Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984. Nýja f lugstöðvarbyggingin á Keflavíkurflugvelli: Milljóna kyndikostnaö oghergarð- yrkjumanna — þyrfti til að reka stærsta gróðurskála á landinu á þaki stöðvarinnar Ekki liggja fyrir neinar fastmótaöar hugmyndir um þaö hvernig skuli nýta stærsta gróöurskála á Islandi sem -veröur á þaki nýju flugstöðvar- byggingarinnar á Keflavíkurflugvelli. Eins og DV skýröi frá í gær á hann að veröa 38 þúsund rúmmetrar, eða um þaö bil helmingi stærri en stærsta gróörarstöö á Islandi. Mikil glerútskot til beggja enda veita birtunni inn. Aætlaður byggingarkostnaöur skálans nú mun vera liölega 390 milljónir króna. Kyndikostnaöur gæti numið um 2 milljónum króna á ári. Ekki er hægt aö gera sér grein fyrir hversu mikinn mannskap mun þurfa til garðyrkjustarfa þar sem umfang gróðurs er enn meö öllu óljóst. En garðyrkjumaöur sem DV ræddi málið við í gær sagöi aö undir öllum kringum- stæöum þyrfti „her” manna til að halda svo stóru svæði í góðri hirðu. Eina nýting þessa rýmis, sem fýrir liggur, er að þar á að vera loft- ræstikerfið fyrir allt húsiö. Verk- fræðingar áætla aö umfangsmikiö kerfi fyrir húsiö í heild og gróöur- skálann geti ekki undir neinum kring- umstæöum þurft meira en átta þúsund rúmmetra, svo eftir eru 30 þús. rúm- metrar. Eftir því sem DV kemst næst er þessi gróðurskáli leifar af gömlum stórveldisdraumum í feröamennsku, sem enginn aöstandandi vill nú kannast við. Þá átti flugstöðin aö vera mun stærri en nú og einhver sægur af „transit” farþegum átti aö geta gengiö um glerhúsiö og skoöaö þverskurð af íslenskri náttúru á meðan þoturnar tækju eldsneyti. Þetta glerhýsi hefur síöan verið rauöur þráður í öllum síðari tíma hug- myndum, sem hafa miðað aö því að minnka umfang stöövarinnar niöur í núverandi umfang. Fyrir utan áöurnefndan reksturs- kostnaö velta tæknimennþví fyrir sér hvemig hægt veröi aö komast hjá leka á þeim fjölda samskeyta sem óhjá- kvæmilegur verður. Hafa þeir áhyggjur af því með tilliti til þess að vind- og veðurálag virðist vera með ólíkindum mikið á byggingar á Kefla- víkurflugvelli miöaö við það sem gerist og gengur. Ennfremur benda þeir á aö í sólskini kunni aö skapast óhemju hiti í gierskálanum (gróðurhúsavirkni) svo þar verði einnig aö vera öflug loft- kæling. Stefán Benediktsson, þingmaöur Bandalags jafnaöarmanna og arkitekt aö mennt, hefur ásamt flokksbræðrum sínum skoöað bygginguna í heild út frá mörgum sjónarmiðum meö það aö leiöarljósi aö spara við bygginguna. I viötali viö DV í gær sagöi hann aö ef gróðurskálanum væri sleppt, þak með litlum halla sett í staöinn og átta þús-' und rúmmetra hús byggt fyrir loft- ræstikerfið, sem á að staðsetja í gler- hýsinu, spöruöust um þaö bil 300 milljónir. Geröi hann þá ráð fyrir aö viöbótarbyggingin í staðinn kostaöi tæpar 90 milljónir. Þá benti hann á aö hugmyndir um nýtingu kjallara fyrir geymslur, sorp o. fl. væru á reiki og ættu að ráðast af klöppum þar undir, eftir því sem þær kæmu í ljós. Taldi hann rétt