Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1984, Qupperneq 36
VISA ISLAND
V/SA
í öllum viðskiptum.
Austurstræti 7
Slmi 29700
KAFFIVAGNINN
GRANDflGARDI 10 _
GLÆNÝR SPRIKLANDI
FISKUR
BEINT UPP UR BAT
GLÆSILEGUR
SÉRRÉTTARMATSEDILL
BORÐAPANTANIR I SÍMA
15932
97022 auglýsingar
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSIIMGAR
AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11__
RITSTJÓRN
_________SÍÐUMÚLA 12-14
AKUREYRI SKIPAGÖTU 13
AFGREIÐSLA (96)25013
BLAÐAMAÐUR (96)26613
86611
FÖSTUDAGUR 30. MARS 1984.
Albert hótar
lögum borgi
Flugleiðir ekki
Albert Guömundsson fjármálaráö-
herra og forráðamenn Flugleiöa eru
komnir í hár saman. Þá greinir á urn
hver eigi aö greiöa 65 milljón króna lán
sem tekið var áriö 1982 vegna tap-
reksturs Flugleiða.
Sigurður Helgason, stjómarfor-
maöur Flugleiða, sagði í gær að félagið
myndi ekki greiöa lánið enda hefði Al-
þingi ákveðið annaö. Sagði hann fjár-
málaráðherra ekki hafa heimild til að
breyta því.
Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra:
Þurfum að ná
1,400 millj-
óna sparnaði
„Það koma athugasemdir úr öllum
áttum en þaö er ekki farið að reyna á
þaö hvort við náum samstöðu. Fyrir
því er þó mikill vilji. Mér sýnist útilok-
að að loka fjárlagagatinu alveg og
myndi sætta mig við að þær 400
milljónir sem áætlaðar vom í halla á
f járlögum stæðu áfram. Samt þurfum
við að ná 1.400 milljóna spamaði,”
sagði Albert Guðmundsson fjármáia-
ráðherra í morgun.
En hvað meö nýja skatta? „Þeir em
engin lausn, aðeins framlenging á
þeirri skaðlegu pólitík að eyða umfram
efni. Eg held viö getum komist alveg
hjá þeim. En hert skattheimta getur
vafalaust skilað talsverðu.”
Þá sagði ráðherrann að um leið og
unnið væri við gatið þyrfti að loka
ríkissjóði sem sjálfvirkri lánastofnun,
eins og fyrir Innheimtustofnun sveitar-
félaga vegna meðlaga. Aðeins hennar
vegna skuldaði ríkissjóður nú 200
milljónir í Seðlabankanum á refsivöxt-
um. HERB
LUKKUDAGAR
30. MARS.
20205
MYNDSEGULBANDSTÆKI
FRÁ FÁLKANUM
AÐ VERÐMÆTI KR. 40.000.
Vinningshafar hringi í síma 2
LOKI
Má/ið verður útkljáð með
vatnsbyssum.
Albert Guðmundsson virðist hins
vegar staöráðinn í að láta Flugleiðir
borga.
„Ef það er rétt hjá Flugleiðamönn-
um að það þurfi lagabreytingu til eö
þeir borgi sínar eigin skuldir þá mun
ég leita eftir henni,” sagði Albert í
samtali við DV í morgun.
„Það er tími til kominn að loka ýms-
um svikamyllumsem binda ríkissjóði
sjálfkrafa útgjöld, sem eru með engu
móti réttmæt,” sagði ráðherrann.
-KMU.
Vatnsútf lutningurinn frá Sauðárkróki:
SKOTHELDIR
VATNSSAMNINGAR
segir Jón E. Jakobsson lögfræðingur, fulltrúi kanadíska vatnskaupandans
„Eg skil ekki þennan taugaæsing í
bæjarstjórnarmönnum á Sauðár-
króki, þó svo þeir hafi ekki fengið að
sjá vatnssölusamninginn, það er mál
Hreins Sigurðssonar. Sem fulltrúi
kanadíska kaupandans hér á landi
var ég viöstaddur undirritunina og
er með afrit af samningunum hér í
töskunni minni,” sagöi Jón Einar
Jakobsson, lögfræðingur sem rekur
innflutningsf yrirtækið Bústof n.
