Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1984, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1984, Síða 1
Á AÐ LEYFA KAPAL- KERFIEDA EKKI? —tvö stjórnarf rumvörp greinir á um þetta Nýframkomið stjómarfrumvarp um f jarskipti stangast á við útvarps- lagafrumvarpið hvaö varöar rétt einstaklinga eða félaga til að starf- rækja kapaikerfi og önnur fjar- skiptavirki. Utvarpslagafrumvarpið gerir ráð fýrir afnámi einkaréttar ríkisins á þessu sviði en frumvarpið um f jarskipti gerir þennan einkarétt ríkisins ótvíræðari en nokkm sinni fyrr. Þetta kom meðal annars fram i út- varpserindi Sigfúsar Bjömssonar verkfræðings og kennara i tölvufjar- skiptum við Háskóla Islands þann 25. þessa mánaöar. Sagði Sigfús að í nýja frumvarpinu um fjarskipti væri felld niður heimild til ráðherra að veita öðrum aðilum en ríkinu leyfi til reksturs minniháttar fjarskipta- kerfa. „Þar með yrði lokað þeirri smugu á ný að sjálfstæðir aðilar geti rekið gagnvirk kapalkerfi, smugu sem opnast hefði við nýju útvarps- lögin og að ráðherraheimildinni í fjarskiptalögunum óskertri. Það er augljóst mál að samræma þarf betur þessi stjórnarfrumvörp,” sagði Sig- fús í erindi sínu. Matthías Bjamason samgönguráð- herra sagði er hann mælti fyrir frumvarpinu um f jarskipti á Alþingi að hann gerði ráð fyrir að f jarskipta- lögin yrðu endurskoðuð eftir að út- varpslagafrumvarpið hefði verið sam- þykkt. Sagði ráðherrann aö sér væri ljóst að fyrr eða síðar muni koma til kasta Alþingis að setja reglur um hvaða aöQar ættu að eiga og reka kapalkerfL OEF Siglóverksmiðjan i Sigiufirði fer i fullan gang inæstu viku. Að undanfömu I . Moðfyigjandi mynd var tekin í vikunni þegar unnið var að andlitslyfting- hafa staðið yfir miklar viðgerðir og endurbætur 6 verksmiðjuhúsnæðinu. j unni. DV-mynd Kristján L. Möiier/Sigiufirði Læknanemamálið: Lögmaður læknanema í HI, Jón Oddsson, sendi Háskóiarektor, Guð- mundi Magnússyni, skeyti í gær, þar sem sagði að hefðu læknanemar ekki fengið að sjá prófúrlausnir sínar í líf- færafræði ásamt útskýringum fyrir kl. 18 í gær, yrði gripið tU fógetaað- gerða og beðið um opinbera rann- sókn. Læknanemar höfðu farið fram á að sjá úrlausnimar úr prófi í janúar sl. LæknadeUd hafnaði erindinu og stúdentar vísuðu því þá til Háskóla- ráðs, sem aftur vísaði því til lög- skýringanefndar. Urskurður hennar var á þá leið að stúdentar ættu rétt á aö sjá úrlausnir sínar, ásamt út- skýringum. Urskurðinum hefur þó enn ekki verið framfylgt af hálfu Háskólaráös og sagði rektor við DV í morgun að það stafaði af timaskorti kennara við læknadeild. Yrði unnið að framgangi málsins af hálfu Háskólaráðs. Jón Oddsson sagði við DV að ákveöiö yrði á fundi hans með skjólstæðingum sínum i dag hvenær yrði gripið tU fógetaaðgerða og farið fram á beiöni um opinbera rannsókn vegna brots kennara við læknadeUd í opinbera starfi og embættisvan- rækslu. -JSS Starfsmenn ríkisverk- smiðja semja Samningar tókust meö samninga- nefndum rikisins og starfsmanna ríkisverksmiðja í morgun kL 5. Samningurinn er á sömu nótum og samningar ASI og VSI, pró- sentuhækkanirnar eru hinar sömu, svo og gildistíminn. Samkomulagið verður lagt fyrir félagsfund starfs- manna einhvem næstu daga. Samningafundur deUuaðUanna stóð samfleytt frá ki. 15.30 í gær. Fréttaskot—beint í mark! Síminn sem aldrei sef ur þagnaði ekki Fréttaskot, hin nýja leið mUli les- enda og DV, virðist hafa hitt beint í mark. Ohætt er að segja það að sím- inn hafi ekki stoppaö frá því aö blaðið kom á götuna í gær. Abendingar um fréttir eru fjölmarg- ar og margar þeirra mjög góðar. Strax í blaðinu í dag era fréttir sem komnar eru til vegna fréttaskota les- enda. Fréttaskot, síminn sem aldrei sefur, stendur þvi fyUUega undir nafni. Eins og fram kom í DV í gær hefur blaöið ákveðið að verðlauna hvern þann sem hringir í síma 68— 78—58 og bendir á frétt eða það sem leiðir til fréttar. Verðlaun fyrir hvert fréttaskot, sem blaöið notar eru eitt þúsund krónur. Jafnframt verða greiddar þrjú þúsund krónur fyrir besta fréttaskot hverrar viku. FuUkominnar nafnleyndar er gætt gegnvart öllum sem hringja og skjóta að blaöinu fréttum. Hringdu þegar þú veist um góða frétt. Síminn er 68—78—58 og tekið er viö fréttum allan sólarhringinn. -JH Nýrforstjóri verðurráðinn í stað Sigurðar Sigurður Helgason var kjörinn for- maður á fundi stjórnar Flugleiða að loknum aðalfundi í gær. Hann sagði um leiö af sér starfi forstjóra enda meina lög um hlutafélög honum sem stjómarformanni að gegna um leið forstjórastarfi. Hann mun þó starfa áframífyrirtækinu. Forstjórastaðan hefur ekki verið lögð niður. Samkvæmt heimildum DV innan stjómar fyrirtækisins mun stefnt að því að finna nýjan mann. Ráðning nýs forstjóra gæti þó dregist um nokkurn tíma, jafnvel hálft ár. -KMU. — nánarumaðalfund Flugletöa bls. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.