Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Page 5
DV. FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984.
5
4-5 milljóna
krónatjón
— hjá steypustöðinni Bjargi í snjóff lóðinu
ífyrrakvöld
„Eg giska á aö tjóniö hjá okkur
nemi 4—5 milljónum króna,” sagöi
Stefán Jóhann Sigurðsson, einn af
eigendum steypustöðvarinnar
Bjargs í Olafsvík en hún varö fyrir
snjóflóöi í fyrrakvöld.
Stefán sagði að hús steypustöðv-
arinnar væri svo illa fariö aö ekki
væri hægt að endurbyggja þaö. Auk
hússins missti fyrirtækið þrjá
steypubíla, blöndunarstöð, tvo
sementstanka, fólksbifreið og ýmis
verkfæri í snjóflóðinu.
Húsiö var nýlegt, haföi aöeins
veriö í notkun í tvö ár. Þaö var meö
viðlagatryggingu og öll tæki voru
kaskótryggö þannig aö tjónið fæst aö
verulegu leyti bætt úr tryggingum.
Matsmenn frá viðlagasjóðs-
tryggingu og frá Brunabótafélagi
Islands munu fara vestur viö fyrsta
tækifæri.
Stefán sagöi aö menn ræki ekki
minni til að snjóflóö hefði fallið áöur
á þessum stað. Aftur á móti heföu
grjótskriður fallið þar niður. Hann
sagöi einnig aö ekki væri um annaö
aö ræöa en að byggja nýja steypu-
stöö en þaö yröi þó gert annars
staöar. -GB.
Það verður að teljast kraftaverk að mennirnir tveir skyidu hafa sloppið lif-
andi undan snjóflóðinu sem æddi inn i hús steypustöðvarinnar.
Hús steypustöðvarinnar Bjargs er gjörónýtt eftir snjóflóðið.
Sjómenn æfir út af gati í kvótaútreikningunum:
SUMIR SKUSSAR FÁ MEIRA
EN ÞEIR HAFA GETAÐ VEITT
Þaö hefur vakið mikla reiöi margra
sjómanna og útgeröarmanna aö sum
fiskiskip sem hafa staðið sig mjög illa
fá nú hærri aflakvóta en þau veiddu í
fyrra og jafnvel aö meðaltali síöast-
liöin þrjú ár. Um leið er kvóti góðra og
meðalgóðra skipa undantekningar-
laust skertur. Benda sjómenn á aö þaö
sé einkennileg ráöstöfun aö verðlauna
skussana á þennan hátt þar sem þeir
nái líklega ekki upp í þennan kvóta
sinn fremur en lægri aflatölur undan-
farinár.
Þegar betur er að gáö er þetta ekki
reikningsskekkja heldur ,,gat” í
kerfinu sem reiknað er eftir. Ef skip
hefur verið keypt eöa skipstjóraskipti
hafa orðiö á því eiga útgeröarmenn
þess val á meðalaflamarki, reynslu-
aflamarki og sóknaraflamarki sams
konar skips á sams konar veiöum á
sama svæöi. Landinu er skipt í suöur-
og noröursvæði.
Hafi útgerð skips gengið á afturf ótun-
um undanfarin ár á sama svæöinu en
skipstjóraskipti oröið í fyrra getur út-
gerðin valiö sér meðalaflamark og
þannig hækkaö sig upp í meðallag nú
um leiö og aðrir eru lækkaöir.
Eftir því sem DV kemst næst eru þær
skýringar á þessu ,,gati” aö höfundar
reiknireglnanna létu undan þeim
þrýstingi aö taka eitthvert tillit til
góöra skipstjóra sem fluttu sig um
skipsrúm í fyrra. Án þessa sveigjan-
leika sætu góöir aflamenn uppi meö
þaö aö fá aðeins aö veiða brot af fyrri
afla nema aö þeir heföu tekið viö skips-
rúmi góös aflamanns.
Þar sem þessi staöa getur ekki
komiö upp nema hjá hluta þeirra skipa
sem veitt hafa undir meöallagi telja
þeir ekki rétt aö setja sig í dómarasæti
og leiðrétta þessi sérkennilegu frávik
frá meginreglunni að eigin geöþótta.GS
Tap Landsvirkjunar:
Milljón krónur á dag
— stöðvist álverksmið jan í Straumsvík
,,Ef rekstur Landsvirkjunar
stöövaðist algjörlega vegna verkfalls
myndi sölutap Landsvirkjunar nema
rúmlega einni milljón króna á dag,”
sagði Halldór Jónatansson, fram-
kvæmdastjóri Landsvirkjunar, í sam-
taliviöDV.
Halldór upplýsti að ákvæöi í
samningum um lágmarksgreiöslu-
skyldu ISAL fyrir raforku gilti ekki
þegar rekstur verksmiöjunnar félli
niöur af óviðráðanlegum orsökum. 1
samningi væri verkfall taliö til
óviöráöanlegra orsaka.
Enginn veit í raun hve langur tími
myndi liöa þar til framleiöslan kæmist
í eðlilegt horf ef rekstur álversins
stöövaöist um helgina. -KMU.
I dag opnar
Alþyóubankinn
útibú á Akureyri
æjanns
AÐ RÁÐHÚSTORGI 5
Viðskiptavinir athugið að
afgreiðslutími okkar er,
kl. 9.15-16.00
auk þess er opið á fimmtudögum
milli kl. 17.00 og 18.00
Lokað milli 13.00 og 14.00
ATH!
OPIÐ í HÁDEGINU