Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 10
10 DV. MÁNUDAGUR 9. APRIL1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson Sovétríkm eru aö auka sprengju- árásir sínar á þorp og birgöa- flutningaleiöir skæruliöa í Afganist- an í vorsókn gegn andstæðingum hinnar Sovétstuddu stjómar landsins, að því er leiðtogar upp- reisnarmanna halda fram. Blóðugri bardagar og aukinn flótta- mannastraumur Uppreisnarmenn, staösettir í Peshawar viö norövesturlandamæri Pakistan, sögðu í viötali viö Reuters- fréttastofuna aö Sovétríkin beittu nú í auknum mæli hersveitum á jöröu niöri og ykju þar með líkumar á blóðugri bardögum og auknum flóttamannastraumi frá Afganistan. „Þeir beita sókndjarfari aöferöum en áöur,” sagöi prófessor Barhan- uddin Rabbani, leiötogi Jamiati- islami, aöalbaráttuhreyfingarinnar í norðurhluta Afganistan. Baráttuaöferöir Sovétmanna höföu áöur einkennst af því aö koma upp herstöðvum fyrir afganska stjórnarherinn víös vegar um landið og láta hann um aö berjast viö skæruliðana aö langmestu leyti í stað þess að senda sovéskar hersveitir á bardagasvæðin. Arásir Sovétmanna upp á síökastið hafa einkum beinst aö birgða- flutningaleiöum noröur og austur af Kabúl, höfuöborg landsins, í kringum borgina Kandahar í suöurhluta lands- ins, aö þvi er leiötogar uppreisnar- manna segja. Ráðast beint á þorp og flutningaleiðir „I þetta sinn hafa þeir ekki fyrir því að setja upp herstöðvar heldur ráðast þeir beint á þorp og birgöa- flutningaleiðir okkar,” sagöi Rabbani. Hann sagði aö sovéski herinn, sem hefði verið vanur að halda sig innan víggirtra herstöðva sinna eöa aðeins sótt fram í stómm skriödreka- sveitum, væri nú tekinn aö senda hermenn sína út í bein átök viö skæruliðahópa. „Nú koma þeir út úr skriðdrekun- um,” sagöi hann, „og þar meö veröur líka meira mannfall í þeirra rööum.” Sovésku hersveitirnar sem komu til Afganistan í árslok 1979 til aö styöja viö bakiö á hætt kominni stjórn kommúnista i landinu eru nú taldar hafa á aö skipa 105 þúsund manna liði sem er 2,5 sinnum meira en áætluð stærð afganska hersins. Gulbuddin Hekmatyar, leiötogi Hezb-I-íslami, islamsks bók- stafstrúarhóps, segir að fyrri stefna Sovétríkjanna, að koma upp varö- stöövum víös vegar yfir vetrartím- ann, heföi komið þeim sjálfum illa. Ráðamenn í Moskvu þoldu ekki sóunina „Mujahideen-skæruliöarnir náöu stöövunum oft á sitt vald og komust þannig yfír mikiö magn sovéskra vopna,” sagði hann til skýringar. „Ráðamenn í Moskvu hafa væntan- lega ekki getað þolaö slíka sóun. ” Hin nýja aðferð Sovétmanna Afganskir skæruliðar með sovésk vopn sem þeir hafa komist yfir. Ráðamönnum i Moskvu var tekið að ieiðast þófið, þótti sem baráttuað- ferðir sovéska hersins skiluðu of litlum árangri og hefðu það i för með sér að sovésk vopn höfnuðu alltofoft ihöndum afganskra skæruliða. og Pakistan. Sú er a.m.k. skoöun prófessors Sibghatullah Mojaddedi, leiötoga afgönsku þjóöfrelsis- hreyfingarinnar og foringja þriggja flokka bandalags. Vestrænir stjórnarerindrekar í Islamabad sem fylgjast með gangi styrjaldarinnar í gegnum skýrslur frá sendiráöum þjóða þeirra í Kabúl segja aö liðhlaup úr afganska stjórnarhernum séu m jög mikil. Kornungir menn þvingaðir í stjórnarherinn Herinn hefur fyllt í sköröin meö því aö taka kornunga menn upp af göt- um borganna og þvinga þá til aö ganga í herinn. Þá hefur stjómin hert herskyldulögin til þess aö ná til eins margra manna og frekast er mögulegt. Þá hefur ríkisstjóm landsins grip- iö til þeirra ráöa að skrá félaga úr Kommúnistaflokknum í herinn þar sem þar væri hópur manna sem treysta mætti aö myndu berjast af heilum hug fyrir málstaðinn í stað þess að flýja úr hernum viö fyrsta tækifæri og gerast liðhlaupar. Rabbani og Hekmatyar hafa báöir skýrt frá því að bardagar hafi mjög aukist í kringum borgina Jalalabad í austurhluta Afganistan og þá eink- um við brú þá sem skæruliðar hafa notað fyrir birgöaflutninga yfir Kabúlána viö Kama. Þá hefur sovéski herinn og afg- anski stjórnarherinn aukiö mjög viö- búnaö viö Tezin og Koh-I-Safi, tvo bæi viö þýöingarmikinn þjóöveg austur af Kabúl sem Jamiat-I-Islami notaði undir birgöaflutninga til sveita sinna í Panjsher-dalnum, aö því er Rabbani sagöi. Búist við nýrri sókn Sovétmanna Skæruliöar hafa átt von á nýrri og öflugri sókn sovéska herliðsins niöur í dalinn en til þess hefur enn ekki komiö. Hins vegar hafa sovéskar sprengjuflugvélar haldið uppi öflug- um árásum á aöflutningsleiðir niöur í daiinn eftir að sovéskar sveitir, sem nálguöust þetta svæði, voru hraktar til baka í byr jun marsmánaðar sl. Alis hafa sovéskar hersveitir áöur gert sex atlögur aö dal þessum en engin þeirra hefur borið tilætlaöan árangur. Sá hluti Panjsherdalsins sem næstur er Kahúl er aöeins í um niutíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborg- innL Búist við enn blóðugri styrjöld í Afganistan: Nýjar baráttuaðferðir Sovétmanna f Afganistan — berjast nú í auknum mæli sjálf ir við afgönsku skæruliðana viröist beinast aö því aö skera á aðflutningsleiðir skæruliöa svo og draga úr þeim styrk sem þeir sækja til íbúa landsins meö því aö ýta enn undir flóttamannastrauminn til Iran <---------------m. . Afganskir flóttamenn á leið um Kama-dalinn sem er nærri landa- mærum Pakistan. Margir flótta- menn fara um þennan dal á flótta undan styrjöldinni i landinu og talið er liklegt að hinar nýju bar- áttuaðferðir sovéska hersins muni enn á ný auka flóttamanna- strauminn frá Afganistan. Hin nýja baráttuaðferð Sovétmanna iA fganistan einkennist meðal annars afþviað sovésku hermennirnir eru nú teknir „að koma út úr skriðdrekunum " og berjast iauknum mæli sjálfir við afganska skæruliða. NHMNíiASKÍAmtt E verðlækkuná öli og gosdrykkjum HF.ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.