valin besta hljómsveitin, David Bowie besti söngvarinn, Annie Lennox besta söngkon- an og Miehael Jackson mesti listamaðurinn á alþjóðamæli- kvarða... Og lítið spaug um Miehael, tilbrigði við gátuna góðkunnu: Hvernig komast Jackson 5 inn í Fólksvagn? Svar: Tveir frammí, tveir afturí og Michael Jackson í öskubakkann!... Meira um verðlaun í Bretlandi: Bjart- asta vonin var kjörin: Paul Young og lagið True með Spandau Ballet fékk verðlaun fyrir tæknilega fullkomnun... Um miðjan mars er væntan- leg ný plata l'rá Joe Jackson en síðasta skifa Jóa þótti af- bragö og hét: Night And Day. Nýja platan heitir: Body And Soul... Clash tilkynnti á dögunum nýja liðsskipan en eins og alþjóð veit var Mike Jones sparkaö úr sveitinni á síðasta ári. 1 hans stað eru komnir tveir gítaristar: Vince White og Nick Shepp- ard og trymbill: Pete How- ard. Joe Strummer mun ein- beita sér mest að söngnum... Takið eftir! Simple Minds er orðin ein vinsælasta hljóm- sveitin í Bretlandi. Nýja platan: Sparke Ln The Rain fór rakleitt á topp breska list- ans í fyrstu viku.... Human League er aö ljúka við nýja breiðskífu eftir tveggja og hálfs árs framleiðslutíma og fyrsta plata Style Council er rétt ókomin; heitir: Café Blue... Lesendur NME hafa valið hljómsveitina The Smiths björtustu vonina en lögin This Charming Man og What Difference Does it Make hafa bæði komist á topp „óháða” listans í Bret- landi... Birthday Party er hætt. Viðlíka... -Gsal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.