Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Page 8
8 DV. MÁNUDAGUR 9. APRIL1984. TRÚLOFUNARHRINGAR FRÁ JÓNI OG ÓSKARI ÞAÐ ER RETTA LEIÐIN FRÁBÆRT ÚRVAL GÓD adstaoa JÖN og ÖSKAR, Laugavegi 70, 101 fíeykjavik, simi24910. GRJOTGRINDUR Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA KVORT KÝST ÞÚ GATEÐA GRIND? BIFREIÐA SKEMMUVEGI 4 KOPAVOGI SIMI 77840 Kverkstæðið nastós Eigum á lager sérhannaðar grjót- grindur á yfir 50 tegundir bifreiða! Ásetning á staðnum SÉRHÆFÐIR f FIAT 06 Þjónusta byggó áþekkingu SklpacLeild Sambandsins Jlutti í Jyrra um 450 þúsund lestirajalls kyns vörum milli 106 hajna innan lands og utan — allt Jrá Grænlandi til Nígeríu. Sambandsskipin sigla reglulega tilJjölda hajna í Evrópu og Ameríku — en þjónusta okkar nær um helm allan með samvinnu við sérhæjða Jlutningsaðila á sjó og landi. Þaijtu að koma vörumJráAkureyri tilAbuDhabi eða Jrá Barbados til Borgarness? Við sjáum um það. Þjónusta okkar er byggð á þekkingu. SKIPADEILD SAMBANDSINS SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SlMI 2B200 Útlönd Útlönd Útlönd Tjemenko heimtar nýju eldflaugam- ar burt úr Evrópu Konstantin Tjemenko, leiðtogi Sovétríkjanna, segir að vangaveltur á Vesturlöndum um breytta stefnu Sovétmanna í vígbúnaðarmálum eigi sér enga stoð og aö þaö standi upp á Bandaríkin að skapa skilyröi til þess að vopnatakmörkunarviöræður geti hafistaðnýju. I fyrsta viötalinu, sem Tjemenko veitir, síðan hann tók við af Andropov — og birtist dagblaðinu Pravda — segir aö Moskvustjórnin láti ekki af þeirri kröfu sinni að nýju bandarísku eldflaugarnar verði fjarlægðar úr Evrópu, áður en til viðræðna verði gengið um kjarnorkuvopn. ■ I Washington sagöi talsmaður Reaganstjórnarinnar að ekki kæmu til greina neinar eftirgjafir til þess aö lokka Sovétmenn aö saraningaborðinu. — Vitnaði hann í ummæli Reagans for- seta á föstudaginn þar sem hann ræddi utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar og sagði að það jafngilti því að verölauna Sovétmenn fyrir aö slita samningavið- ræðunum í vetrarbyrjun ef þeim yröu boðnar eftirgjafir fyrir það eitt aö mæta til viöræðna. Tjernenko áréttaði þá afstöðu Krelmstjórnarinnar aö fjarlægja þyrfti Pershing—2 og stýriflaugarnar, sem fluttar vom til Evrópu fyrir áramót, því að ella stæðu Sovétmenn ekki jöfnum fæti að samningum. Hann hafnaöi ágiskunum um að Moskvustjórnin væri að tefja tímann þar til eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Áskorendaeinvígið í Vilnius: Attundi vinning- urinn í höfn — Kasparov vann 12. skákina og þarf nú aðeins eitt jafntefli í viðbót til þess að tryggja sér sigur Möguleikar Smyslovs á því aö verða heimsmeistari á nýjan leik eru nú því sem næst úr sögunni, því að Kasparov jók enn við forskot sitt um helgina meö því að vinna 12. skákina. Nú hefur hann átta vinninga gegn fjórum vinningum Smyslovs og þarf aðeins hálfan vinning til viöbótar til þess aö tryggja sér sigur í einvíginu. Fram að þessu hefur Kasparov ekki tapað skák og má því fastlega búast við aö 13. skákin, sem tefld verður í dag, verði jafnframt sú síðasta. Skákin á laugardag var spennandi og skemmtileg og var haft