Eins og fram kom i fréttum DV i
gær er uggur í bæjarstjómarmönn-
um á Sauðárkróki vegna vatnsölu-
samninga Hreins Sigurðssonar,
einkanlega vegna þess að engínn
hefur fram aö þessu fengið að sjá
samningana.
Kanadíski kaupandinn er fyrir-
tækið Cam Nick International í
Toronto sem verslar meö byggingar-
og neysluvörur. Að sögn Jóns Einars
er það rekiö af Vestur-Islendingnum
ThorNicolaison.
„Þetta eru skotheldir samningar
og tveir kanadískir bankar eru reiðu-
búnir til aö gangast í ábyrgð fyrir
greiðslum strax og framleiðsla hefst
á Sauðárkróki,”sagði Jón Einar.
„Því miður hef ég ekki heimild til aö
nefna nöfn bankanna né sýna samn-
ingana en það er klárt mál að engin
flaska verður send utan án banka-
ábyrgðar.”
-Em.
Ólafsfjörður:
Lyftarinn not-
aðuráveggi
og hurðir
Brotist var inn í fiskverkunarstöð
Garðars Guðmundssonar á Olafsfirði í
nótt og unnar þar töluverðar
skemmdir.
Þjófamir stálu vömlyftara og óku á
honum um stööina. Voru þeir búnir að
keyra niður vegg og skemma hurðir
þegar lögreglan handtók þá. -klp-
Aðalsteinn Aðalsteinsson,
skipstjóri hjá Eimskip,
skoðar tré í garðinum hjá
sér sem voru skorin niður
með beittum hnífum. Alls
voru 13 tré eyðilögð og
aðeins þau fallegustu valin.
DV-myndir: S
Skemmdarverk unnin í Flatahverfi í Garðabæ:
Skotið á hús og tré skorin
„Við sátum hjónin í rólegheitum og
vomm að horfa á sjónvarpið. Skyndi-
lega heyrðum við þennan ógnarhvell
og annan aftur skömmu síðar. Við
stóöum strax upp og athuguðum
hvaö hefði gerst. I ljós kom að búið
var að skjóta á tvær rúður í húsinu
okkar. Þaö er talið að strákar með
loftriffil hafi verið að verki.”
Þannig sagðist Stefaníu frá er viö
heimsóttum hana í fyrradag að
heimili hennar að Markarflöt 49
Garöabæ. Lýsing hennar er ófögur.
En því miður, hún er ekki einsdæmi
fyrir þann óknyttaskap sem við-
gekkst í Flatahverfinu í Garöabæ í
síðustu viku.
Það var skotiö á hús Stefaniu og
eiginmanns hennar, Krístjáns
Friðrikssonar, á þriðjudagskvöldið
um klukkan hálfníu. Ekki er vitaö
hverjir voru þar á ferð en þau
hringdu strax í lögregluna og til-
kynntu um skotárásina.
Tveimur dögum áður, á
sunnudeginum, hafði kona sem býr
við Sunnuflötina orðið fyrir því að
unglingar óðu um á lóðinni hjá henni
og eyðilögðu garðvegg. Skelltu
honum niður. Þeir höfðu sig á brott
er hún varð þeirra vör.
Eyöileggingarsagan er þó ekki
búin. I garðinum á lóöinni númer 31
við Sunnuflötina vom eyðilögð 13 tré.
Þau fallegustu urðu fyrir barðinu á
skemmdarvörgunum. Trén vom
skorin með hnifum.
Og hnífunum var beitt á fleira, því
þakrennumar á húsinu vom einnig
skomar. Þessi skemmdarverk urðu
uppvís síðastliðinn föstudag er
heimilisfaðirinn, Aðalsteinn Aðal-
steinsson, skipstjóri hjá Eimskip,
komúrsiglingu.
Að sjálfsögöu brá honum að horfa
upp á hluta af tíu ára starfi í garðin-
um eyðilagt af mönnum með
skemmdarfýsn. -JGH
FKETTA-
SKOT/Ð
68-78-58
Hafír þú ábendingu eða vitneskju um frétt —
hringdu þá í síma 68-78-58. Fyrir hvert frétta-
skotf sem birtist eða er notað í DV, greiðast
1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta frétta-
skotið i hverri viku.
Fuiirar nafnieyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum aiian sólarhringinn
ísíma 68-78-58.
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR