Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 43
43 DV. MANUDAGÚR 9. APR!lL1984, ' Sandkorn Sandkorn Sandkorn Elín varafor- maður Náttúruverndarráð heldur sitt árlega þing um næstu helgi. Þar verður að vanda f jailað um hvað megi og hvað megi ekki gera úti í guðs- grænni náttúrunni. Formaður ráðsins er nú Eyþór Einarsson grasa- fræðingur. Er gert ráð fyrir að hann gegni því embætti áfram. Hins vegar mun nýr maður setjast í varafor- mannsembættið. Segir sagan að Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra vilji koma þangað góðum og gegn- um sjálfstæðismanni og verði næsti varaformaður Elin Pálmadóttir, blaðamaður á Mogga. Það er Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri sem gegn- ir nú varaformennsku í Náttúruverndarráði. Ræðusnilld Húsvíkingar héldu um síð- ustu hclgi hörkufund með Valur Amþórsson stjórnarformanni og for- stjóra StS. Var meðal annars rætt um verðlag í Miklagarði, ísfilm, útflutning á kjöti og atvinnumál. Víkurblaöið segir frá fundinum á hressilegan hátt og fer í frásögninni lofsam- legum orðum um ræðusnUld Vals Arnþórssonar stjórnar- formanns. Segir blaðið: „Ekki er tími tU að rekja ræðu Vals hér frekar, og væri þó fuU ástæða tU, því að maður- inn er svo frábær ræðumaður aö hann gæti örugglega gert sam- vinnumenn úr Jaruzielski og Tatcher.” Mörgum er sjálfsagt i fersku minni er DV skýrði frá miklum bjórfiutningum, sem áttu sér stað frá sovéska sendíráðinu i hús eitt á Sel- tjarnarnesi. Voru fluttir í rykk 72 bjórkassar út í bæ sem þótti nokkrum tíðindum sæta. En liklega munu talsmenn sendiráðsins eiga í erfiðlelk- um með að skýra opinberiega frá ástæðu þessa. Hún mun nefnUega vera sú að birgða- vörður sendiráðsins treysti sér ekki til að geyma allt þetta bjórflóð innan veggja stofnunarinnar. Hann mun hafa óttast að starfsmenn yrðu svo drjúgir í drykknum að mjög kynni að ganga á birgðirnar. Því greip hann tU þess ráðs að biðja kunningja sína hjá Carlsbergumboðinu að geyma bjórinn sem þeir gcrðu. The Day After í undirheimum Borgarbió á Akureyri hefur verið nokkuö tU umræðu undanfarnar vikur og mán- uöi. Þar hefur mörgum norðanmönnum þótt talsvert skorta á að forráðamenn héldu vöku sinni og byðu gott sýningarefni. A þessu hefur þó víst orðið nokkur bót. Ein er sú mynd, sem beðið hefur verið eftir með nokk- urri óþreyju, The Day After heitir hún og f jaUar um hörm- ungar kjarnorkustríðs. Lík- lega þýðir þó iítið að taka hana til sýninga nú því að myndbandaleiga í bænum hefur haft hana á boðstólum lengi. Dæmi eru um að heiiu bekkjardeUdirnar í skólunum hafi fengið myndina og sest framan við skjáinn. Halldór Pálsson Skynsemin ræóur? Á fundi, sem íþróttadeUd Fáks héit á dögunum um út- flutningsmái hrossa, var að sjáifsögðu heitt i kolunum. Meðal frummælenda var Gunnar Bjarnason, einn frammámanna í Trabant- klúbbnum „Skynsemin ræður”. Þegar Gunnar og flciri höföu iokið máli sinu, kom í pontu HaUdór Pálsson, fyrr- Gunnar BJarnason verandi búnaðarmáiastjóri. Hann ræddi mcðal annars um verslunarfrclsið og minnti á að Gunnar hefði sótt um heimUd til að setja á lág- marksverð á hrossum og bætti svovið: „Þú heldur alltaf, Gunnar, að það sé hægt að stjórna þjóðfélaginu eins og frjáls fá- viti.” Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Stjömubíó — Ofviðrið BRÆLA Stjörnubió T empest/Of viflri Leikstjóri Paul Mazursky Aðalhlutverk John Cassavettes, Gena Row- lands, Susan Saradon, Vittorio Gassman og Molly Ringwald. Ofviðrið (Tempest) er bölvuð bræla ef svo má að orði komast, Mazursky tekst fremur Ula upp að flestu leyti, jafnvel hvaö hlutverka- skipun varðar, John Cassavettes, sem lífsleiður arkitekt, er langt frá þvi að vera sannfærandl Myndin er sögð vera gamanmynd sem kemur á óvart og vissulega kemur hún á óvart sem slík að einu leyti, það er að húmorinn vantar algjörlega fyrir utan Raul Julia í hlutverki ruglaðs einbúa á grískri eyju. Er hann sá eini sem gefur Ofviðrinu einhvern smáneista. Myndin fjaUar um PhiUip (Cassa- vettes), mikUsmetinn arkitekt í New York sem kvæntur er fyrrverandi leikkonu, Antoniu (Rowlands), og eiga þau eina 16 ára gamla dóttur (Ring- wald). PhUUp er orðinn þreyttur á stórborgarlífinu og vinnu sinni en hann vinnur að byggingu spUavítis fyrir mann að nafni Alonzo (Gass- man), vafasaman tappa með tengsl viömafíuna. PhUUp ákveður að flytja frá New York til Grikklands í leit að uppruna sínum, sem virðist vera vinsælt tómstundagaman hjá vel stæðum Könum, og fer dóttir hans með honum. 1 miUitiðinni taka Antonia og Alonzo upp sambúö og halda svo á eftir PhUUp þar sem Antonia vUl að dóttir sín sé hjá sér. PhiUip hittir unga stúlku (Sara- don) í Grikklandi og saman fara þau og dóttirin tU lítUlar eyju þar sem ruglaður einbúi ræður ríkjum. Þar búa þau saman i eitt ár eöa þar til dag einn er Antonia og Alonzo sigia framhjá eynni, lenda í ofviðri og er bjargað á land af eyja- skeggjunum. Til lokauppgjörs kemur á miUi allra persónanna. Mazursky vakti fyrst verulega athygli fyrir mynd sína An unmarri- ed woman með JiU Clayburgh í aðalhlutverki og er það tvímælalaust hans besta mynd en áður hafði hann gert myndir á borö við Greenwich ViUage og WUUe and PhU. Flestar myndir hans eru léttar þjóðféiags- kannanir og hefur honum iðulega tekist vel tU á þeim vettvangi, aUa- vega hefur hann löngum verið í hópi minna uppáhalds leikstjóra. Hér er það sama uppi á teningnum en vandamáUð er sem fyrr segir að Cassavettes fellur mjög iUa að þeirri skapgerð sem hann á aö túlka. Hann hefur löngum verið einn af harðsoðn- ustu persónuleikum í kvikmyndum, svona á við 15 mín. egg, og á því í mesta basU með hlutverkiö. Raunar hefur hann löngum verið lítt vand- látur á hlutverk enda leikur hann eingöngu í myndum til að fjármagna eigin myndir. Aðrir komast betur frá sínum, einkum Saradon og JuUa, en þar fyrir utan eru fáir góðir punktar í myndinni. Helst mætti nefna ágæta tónUst Stomu Yamashta. I einu atriði myndarinnar er PhUUp að ræða við ástkonu sína og segir að það að fara í rúmið með henni væri „algjör 17. júní”. Eg efast ekkert um það en myndinni i heUd má fremur líkja við föstudaginn langa. Friðrik Indriðason. John Cassavettes íhlutverki sínu sem hinn lífsþreytti arkitekt. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Tilkynmng til launaskattsgreiöenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina janúar, febrúar og mars er 15. apríl nk. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtu- manns ríkisjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ. ÚTIBÚSSTJÓRI AKRANESI Oskum eftir að ráða sem fyrst útibússtjóra til að stjórna rekstri verslana okkar á Akranesi. Við leitum að áhugasömum og röggsömum stjórnanda með góða þekkingu og reynslu á þessu sviði. Við bjóðum áhugavert starf. Húsnæöi fylgir. Upplýsingar gefa Olafur Sverrisson kaupfélagsstjóri og Georg Hermannsson, fulltrúi kaupfélagsstjóra. KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA, BORGARNESI, SÍMI93-7200. Pjannprbabetölutitn Crla Snorrabraut 44. Simi 14290. PRJÓNAGARN, PRJÓNAMUNSTUR 0G PRJÓNAR I FJÖLBREYTTU ÚRVALI. Póstsendum._______________ Pósthólf 5249.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.