að sleppa» kjallaranum alveg enda væri engin þörf fyrir svo stórt rými fyrir áöur- nefnda starfsemi og ódýrara og betra væri aö byggja yfir hana ofanjarðar. Lauslega áætlaöi hann aö við það mætti spara 100 milljónir króna. „Hér nefni ég aðeins tvö atriöi sem lækka myndu byggingakostnaöinn um 400 milljónir króna, eða 34 prósent, en nánari skoðun hæfra sérfræðinga myndi eflaust gera betur,” sagði Stefán. -GS. Rætt við Iðju um hvarf kókkassa Starfsmenn Coca-Cola verk- smiðjunnar á Stuölahálsi hafa haft samband við Iðju, félag verk- smiðjufólks, vegna fullyröinga for- ráöamanna fyrirtækisins um aö sjö þúsund kókkassar hafi horfiö á einu ári. Iöja hefur rætt máliö við stjórn- endur. Samkvæmt heimildum DV hefur enginn veriö sakaöur um aö bera á- byrgð á hvarfi gosbirgðanna. Einn viðmælandi blaðsins sagöi aö yfirmenn hefðu þó gefið í skyn að viss hluti starfsmanna kynni aö tengjast málinu. Urgur er í starfsmönnum á Stuöla- hálsi. Þeir vilja meina aö skýringin geti allt eins verið bókhaldsskekkja. „Fyrirtækiö er aö þjófkenna fólk,” sagöi ónefndur starfsmaöur. -KMU. MIKILL GASLEKII NORSKUM BORPALLI Mikill gasleki varð á norska olíuborpallinum Vinland í fyrrinótt og varö aö fjarlægja 76 manna starfsliö af paUinum í björgunar- bátum. Vinland er miðja vegu miUi Nova Scotia og Fable Island en pallurinn er í eigu norska fyrirtækisins Ditlev Simonsen í Stafangri. Einn Islendingur var á olíuborpalU þess- um, Bjöm Aðalsteinsson, en hann mun ekki hafa sakaö frekar en aöra starfsmenn. Annar starfsmaður, íslenskur, íslendingur um borð fyrir sama fyrirtækið, Matthías P. Hauksson í Stafangri, tjáði DV í gær aö fólkinu heföi veriö komiö í björgunarbáta strax og gaslekans varö vart, þegar gas var komið á út- hliðar fóðrmgsröra í borholunni. Aö sögn Matthíasar var strax bmgöist við eins og um slys væri að ræða enda mjög alvarlegt þegar svona á sér staö þar sem aUt getur spmngiö í loft upp eöa borpallurinn getur sokkiö þegar gasiö blandast sjónum umhverfis. Björgunarbátamir sem fólkiö fór í eru yfirbyggöir og mjög öruggir en mikiö óveður var þessa nótt og eigi reyndist unnt aö koma fólkinu upp á skip, þannig aö því var komið fyrir á öörum borpalU og bíður það þess nú aðveraflutt íland. Borpallurinn Vinland stendur hins vegar einn og yfirgefinn og gaslekinn heldur stööugt áfram en geröar em tUraunir nú tU aö koma viögeröar- mönnum þangaö út, aö sögn Matthíasar. -HÞ. EV- SALURINN TEPPIIM Við erum í takt LÆKKA LÆKKA LÆKKA LÆKKA LÆKKA við verðbóiguna! TEPPABÚDIN SÍÐUMÚLA 31 SiMl 84850 Chevrolet Concours 1977. Dodge Aspen 1979. rr^ Volkswagen Passat 1976. ÓDÝRIR BÍLAR. ÁN ÚTBORGUNAR. notodir bílor Volkswagen Passat 1974. Munið EV kjörin. EV- SALURINN HGILL * eigu umbodssins VILHJÁLMSSON HF Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Simi 79944 Ford Cortina station 1974. Fiat 127 900 cl 1977. - Ford Mustang 1966. Fiat 131 Mirafiori 1980. Fiat 127 900 special 1982 Mercedes Benz dísil 1972.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.