Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Side 12
F.t 12 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuði 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr. Helgarblaö 25 kr. Varnir eru ekki verslun Flestir íslendingar gera sér grein fyrir alvörunni og afleiðingunum af því, ef bandarísk skipafélög taka yfir alla flutninga fyrir varnarliðiö til og frá landinu. Inn- lendu skipafélögin missa svo stóran spón úr aski sínum, að fótunum er nánast kippt undan hagkvæmum fargjöld- um á fiskflutningi okkar vestur um haf. Annað tveggja mun gerast, að íslensku skipafélögin tapa stórfé á fiskútflutningum, ellegar hitf, að hækkanir á farmgjöldum munu hafa í för með sér hækkun á fiskverði á markaönum vestra, sem gerir afurðir okkar ósam- keppnisfærar. Hvort heldur sem veröur, er ljóst, að fyrirætlanir hins bandaríska skipafélags stefna íslenskum hagsmunum í voða, þar sem þeir eru mikilvægastir og tilfinnanlegastir. Þjóðarbúskapur íslendinga stendur og fellur með fiskút- flutningi á Bandaríkjamarkað. Því er hins vegar ekki að neita, að þessi hætta hefur lengi legið fyrir. Samkvæmt bandarískum lögum hafa skip, sem sigla undir bandarískum fána, allan forgang aö flutningum á vegum bandarísks herliðs. Hér er því ekki einu sinni um þaö að ræöa, að íslendingar geti undirboðið bandarísk skip í eðlilegri samkeppni. Bandarísku lögin hafa verið í gildi frá upphafi aldarinnar, en aldrei á þau reynt, eftir að íslensku skipafélögin tóku að sér áður- nefnda flutninga. Ef menn vilja horfast í augu við staðreyndir, verður að viðurkenna, að íslendingar hafa í skjóli þessara farm- flutninga haft gífurlegt hagræði af veru bandaríska varn- arliðsins. Þaö verður ekki flokkað undir hermang og heldur ekki undir neins konar aronsku í neikvæðum skiln- ingi þess orðs. En með þegjandi samkomulagi og gagn- kvæmum skilningi hafa stjórnvöld beggja landanna auö- vitaö gert sér grein fyrir efnahagslegu gildi þess, aö ís- lensk skipafélög önnuðust flutningana fyrir varnarliðið. Sú staðreynd býður þeim háska heim, að sterk þjóðfé- lagsöfl leggi áherslu á dvöl varnarliðsins út frá allt öðrum forsendum en þeim, hvort vama eða öryggis sé gætt. Þeg- ar íslenska þjóöin er orðin efnahagslega háð dvöl varnar- liðsins er hætta á ferðum. Ef við seljum öryggi okkar og sjálfstæði af viðskiptahagsmunum, erum við á rangri braut. Með sama hætti og það er fráleitt að bandarísk einok- unarlög setji eðlilegri samkeppni og þjónustu skorður á þessu sviði, er það einnig ótækt með öllu, að við beitum hótunum gagnvart Bandaríkjamönnum til að tryggja viðskiptahagsmuni okkar. Þess vegna er því vísað á bug, þegar upp koma raddir um pólitískan þrýsting af okkar hálfu á kostnað varnarsamstarfsins. í þessu sem öðru megum við íslendingar ekki brúka af- stöðu okkar til Atlantshafsbandalagsins og varna lands- ins sem skiptimynt í deilu um það, hverjir hafi vöruflutn- inga í sínum höndum. Bandaríkjamenn eiga sjálfir aö átta sig á, að alda- gömul einokunarlög hafa ekki staðist tímans tönn og eru úr öllu samhengi við það frelsi í miUilandaviðskiptum, sem Bandaríkjamenn predika. Vel má vera, að íslensku skipafélögin hafi um of makað krókinn á kostnað Banda- ríkjanna, en Bandaríkjamenn eru vitaskuld engu betur settir, ef flutningarnir eiga aö vera verndaðir af eigin ein- okun. Siglingar til og frá íslandi mega ekki standa og falla með peningum frá varnarliðinu. Innlendu skipafélögin verða að vinna sig út úr þeirri stöðu. Fáum íslenskum fyrirtækjum er betur treystandi til þess. Skipafélögin eiga ekki að