Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 9
DV. MÁNÚDaG'ÚR 9. APRÍL1984:'
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
MERKI URSMIÐAFÉLAGS iSLANDS
TRYGGIR GÆÐI OG PJÓNUSTU
MERKI ÚRSMIÐAFÉLAGS ÍSLANDS
TRYGGIR GÆÐI OG ÞJÓNUSTU
Shirley MacLaine þykir eiga mikinn möguleika til þess aö veröa loks valin besta
leikkonan viðóskarsverölaunaafhendinguna íkvöld.
Óskarsverö-
launin af-
hent i kvöld
Shirley MacLaine, ein af endingar-
meiri leikstjörnum HoUywood, er talin
líkleg til þess aö hreppa loks óskars-
verölaunin, þessa eftirsóttustu viöur-
kenningu kvikmyndaiönaðarins. Hin
árlega verðlaunaafhending fer fram í
kvöld.
MacLaine hefur fimm sinnum áöur
verið tilnefnd til verðlauna en aldrei
hlotið þau. Að þessu sinni er upp á
henni stungið sem bestu leikkonunni
fyrir túlkun hennar á móðurinni í
myndinni „Terms of Endearmet”.
En samkeppnin er hörð og jafnsterk-
lega þykir koma til greina að viður-
kenna Debru Winger bestu leikkonuna
fyrir leik hennar í sömu mynd. Aðrar,
sem einnig hafa verið nefndar, eru
breska leikkonan Julie Walters fyrir
leik hennar á móti Michael Caine í
myndinni „Educating Rita”, Jane
Alexander fyrir leikinn í myndinni
„Testament” og Meryl Streep fyrir
leik hennar í myndinni „Silkwood”.
Leikarinn Robert Duvall þykir afar
líklegur til að hljóta viðurkenninguna
sem besti karlleikarinn fyrir túlkun
sína á drykkfelldum „country”-söngv-
ara í myndinni, .Tender Mercies”.
Fjórir Bretar veita honum þó haröa
keppni: Tom Conti úr myndinni
„Reuben, Reuben”, Michael Caine í
myndinni „Educating Rita” og þeir
Albert Finney og Tom Courtenay fyrir
leik þeirra beggja í myndinni „The
Dresser”.
Helstu kvikmyndirnar sem tilnefnd-
ar eru sem bestu myndir eru „The Big
Chill”, „The Dresser”, „The Right
Stuff”, „Tender Mercies” og „Terms
of Endearment”.
Felldu25stjórn-
arhermenn
Skæruliöar veittu einum herbíl
stjórnarhersins fyrirsát inni í miðju E1
Slavador í fyrradag og felldu 24 her-
menn. Þykir þetta eitt mesta afhroð
sem stjórnarherinn hefur beðið af
hendi skæruliða þetta árið.
I annarri fyrirsát í San Vincente-
héraðinu í síðasta mánuði voru 25
stjórnarhermenn felldir.
Herflokkurinn var á leið í fyrradag
til þess að leysa af hermenn, sem gæta
þjóðvegarins milli San Martin og
Suchitoto, þegar á hann var ráðist.
Komust fyrirsátursmenn undan áður
en liösauki barst.
ER GOÐ OG
NYTSÖM GJÖF
Leitið til úrsmiðsins, hann býður aðeins
vönduð úr í mörgum verðflokkum,
auk þess tryggir hann örugga þjónustu.
Merkið er í glugga fagmannsins.
LÍTILL VINNUÁHUGIVIÐ NJÓSNIRNAR
Hlerunarstöð bresku leyniþjónust-
unnar í Cheltenham er sögð meira og
minna lömuö af því að starfsfólk vinn-
ur sér hægt og með hangandi hendi.
Vinnuhugur þess er sagður hafa
daprast mjög út af deilunni sem spratt
upp þegar því var bönnuö aðild að
stéttarfélögum.
I hlerunarstöðinni er fylgst með loft-
skeytum Sovétmanna og annarra rikja
og þar eru um 8000 manns að störfum.
Þegar Thatcherstjórnin setti þessu
fólki í janúar i vetur tvo kosti, hætta
aðild að stéttarfélögum eöa hætta
störfum, neituðu 140 að segja sig úr
sínum verkalýðsfélögum. Þeir eru þó
enn við störf, á meðan dómstólar f jalla
ummáliö.
Hægagangurinn í vinnunni er ekki
sagður vera skipulagður til mótmæla,
heldur einfaldlega finnist fólki það
hafa hlotiö harkalega meðhöndlun og
vinnuáhuginn hafi dofnaö.
Opnunartímar verslana
í Breiðholti
Mánudaga, þriöjudaga, miövikudaga og fimmtudaga kl. 9—19,
föstudaga kl. 9—19.30, laugardaga kl. 9—16.
V/SA
VERIÐ VELKOMIN Í VERSLANIR OKKAR 1
Breiðholtskjör Arnarbakka Valgarður Leirubakka Ásgeir Tindaseli Kjöt og fiskur Seljabraut Straumnes Vesturbergi Hólagarður Lóuhólum