Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 2
2 DV. MANUDAGUR 9. APRIL1984. Grænhöfðaeyjar: Ms. Fengur heldur út — veisla um borð Fengur, skipið sem Þróunarsam- vinnustofnun blands gaf Grænhöfða- eyjum, mun nú senn halda út til sinna ný ju heimkynna, suður í höfum. Skipið hefur undanfarinn hálfan mánuð veriö að veiðum við Norður- land. Tilgangurinn hefur veriö að full- reyna vélar og annan tækjabúnað áður en haldið veröur suöur á bóginn. I tilefni brottfararinnar var efnt tii veislu um borð í skipinu. Meðal gesta voru ráðherramir Geir Hallgrímsson og Sverrir Hermannsson. Albert Guð- mundsson hætti sér hins vegar ekki lengra en á bryggjuna — sagðist vera nógu sjóveikur samt. Fengur er annað skipið sem Islendingar gefa til Grænhöfðaeyja, hitt er ms. Bjartur sem var selt upp í kaupverðFengs. SigA. Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra hætti sér ekki um borð i ms. Feng — sagðist vera nógu sjóveikur á bryggjunni! Geir Hallgrimsson og Sverrir Hermannsson áræddu hins vegar skipgöngu og var rikulega launað i formi gómsætra krása. DV-m yndir E. Ó. Bjórskammtur f lugliða um 4000 flöskur á ári — Kristján Pétursson tollvörður segir bjórinnf lutning f erðamanna ólögmætan „Samkvæmt 3. kafla 7. greinar á- fengislaga er óheimilt að selja áfengt öl yfir 2,25% vínanda hérlendis, nema til vamarliðsins, sendiráða og til út- flutnings. Sala á áfengum bjór yfir 2,25%, sem nú er seldur til komufar- þega og áhafna til Islands, er því ólög- mæt aðgerð þar sem reglugerð fjár- málaráöherra á ekki stoð í lögum,” sagði Kristján Pétursson deildarstjóri í Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli í viötali viö DV. „Þaö hefur ávallt verið skoðun okkar hér við tollgæsluna og ýmissa lögfróðra manna aö bjórinnflutningur áhafna og síöar farþega til landsins sé ólögmætur. Þaö er helvíti hart hlut- skipti að þurfa daglega í sínu starfi að horfa upp á svo almenn lagabrot að- gerðalaust vegna fljótfærnislegrar á- Trabantvinafólagið Skynsemin ræður gekkst fyrir heilmikilli sýningu á bifreiðum klúbbfélaga i gær. Hófst hún á akstri bifreiðanna um bæinn og endaði hún niðri á Lækjartorgi. Þar var Gunnari Bjarnasyni. stofn- anda og formanni klúbbsins, afhentur nýr Trabant station de lux auk þess sem hann fékk verðlaunagrip og skjal frá Trabant verksmiðjunum i viðurkenningarskyni fyrir ötult starfí þágu bifreiðarinnar hór á landi. SigA /DV-myndS. kvörðunar ráöherra. Á sama tíma veröum við að f ramfylgja mjög ströng- um og óvinsælum reglum viö banni á innflutningi á fjölmörgum tegundum landbúnaöarafurða. Það verður aö gera þá lágmarkskröfu til stjórnvalda að þau gefi út reglugerðir sem ekki stangast á við gildandi lög. ” Að lokum sagði Kristján: ,,Þá má geta þess að vegna þrengsla í komuverslun fríhafnarinnar og tollsal eykur þessi aögerð á þau vandræði sem fyrir voru. Það er athyglisvert aö samkvæmt nýju reglunum getur á- hafnarfólk nú flutt til landsins 24 flöskur í hverri ferð. Ætla má aö hverj um áhafnarmanni í áætlunarflugi sé úthlutað með reglugerðinni um 4000 flöskum af bjór á ári. ” -óbg. Porsche-bílar á lækkuðu verði — á bílasýningunni í Húsgagnahöllinni Það eru þrír glæsivagnar frá Porsche-verksmiðjunum til sýnis á bílasýningunni í Húsgagnahöllinni sem hófst á föstudagskvöldið. Og ef kemur í ljós að einhver áhugi er á kaupum á bílum þeirrar tegundar og fjármunir fyrir hendi verður komið upp söluum- boði. Það er Jón Sigurður Halldórsson, bílaáhugamaður og Porsche-eigandi, sem staðið hefur í ströngu við aö fá þessa bíla á sýninguna og hann sagði í viðtali viö DV að nú væri verið að kanna hvort hér væri grundvöllur fyrir umboði með þeirri þjónustu sem tilheyrir, varahlutalager og menntuð- um viðgerðarmönnum. Það eru til f jórir Porsche bílar hér á landinu og eru eigendur þeirra himin- lifandi yfir þeim. Þetta eru frábærir bílar, sagði Jón, en hann hefur staöið í bréfaskriftum við Porche- verksmiöjurnar í eitt ár vegna sýningarinnar. Hann sagði líka að þetta væri meira til gamans gert og vegna eigin áhuga á að fjölga þessum bílum hérlendis. Á sýningunni verður tekiö viö pöntunum og verða bílamir á lægra verði vegna sérstakra samninga viö Porsche-verksmiðjumar. Odýrasta týpan af Porsche, sem er 924 týpan, kostar 905 þúsund krónur, en veröið á dýmstu gerðinni fer allt upp í tæpar 2,8 milljónir. „Það kemur þá bara í ljós hvort menn hafa áhuga eða ekki,” sagði Jón Sigurður Halldórsson að lokum. óbg Slyddan um helgina: Hellisheiði lokaðist Slyddan og snjókoman hér sunn- anlands um helgina kom ansi flatt upp á þá sem hugðust keyra austur fyrir fjall um helgina. Um tima lokaðist Hellisheiðin algerlega og var þar aöallega um að kenna fljótræöi ökumanna sem þegar voru búnir að setja sumar- dekkin undir bifreiðarnar. Að sögn lögreglunnar á Selfossi gekk þó allt slysalaust og var búiö að ryöja heiðina á sunnudags- morguninn. Þetta ætti samt að kenna mönn- um að vera ekki of fljótir til því að vetur konungur er tregur aö kveðja. Sig.A Skagafjörður: Velheppnuð sæluvika — rólegthjá lögreglu Sæluviku Skagfirðinga lauk í gær og að sögn lögreglunnar á Sauðár- króki var hún með eindæmum róleg hvað hana varöar. Nokkuð bar á ölvun eins og gengur og gerist og voru fimm manns teknir, grunaðir um ölvun viðakstur. Sjö árekstrar urðu þessa viku en allir rninni háttar. Það má því segja að þetta hafi verið sæluvika í alla staði hjá Skagfirðingum því hátíðin sjálf heppnaðist mjög vel. -SigA. Ríkiðtekurenn meira af bensfnverði Fjármálaráöuneytið ákvað á föstudag að hækka vegagjald á bensini um tíu aura á hvem lítra. Hækkunin tók gildi á laugardag. Utsöluverð á bensini mun þó ekki hækka heldur mun innkaupajöfn- unarreikningur taka á sig hækk- unina. Þessi hækkun er talin gefa rikissjóði um tíu miUjónir króna miðaðviðheiltár. -kmii RAFMAGNS Hentuqt tæki sem kemur að qóóum notum ef laga 120 V " 7SO W létta máltíð í skyndi. Þu grillar, ristar, gratinerar á fljótan og þægilegan hátt. Frábært fyrir ostabrauö. Sfflbúðin Grensásveqi 5 Sími: 84016

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.