Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 7
DV. FOSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984. 7 kjúklingasalat þar sem notkun innmatarins er ekki nauösynleg. Innmaturinn í kjúklingum alltaðlO% af verðinu Neytendur Neytendur Kjúklingaframleiðsla hefur tekið mikinn fjörkipp hér á landi seinustu ár. Alls eru starfandi f jögur sláturhús sem eru reyndar mismunandi stór. Mikil samkeppni hefur veriö milli framleiðenda og hefur það m.a. komið fram í verðinu. Ætla má að neysla á kjúklingum hafi aukist mikiö. Nú hafa okkur borist fyrirspurnir um það hvers vegna innmaturinn fylgi ekki meö kjúklingum. En flestir sem neytt hafa kjúklinga um árabil eru vanir því að þessi matur fylgi með. Hann er m.a. notaður til að gera sósur. Því er til að svara að hjá sumum fram- leiðendum fylgir þessi innmatur með en hjá öðrum ekki. Hjá yfirdýralækni fengum við þær upplýsingar aö frá þeirra hendi væri lögð áhersla á að innmaturinn væri ekki látinn fylgja með. Ástæöan fyrir því væri sú að hættan á sýklamyndun væri mun meiri þegar hann væri látinn fylgja með. Ef hætta er á því að í kjúklingum leynist sýklar, salmonella sýklar, er það fyrst og fremst í innyflum og hálsi kjúklingsins, þ.e. í meltingarveginum. Hættan á sýkingu er ávallt fyrir hendi þó hún sé reyndar ekki mikil og sýklarnir drepast við hitastig yfir 80°C. Að sögn Páls Agnars Pálssonar yfirdýralæknis er þetta ráð- stöfun sem á að koma neytendum til góða. Gunnar Jóhannsson, framleiðandi Holta-kjúklinga, sagði að innmaturinn væri ekki látinn fylgja með þeirra kjúklingum. Astæðurnar fyrir því væru ekki vegna heilbrigöisráöstafana heldur vegna þess að reynsla þeirra væri sú að ekki nema örfáir nýttu sér þennan innmat. Gunnar taldi aö 90—95 prósent þeirra sem keyptu kjúklinga borðuðu ekki innmatinn, hann færi beint í ruslafötuna. Innmaturinn væri 70—100 g og gæti þá verið allt að 10 prósent af kílóverðinu. Þetta væri því oft dulin aöferð til að fá hærra verð fyrir kjúklinga. Það er því spurning hvort neytendur vilja borga svo mikið fyrir þennan innmat þegar reyndin er 'sú að ekki nema örfáir nýta sér hann. Selt í lausu Okkur hér á neytendasíðunni dettur í hug aö órannsökuöu máli að hugsan- legt væri að selja innmatinn í lausu. Þá gætu þeir sem vilja nota hann keypt hann en aðrir, sem viröast vera í yfir- gnæfandi meirihluta, þyrftu ekki að borga aukalega fyrir þennan fylgimat sem oftast hafnar í tunnunni. -APH Svona auövelt er aö losa fiskinn frá beinunum 'Zrv '-"' / V ■ .> J-\: \ -. Ay Ristið með hníf eftir endilöngum fisknum. Losið síðan fiskinn frá kviðnum, síðan hryggnum. Auðveldast er að fjarlægja bein og hrygg ef byrjað er við sporðinn. Skeriö silunginn upp og fjarlægið innyfli og blóðrönd vandlega. Einnig tálknin. Kryddiö fiskinn með salti og pipar og veltið upp úr eggjahrærunni og síðan möndluflögunum. Bræðið smjörið á þykkbotna pönnu og þegar það freyðir er silungurinn settur á pönnuna og steiktur í u.þ.b. 4— 5 mínútur á hvorri hlið. Best er að nota breiðan spaða við að snúa fiskinum til þess að flögumar detti ekki af. Þegar búið er að fjarlægja silunginn af pönnunni er afganginum af möndluflögunum, ef einhver er, bætt á pönnuna og örlitlu smjöri. Hellt yfir fiskinn um leiö og hann er borinn fram með hvítum kartöflum og sítrónu. Smiöshöföa 23 sími 812 99 — Er byftingarkennd nýj- ung frá Wella. Er notað þegar hárið er lagt eða blásið og skilar sérlega góðum árangri \ hár sem feng- ið hefur permanent. Afrafmagnar hárið, hárgreiðslan helst bet- ur og hárið greiðist og leggst betur en ella. Inniheldur einnig nær- ingu og gerir hárið viðráðanlegra og gefur því glans. NÝJASTA nýttJ^sJS FRÁ WElltI -------------------\ Svona notar þú f rá WEllA • Hristið dósina vel fyrir notkun. • Sprautið froðunni í lófann og látið hana þenjast út. Hæfilegt magn er á stærð við golfkúlu. • Dreifið froðunni jafnt í hárið. • Greiðið, leggið eða blásið hárið eins og óskað er. • Þú getur keypt á hárgreiðslustofunni þinni Heildsölubirgðir Halldór Jónsson h/f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.