Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Page 4
Menning Menning Menning Menning \oc r utra a. p uwriKCV’rs t ir, DV. MÁNUDAGUR 9. APRlL 1984. 49da stræti/ Broadway Þjóðleikhúsifl: Gœjar og píur, söngleikur - „a musical fable of Broadway" — saminn eftir sögum Damon Runyon af Frank Loesser, lög og Ijóö; Jo Swerling og Abe Burrows, saga og samtöl. Þýðingu gerði Flosi Gunnlaugur Ólafsson. Leikstjórar: Benedikt Árnason og Kenn Old field. Dansar: Kenn Oldfield. Búningar: Una Collins. Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson. Lýsing: Kristinn Daníelsson. Hljómsveitarstjóri: Terry Davies. Þrjár, nei! — fjórar ástæöur veröa til þess að Gæjar og píur heppnast ágætlega í Þjóðleikhúsinu. Sú fyrsta er aö leikurinn er byggöur á frábæru söguefni Damon Ruyon, persónusköpun hans og sam- talsstíl, heiminum sem hann skóp í skrifum sínum. Hér á landi eiga lesendur aö þekkja til þýöinga Páls Skúlasonar á sögum hans. Og ekki er loku fyrir það skotið aö hinn dular- fulli sögumaöur, sem alltaf talar í nútíö í sögum Runyon, hafi haft þó nokkur áhrif á suma sem eru enn skrifandi á íslensku, ég nefni engin nöfn. Hvergi er götumáliö jafnyndis- lega ekta og hjá fólkinu hans Damon, þó þaö sé óttalegt skítapakk, margt af því. En alltaf viröir þaö leikregl- urnar — enda fjaUa sögurnar hans gjaman um siöræn vandamál — eins og Gæjar og píur. Onnur er sú aö til kom Frank Loesser með munnstykkiö sitt, keðjureykingar og talent og kom smíöi söngleiksins í gang. Ljóöin hans eru dýrðleg, lögin svo sem ágæt líka og í sama anda unnu piltamir sem hann fékk meö sér. Þeir em til, ég þekki þá suma, sem fitja uppá nefið og segja söng- leiki ómerkUegt drasl og Þjóöleik- húsinu tU vansæmdar aö setja þá á sviö. Þar skorti lágmarkshæfUeika í dansi og söng í ofanálag. Eg segi alltaf aö þaö sé iUa vaninn maður í menningarlífinu ef hann nýtur ekki tilfinningavellunnar, tára og tón- listar, tjalda, búninga og dansa, en umfram allt þess einfaldleika sem söngleikurinn nærist á. Þetta vissu þeir Loesser, Jo og Abelíka. Nýjungar og hefð Þriðja ástæöan fyrir skemmtun kvöldsins er hefðin sem býr aö baki þessari sviösetningu, þannig er Kenn Oldfield höfundur dansa í sýning- unni, en margt fær hann frá Michael Kidd sem samdi dansana fyrir kvik- mynd Mankiewitz 1955, hann sótti þá í Broadway-frumsýninguna 1950. Þá minnumst viö ekkert á áfangastaö- inn London á þessari leiö en hafi maöur séð sviðsetningu Eyre á Guys and Dolls fyrir National í London, auk filmunnar meö Brando og Sinatra þá kemur manni margt kunnuglega fyrir sjónir. Söngvaút- setningar t.d., hljómsveitin meö sínum frábæra brasshljóm. Eg er ekki aö segja að þetta sé slæmt, þaö ætti aö tryggja topp-árangur, þó vissulega takmarki ríkjandi hefö frumleg vinnubrögö. Stjarna kvöldsins Fjóröa ástæöan? Góðir spilamenn eiga alltaf ,,ás í holunni” eins og Upphæöa-Skæ segir í leiknum. Ásinn í sýningu Þjóðleikhússins er hávaxin pia, falslaus, hjartahrein og blátt áfram. „Gasalega lekker” eins og þeir segja og þegar hún gengur á sviöiö, svo leikandi létt í f asi, örugg á öllum brögöum, sem hún beitir, syngur og talar af fimi og skýrleika, þegir meö áherslum, hóstar, hnerrar og snýtir sér — alltaf á réttum stööum — þá hugsar maður bara meö sjálfum sér: mikið voru þeir heppnir aö hafa Sigríði Þorvalds- dóttur. Hún er einfaldlega „tops” — stjarna kvöldsins og ber af öörum í þessari sýningu. Nú er þaö víst sannað, svona sagn- fræðilega, aö Adelaide, dansmærin í Heita pottinum, hefur löngum stoliö senunni frá öörum stórstjömum sýn- ingarinnar: Skæ Masterson, Nathan Benedikt og Kenn stýra fleyinu farsællega í höfn. Eg minntist áöan á ríkjandi hefðir, engu