Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Qupperneq 5
DV. MÁNUDAGUR 9. APRIL1984. 5 „Deilan snýst um samningsbrot skipafélaganna” — segir f ormaöur Skipst jóraf élagsins „Deilan snýst fyrst og fremst um samningsbrot skipafélaganna,” sagöi Höskuldur Skarphéöinsson, formaöur Skipstjórafélags Islands, en félagiö hefur boöaö verkfallsaögeröir síðar í þessummánuði. „I samningum okkar hefur veriö í áratugi ákvæði um fæöispeninga til skipstjóra, geti þeir ekki matast um borö. Kjaradómur fjallaöi um þetta ákvæöi áriö 1979. Urskurður dómsins varð okkur í hag. Þrátt fyrir þetta hafa útgerðir aldrei virt þetta ákvæöi. Nú ætlum viö aö láta reyna á það,” sagöi Höskuldur. Hann mótmælti þeim staöhæfingum Vinnuveitendasambandsins aö hann sem skipherra hjá Landhelgisgæslunni mætti ekki hafa afskipti af kjaradeil- unni. „Eg tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu um verkfallsheimild frekar en aörir skipherrar Landhelgisgæslunnar. Eg er aöeins aö framfylgja skyldum mínum sem formaöur félagsins og framkvæma ákvarðanir sem aörir hafa tekið,” sagöi Höskuldur. Aratugir eru liðnir frá því Skipstjórafélagiö boöaöi síöast til verkfalls. Skýringin er meðal annars sú aö í lögum félagsins eru mjög þröng ákvæði um verkfallsheimild. Tveir af hverjum þremur í félaginu þurfa aö greiða atkvæði. Af þeim þurfa þrír af hver jum f jórum aö samþykkja. -KMU. HÖRD ÁKEYRSLA Á EGILSSTÖÐUM Hörö ákeyrsla varö á Egilsstööum sl. föstudag er bifreiö af gerðinni Toyota lenti á ljósastaur. Engin slys uröu á mönnum en bifreiöin er illa farin, þó hún geti varla talist ónýt. Aö sögn lögreglunnar á Egilsstöðum voru tildrög slyssins þau aö ökumaöur bifreiöarinnar sneri sér aftur til aö tala viö farþega í aftursæti. Afleiöingam- ar uröu þær aö hann missti stjórn á bif- reiöinni og hún skall á næsta ljósastaur ó mikilli ferö. Ekki var um ölvun viö akstur aö ræöa en hins vegar mun ökumaöur hafa verið aö blússa um þorpiö á tals- veröri ferö um hríö áður en leikurinn varöaöalvöru. SigA MALLORCA AMSTERDAM serra en GRIKKLAND - AMSTERDAM Glæsilegar íbúðir og hótel í SAIMTA PONZA, MAGALUF og ARENAL. Brottför alla þriðjudaga Feröaskrifstofan Við bjóðum hinar vin- sælu OASIS-íbúðir og HOTEL REGINA MARIS við GLYFADA- ströndina, skammt fyrir utan AÞENU. Fáið nanari upplýsingar á skrifstofu okkar Laugavegi 66 Simi: 28633 „771...772...773... hve mörg forrit eru eiginlega til fyrir IBM PC einkatölvuna?”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.