kalla á pólitíska hjálp. Viðnámið verður aö koma frá þeim sjálfum. ebs. 68or.TtFr<TA p sriTriArnivTÁM vn DV. MÁNUDAGUR 9. APRlL 1984. en skilgreiningu á „notendabúnaði" er áfátt i frumvarpinu, þviekki er ótvirætt, hvort átt er einnig við radíótæki og þá sérstakiega taistöðvar i bifreiðum." Fjarskiptalaga frumvarpið Þaö vekur athygli hve frumvarp það um fjarskipti, sem nú Iiggur- fyrir Alþingi, tekur á fáum annmörk- um núgildandi laga frá 1941. Gerðar eru smávægiiegar orðalagsbreyting- ar á stangh, en efnisbreytingar ná skammt eðaorkatvímælis. Felldur er úr gildi einkaréttur ríkisins aö því er varðar „notenda- búnað”, en skilgreiningu á „noienda- búnaði” er áfátt í frumvarpinu, þvi ekki er ótvírætt, hvort átt er einnig við radíótæki og þá sérstaklega tal- stöðvar í bifreiðum. Það ræðst af því hvort bifreið telst vera „húsrými” eða „starfsstöð” skv. frumvarpinu og hvort talstöö telst „tengd” hinu opinbera fjarskiptakerfi eða ekki. I greinargerð meö frumvarpinu er „starfsstöð” talin ein eöa fleiri byggingar á sömu lóð, en ekki er minnst á bifreiðar. Skemmdarstarfsemi Einkaréttur ríkisins til annars en „notendabúnaðar” er óskertur skv. frumvarpinu. Nær hann til innflutn- ings, sölu, leigu, dreifingar, smiða, viðgerða og breytinga á hverskonar fjarskiptabúnaði. Á það hefur marg- oft verið bent á undanförnum árum að íslenzkur rafeindaiðnaöur getur átt framtíð fyrir sér, njóti hann eðli- legra rekstrarskilyrða. I því sam- bandi skiptir heimamarkaður veru- legu máli. Hið opinbera fjarskipta- kerfi er þar stærsti aðilinn á sviði fjarskiptanna. Hvaða álit, sem menn annars kunna aö hafa á mögu- leikum íslenzks rafeindaiönaöar á sviöi fjarskiptanna, þá er það hrein skemmdarstarfsemi að útiloka hann áfram með lagaboöi. Það er til al- mannaheilla horfir í fjarskiptum ætti að vera nægilega tryggt meö Póst- og Kjallarinn KRISTJÁN BENEDIKTSSON FJARSKIPTA- VERKFRÆÐIIMGUR símamálastofnun í hlutverki opin- bers eftirlits — og framkvæmdaaðila fyrst ogfremst. Ekki eru ýkja mörg ár síðan þeir einstaklingar utan Pósts og síma, sem vildu afla sér þekkingar, eða gera eitthvað sjálfstætt á f jarskipta- sviðinu, voru stimplaöir allt að því ótíndir glæpamenn. Flestir kannast við þær öfgar, sem einkennt hafa framkvæmd einkaréttar ríkisins oft á tíðum, og núverandi fjarskiptalög hafa beinlínis gefið tilefni til. Þótt hér hafi vissulega orðið hugarfars- breyting, þá vekur furðu að lagt er tU að lögin haldi áfram á sömu braut. Þeir sem vilja hanna, framleiöa, smiöa eða gera við eitthvað annað en „notendabúnað” skulu áfram settir undir náð og miskunn embættis- manna, eöa undanþáguheimildir jafnvel felldar niður. Engarundan- þáguheimildir I frumvarpinu er feUd niður heimild ráðherra til að veita vissar undanþágur frá einkarétti ríkisins (3. grein í núgUdandi lögum). Nefndin sem samdi frumvarpiö hefur ekki séð ástæðu tU að nefna þetta í greinargerö sinni. Áhrif þessarar niðurfellingar ráöast af því hvort einkarétturinn sem slíkur er talinn rúma undanþáguheimUdir. Væri áhugavert aö fá áUt lögfróöra manna á því. Skv. frumvarpinu er Póst- og símamálastofnuninni eins og nú falið að annast framkvæmd á einkarétti ríkisins tU f jarskipta. Hlutverk Póst- og símamálastofnunar er lítið skU- greint að öðru leyti. Stofnunin hefur engar skyldur að marki, aöeins heimildir. • „Hvaöa álit, sem menn annars kunna að hafa á möguleikum íslenzks rafeinda- iðnaðar á sviði fjarskiptanna, þá er hrein skemmdarstarfsemi að útiloka hann áfram meðlagaboði.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.