Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1984, Blaðsíða 14
14
DV. FÖSTUDAGUR 30. MARS1984.
IMauðungaruppboð
Að kröfu ýmissa lögmanna, innheimtumanns ríkissjóðs og Gjald-
heimtunnar í Reykjavík verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á
nauðungaruppboði, er fram fer föstudaginn 6. apríl 1984 kl. 16.00 við
lögreglustöðina í Keflavík, Hringbraut 130 Keflavik.
Bifreiöarnar: 0—197 Ö—3700 0-776 0—4873
0-1695 0—4223 0—2234 0—4899
0—2240 0—4897 0—2055 0—7019
0—2592 0—7359 0—2704 0—7797
0—3227 0-8230 0-3298 0—7598
0—3458 G—17326 0—3543 0-8361
Ö-3931 ÖD—85 0—3966 J—21
0-4197 R—9366 0-4926 0—1347
Ö—5330 Ö—2152 0-6179 0—2238
0-7286 0-2260 0-7551 0—2337
Ö—8007 0—2693 0-8195 0—2876
0—8435 0—3268 J—84 0—3194
J—154 0-3544 Saab árg. 1984 0—3444
0-8195 0—3932 0-1251 0-4275
0-230 0—4494 0-2235 0—5086
0—2077 0—6063 0—2329 0—7219
Ö-2257 0-7542 0—2859 0-8029
0-2619 0-8124 0—3251 0-8425
Ö—3228 X—2081 0—3671 J—137
0—3587 R—30889 0-3721 ÖT—35
ennfremur mótorhjól, sjónvörp, rafmagnsorgel, þvottavél, stereo-
samstæða, hillusamstæða, sófasett o.fl. Þá verður boðið upp við
Strandgötu 18, Sandgerði: Færiband, stálfæriband. Uppboðsskilmálar
liggja frammi á skrifstofunni. Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Keflavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 127., 129. og 132. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Maríubakka 12, þingl. eign Jóhönnu Erlingsdóttur, fer fram eftir kröfu
Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 2. april 1984
kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 127., 129. og 132. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Vesturbergi 10, þingl. eign Höllu Leifsdóttur, fer fram eftir kröfu
Veðdeildar Landsbankans, Jóns Olafssonar hrl. og Gjaldheimtunnar i
Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 2. apríl 1984 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 127., 129. og 132. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Maríubakka 32, þingl. eign Viktors Jónssonar o.fl., fer fram eftir kröfu
Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 2. apríl 1984
kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Gyðufelli 6, þingl. eign Jóhannesar Þ.
Jóhannessonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík,
Innheimtust. sveitarfél., Hafsteins Sigurðssonar hrl. og Veðdeildar
Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 2. apríl 1984 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 135., 139. og 140. tbl. Lögbirtingahlaðs 1983 á Breiða-
gerði 7, þingl. eign Sveins Jónssorar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 2. apríl 1984 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Menning Menning Menning
Ónýtur bill eftir Vilhjálm Vilhjálmsson.
Renaissance og
naturalismi
— um sýningar Vilhjálms og Sigurðar
Ása Valgerður eftir Sigurð Eyþórsson.
Sjálfsmynd eftir Sigurð Eyþórsson. Ljósm. GBK.
Listasafn ASÍ
Vilhjálmur G. Vilhjálmsson sýnir
nú um þessar mundir í Listasafni
ASl við Grensásveg. Nefnir hann
sýninguna Sjónarhom og stendur
húnfram til 8.4.
Vilhjálmur er uppalinn í Reykja-
vík. Hann stundaði ýmis myndlistar-
námskeið, m.a. hjá Hring Jóhannes-
syni og Ragnari Kjartanssyni, og
nam við Myndlista- og handíðaskól-
ann á árunum 1973—1977. Þá hélt
hann til Danmerkur og nam viö
Skolen for Brugskunst í Kaupmanna-
höfnáárunum 1978—1980. Vilhjálm-
ur starfar sem auglýsingateiknari
héríborg.
Fágun og nákvæmni
Hér á sýningunni gefur að líta 44
smámyndir, teikningar, vatnslita-
myndir og pastel. Flestar eru þetta
litlar landslagsmyndir, ljóðrænar
stemmningar, gerðar af mikilli
fágun og næmleik. En þær myndir
sem vekja kannski mesta athygli eru
„ónýtu bílamir”, nákvæmar eftir-
hermur þar sem allt er gert til að
komast sem næst fyrirmyndinni. Og
listamaðurinn kemst ansi nálægt.
En þó svo að við getum talað um
fágað handbragð og ljóöræna fram-
setningu getum við vart talað um
frumleika í þessum verkum. Við get-
um ekki bent á neitt sem afmarkar
persónulega sýn listamannsins held-
ur er hér um að ræða hluttekningu í
viðamikilli hefð, landslagsmálverk-
inu, án þess að listamaðurinn setji
fram nokkrar spurningar um sjálfa
sköpunina. Þetta er umfram allt
innileg upplifun á náttúrunni og val á
sjónarhomum sem Iistunnendur
þekkja þegar úr listasögunni. En þó
að listamaðurinn hafi ekki þann
ásetning að umbreyta listasögunni
og gefa landslaginu nýtt inntak þá
Myndlist
GunnarB. Kvaran
býður sýningin upp á ánægjulega
skoðun.
Ásmundarsalur
Sigurður Eyþórsson sýnir þessa
vikuna í Ásmundarsal við Freyju-
götu 48 myndverk í olíu, bleki og
akvarel. Listamaöurinn nam fyrst
viö Myndlista- og handíðaskólann og
lauk þaðan prófi árið 1971. Þá stund-
aöi hann á árunum 1974—1976 grafík-
og almennt myndlistamám við
Listaakademiuna í Stokkhólmi.
Það ríkir sannarlega furðuleg
stemmning innan um myndverk
listamannsins. Sigurður hefur til-
einkað sér myndmál og myndskrift
sem tíðkaöist á renaissancetímanum
— og hefur náð ótrúlegri tækni og
leikni í útfærslu þess konar mynd-
verka. Ef til vill mætti kalla þessi
verk tímariðlun. En er það í raun
meiri tímaskekkja að mála
renaissancemyndir eða hefðbundinn
naturalisma eða kannski aldar-
gamlan expressionisma?
Allar myndskriftir eöa stílar eru
þegar skráðir í listasöguna. Og því er
aðeins listamannsins að velja sér
myndskrift (renaissance, impress-
ionisma) eða að skapa nýja. Og
hingað til eru það ekki margir
íslenskir listamenn sem hafa skapaö
einstæða og persónulega myndskrift
eða stíl. Ætli það sé nema einn,
ERRO.
Sigurður Eyþórsson hefur ákveöiö
að velja sér myndskrift og tækni frá
renaissancetímanum — og virðist
hann sannur í tileinkun sinni. Og þaö
sem meira er, í þessu gamla kerfi á
sér stað gerjun — því við getum
auöveldlega merkt úrvinnslu og per-
sónulegt innlegg listamannsins eins
og t.d. í myndinni Steinrunnin. Það
virðist listamanninum ljóst að þess-
ar renaissancetýpur verða innan-
tómar í endurtekningunni og til að
þær öðlist líf verði hann að gæða þær
tilfinningum sínum og hugsun. Og
víst er að ef listamaðurinn finnur
persónulega leið í þessu sögulega
málverki má vænta stórmerkra
hluta. Þetta er athyglisverð sýning
og lýsir hún sérstæöum listamanni.
GBK