aö síöur þarf vel aö gæta þess aö enginn liggi á liöi sínu, ekki aðeins æfingartíma og fyrstu helgi, heldur næstu vikur og mánuöL Leikurinn á eftir aö laga sig aö viötökum áhorfenda. Leikendur aö átta sig á stökum hlátrum sem spretta fram því þýöing Flosa er meinfyndin og leynir víöa á sér. Ljóöaþýðingar hans takast misvel, sumar ágætlega, aðrar miöur, þynn- ast út i ekkert þar sem fyrir var margræöur, fyndinn texti. Enda sumir óþýöanlegir, svo ekki er von aö Flosi geti þýtt þá. Verra þótti mér hvað þeir heyrðust illa, söngvamir í samsöng, t.d. í tríóinu í upphafi, í Tindahornafúgunni. Glás af skeini Margir fara illa á veömálum og spilum. Halda illa á þeim eöa veöja of hátt, stundum á rangan hest. Dirfska er nauösyn í leikhúsi, bein- línis skylda. Þar er ekki hægt aö spila lengi með fölsuðum teningum. Meö þessari sýningu hefur Þjóöleik- húsið sett eftirminnilegan endapunkt á daufan vetur. Oska ég stjórn húss- ins til hamingju meö þennan áfanga, sem og öllu starfsfólki, áhorfendur koma brátt í löngum rööum. Enda er mikið lagt undir. Þykir mér rétt, fyrst þessi söng- leikur tókst svo vel, aö vandlega veröi hugaö að áframhaldi álíka starfs, í þeirri vissu aö það skili sjóöum hússins fé, áhorfendum y ómældri skemmtan og listamönnum ' Þjóðleikhússins nokkrum þroska. „Gasalega lekker" pia — Sigriður Þorvaldsdóttir. Detroit og Söru Brown. Aö ekki sé minnst á stirnin: Benna, Rusty, Næslí, Harry Hross, Stóra Júlíus „from the Rockies” aö ógleymdum glennunum sem vinna á Heita pottin- um. Þetta kann aö valda andköfum hjá hinum og þessum persónum sem málið er skylt, en þeir eru nú svo vanir andköfum á Hverfisgötunni. Hinir og þessir guðjónar Nú er ekki svo aö skilja aö aörir standi sig ekki líka vel. Bessi Bjama- son er sækinn í hlátra alla sýninguna og vinnur Nathan skemmtilega, Egill Olafsson er afbragösgóöur í söngnúmerum og mætur sem Skæ á köflum, en því er ekki aö leyna aö í millispili þeirra Ragnheiöar Stein- dórsdóttur þótti mér skorta nokkuð á „kemíuna” sem er margnefnd í enska textanum, en breytist í „líf- fræöi” hjá Flosa, en í mínum gaggó en víða í sýningunni eru flottar smá- myndir, augnablik, andartök, persónusköpun á heimsmælikvaröa: Randver Þorláksson, ErlingurGísla- son, sem segir ekki eina dauöa setn- ingu allt kvöldið, Andri Clausen og Guöjón Petersen, Siguröur Sigurjóns og Hákon Waage, Flosi og Guömundur Olafssynir. Og ein- stakur vitnisburöur er t.d. senan í ræsunum um fágaöa og kröfuharða atvinnumennsku. Enda leynir sér hvergi aö karlaflokkurinn er góöur vinnuhópur. Stelpumar eiga líka marga ágæta leiki, t.d. í upphafi og endi. Dauöir blettir era samt sýnilegir hér og þar, stundum áberandi. Og mikill munur er á líkamsburði stúlknanna úr Dansflokknum og hinna: Ásdís Magnúsdóttir, Guömunda Olafs og Helga Bernhard skara fram úr, þar er „sjónarmunur” eins og Rusty segir. Páll Baldvin Baldvinsson var umtalsveröur munur í þessum fögum. Skæ og Sara era vandasöm hlutverk, þeim hættir svo til aö síga í gryfju til annarra sviplausra elskenda, sem er synd því bæði búa yfir þokka — þrautin er aö galdra hann fram. Svo eru öll stirnin, nafnaþula segir enga sögu, sjón er sögu ríkari, Bossarnir Gatnamót á 49 og Broadway, götur og torg í Havana, Heiti potturinn, trúboösstööin og ræsin, þetta er stór og mikil leikmynd sem Sigurjón Jóhannsson ber ábyrgö á sem oft áöur á þessum vetri. Henni er haganlega fyrir komiö, hún er glæsileg og átti skilið klapp frá áhorfendum oftar en í tvígang á framsýningunni. Búningar Unu íburöarmiklir og smart: hún tekur þann kostinn að halda períódunni skömmu fyrir seinna stríð sem mér sýnist líka gert í leikmynd og hljóm- sveitarstílnum, en