á orði í Vilnius að Smyslov hefði ekki fyrr í einvíginu komist svo nálægt því að vinna. Hann endurbætti taflmennsku sína gegn Tarrasch-vörn Kasparovs og tókst að sprengja upp stöðuna á miðborðinu. Flestir töldu stöðu Kasparovs lakari en honum tókst með öflugum biskupsleik að tryggja sér nægileg mótfæri. Smyslov fórnaði skiptamun og fékk tvö peð en með slyngri vörn náði Kasparov að bægja hættu frá. Að sögn „sérfræð- inga” í Vilnius lenti Smyslov í tíma- hraki undir lok setunnar og lék niður jafnteflisvoninni. Gafst upp eftir 40 leiki. Hvítt: Vassily Smyslov Svart: Garrí Kasparov Tarrasch-vörn. 1. d4 d5 2. Rf3 c5 3. c4 e6 4. cxd5 exd5 5. g3 Rf6 6. Bg2 Be7 7. 0—0 0—0 8. Rc3 Rc6 9. Bg5 cxd410. Rxd4 h6 11. Be3 He812. a3 Be613. Rxe6! ? Að því hlaut að koma, því að eftir 13. Khl, eins og Smyslov hefur leikið í síðustu skákum í þessu afbrigði, hefur biskupinn vikið sér undan til g4. Þetta er svipaö og Kortsnoj gerði í 2. skákinni við Kasparov í London. Hann lék 13. Db3 Dd7 og þá fyrst 14. Rxe6. En drottningin var ekki sér- lega sterk á b3-reitnum og fór síðar tii a4. 13. —fxe6 14. Da4 Kh8 15. Hadl Hc8 16. Khl Ekki gengur strax 16. f4, vegna 16. —Rg4. Smyslov ætlar bersýnilega aö ráðast aö miöboröinu með f-peði sínu en Kasparov freistar þess að ná gagnfærum á drottningarvæng. 16. -a617. f4 Ra518. f5 b5! 19. Dh4 Eini leikurinn. Eftir 19. Dc2 e5 er riddarinn á c3 leppur og 19. Df4 er einnig svarað með 19. —e5! því ef 20. Dxe5, þá 20. — Bc5 og vinnur liö. 19. —Rg8 Leiki svartur nú 19. —e5? þarf hann ekki að óttast biskupsfórn á h6, vegna 20. —Rh7! en hins vegar hrynur miðborðið eftir 20. Rxd5! Rxd5 21. De4! og peð fellur í leiðinni. 20. Dh3 Rc4 21. Bcl 21. —Bg5! Biskupinn á cl er mikilvægur hlekkur í hvítu stöðunni því hann valdar viökvæma bletti — peðiö á b2 og e3-reitinn. Uppskiptin stórbæta stöðu svarts. 22. fxe6 Bxcl 23. Hxcl Eftir 23. Hxd5 De7 24. Hxcl Rxb2 á svarturgotttafl. 23. —Re3! Skák Jón L. Ámason Annar erfiður leikur. Nú er 24. Hf7 d4! óþægilegt fyrir hvítan. Smyslov afræður að fóma skiptamun. 24. Rxd5!? Rxfl 25. Hxfl Hf8 26. Rf4 Re7 Hér stendur riddarinn afar vel — valdar mikilvæga reiti og heftir för frelsingjans. Kasparov nær smám saman yfirhöndinni. Og Smyslov á aðeinsl5mín. eftir 27. Dg4 (?) g5! 28. Dh3 Hf6 29. Rd3 Hxfl+ 30. Bxfl Kg7 31. Dg4 Dd5+ 32. e4 Ovænt endalok hefðu verið 32. Bg2?? Hcl+! 33. Rxcl Ddl+ 34. Bfl Dxfl mát. En kannski var 32. Kgl betra, því peðið á e2 styrkir riddar- ann í sessi. J 32. — Dd4 33. h4 Hf8 34. Be2 De3 35. Kg2 Rg6 36. h5?? Mun betra er 36. hxg5, því 36. — Dxg5 37. Dxg5 hxg5 38. Rc5 þarf hvítur ekki að óttast og 36. —hxg5 getur hann svarað með 37. Dh5 og ef hrókurinn víkur sér af f-línunni kæmi 38. Df3. Hvítur hefur þá allgóða jafnteflismöguleika. 36.—Re7 37.b4 37. —Kh7! Leikþröng! Hann getur aðeins leikið kóngnum. Eftir 38. e5 Kh8! blasa sömu vandamálin við. 38. Kh2? Tapar strax. Betra er 38. Khl, því 38. — Hd8 39. Rc5 Hd2 strandar á 40. Df3! og hótar þráskák. Svartur ætti þóaðvinna eftir39. —Dxa3. 38. —Hd8 39. e5 Hxd3 40. Bxd3 Dxd3 — Og Smyslov gafst upp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.