ekki í texta og betur heföi þýöandi samræmt það misræmi. I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Framsóknarmenn styðja jóga og mangósopa Mikiö verölagsstríð er hafið vegna söluskatts- og vörugjaldsálagningar á aöskiljanlcgar drykkjarvörur. Er nú allt í einu fariö að tala um ýmsa góðdrykki, sem maður hefur aldrei áður heyrt minnst á, svo sem jóga og mangósopa, og allt ætiar um koll að keyra þegar fjármálaráöuneytið leggur til að þessir drykkir ásamt meö kókómjólk veröi verðlagðir eins og aðrar sambærilegar vörur. Kókómjólk hefur maöur sosum drukkiö þegar ekkert annaö hefur verið til í ísskápnum á morgnana og fengiö ákúrur fyrir þaö seinna um daginn aö hafa drukkið skólanestið frá blessuðum börnunum að þeim forspurðum. Skilst manni aö skóla- börn á íslandi nærist á þessari kókó- mjólk og var sú drykkjarvenja tekin upp þegar lýsistökur voru aflagðar sem skyldufag í barnaskólum. Nú græöir enginn á því aö framleiða lýsi og þess vegna óþarfi að mati skóla- yfirvalda aö pina lýsiö ofan í skóla- æskuna. Það þótti líka betri kostur fyrir þjóðarbúið að losa sig viö um- frambirgðir af mjólkurfram- leiöslunni meö því að blanda þær meö kakói og telja barnaheimilunum í landinu trú um aö sú blanda væri hollustufæða. Síöan er drukkin kókó- mjólk í öUum friminútum i samræmi við þá landbúnaðarpólitík aö offram- leiðslan skuli oní þjóðina, hvaö sem kostar. En meðan kókómjólkin er þannig orðin að þjóöardrykk hjá skólaæsk- unni veröur aö viöurkenna að jógi og mangósopi eru minna þekktir svala- drykkir, jafnvel þótt þeir séu fram- leiddir af sjálfri Mjólkursamsölunni og þjóni göfugri landbúnaðarstefnu. Yfirleitt hefur maður haldið aö jógar ættu uppruna sinn í Indlandi og stunduöu einbeitingu hugans en væru ekki drukknir við þorsta uppi á íslandi. Svona er maður ófróður um neysluvenjur nútimafólks. Mangósopinn gæti hins vegar átt ættir sínar að rekja til Afríku þar sem menn dansa mangó og tangó eftir villtum takti. Kemur það satt að segja á óvart að Mjólkur- samsalan, sem lifir á hráefni úr Flóanum, skuli láta sér til hugar koma svo frumlegt heiti á ekki merkilegri drykk. En sennilega er það rétt hjá Tómasi aö það er fleira en hjörtum mannanna sem svipar saman í Súdan og Grímsnesinu. Það verður aö minnsta kosti ekki sagt um þá, landbúnaöarforkólfana, að þá skorti hugmyndaflug þegar MANGÓ MYSUDRYKKUR k lltrf nmrni Svall APPaST^ÆJRYKKUR AMi5M.£AfA mmm m m þeir þurfa að pranga óseijanlegri of- landslýðinn. framleiðslu inn á þorstafenginn Nú ætlar sem sagt allt vitlaust að verða þegar þessir öndvegisdrykkir eru verðlagðir til samræmis við svala, sem einnig er nýtilkominn tískudrykkur, og mun eiga það sam- eiginlcgt með þeim fyrrnefndu aö vera soginn með röri úr pakkningunni. Eru menn hættir að súpa af stút, hvað þá að drekka úr glasi, og er þessi drykkjumenning liður í uppeldi vegna þess að enginn má lengur vera að því að þvo upp. En það er nú önnur saga. Þetta verðlagsstríð er komið á svo alvarlegt stig að landbúnaðar- ráðherra, sem er óþekktur fyrir annað en að vera framsóknarmaður og hefur vit á því að hafa sig ekki í frammi, hefur vaknað til lífsins og látiö þess getið opinberlega að hann standi með kókómjólkinni. Það þýðir einnig að ráðherrann hefur þá skoðun að jógi og mangósopi eigi einnig að njóta verndar fyrir söluskatti og vörugjaldi. Hlýtur þaö að vera fagnaðarefni fyrir bændastéttina þegar sjálfur landbúnaöarráðherr- ann telur það tilheyra landbúnaði að sjúga svaladrykki með röri en án söluskatts. Kannski framsóknar- menn geri mangósopann að næsta kosningamáli sínu? Það yrði harður kosningaslagur. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.